Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 104
RITDÚMAR „tröllakirkja“, heiðin bygging undir yfir- skyni guðshúss. Þess vegna runnu þeir draumar út í sandinn. Sigrún er hins veg- ar bjargföst í trú sinni þegar í upphafi sögunnar, og smám saman kemur í ljós að í lífi sínu er hún í glímu við guð al- máttugan, eins og Job, sem margoft er vitnað í: hversu miklu sem hún er svipt ætlar hún ekki að hallmæla guði. Svo er að sjá að þessa raun standist hún, að svo miklu leyti sem nokkur mannlegur máttur er fær um slíkt. Stundum hefur hún í hótunum við almættið, hún segir að ef guð taki frá henni einhvern sem enn er eftir á lífi, muni aldrei gróa um heilt milli þeirra. I hvert skipti sem hún nefnir einhvern á þennan hátt, er eins og örlög hans séu ráðin, en þrátt fyrir það missir hún ekki trúna. Síðasta áfallið, lát fóstur- dótturinnar Jóhönnu, sverfur harðast að henni, og í sögulok er eins og hún sé að bogna, missa ráð og rænu, en hún rís upp aftur. Eins og Job fær hún aftur þá fjöl- skyldu sem hún hafði misst, en þá er henni orðið fullljóst að það er engin sára- bót fyrir hana, frekar en það gat verið fyr- ir Job. Meira getur hún þó varla vænst á þessari „vetrarferð“ sinni gegnum tára- dalinn. „Hliðarmyndirnar“ tvær tengjast á margvíslegan hátt inn í Blóðakur. Þannig má t.d. líta svo á að læknirinn Hörður samsvari Sigurbirni í Tröllakirkju, en þar snýst sagan ekki fyrst og ffemst um mis- heppnaða framadrauma hans heldur hitt hvernig þeir eru notaðir í miskunnar- lausu valdatafli þar sem hann sjálfur er ekki annað en lítið peð. Á sama hátt er gróðafyrirtækið mikla „Heiðnaberg“ að vissu leyti hliðstæða veitingahúss Sig- rúnar í Vetrarferðinni, en í allt öðrum mælikvarða, og þar fá Vilhelmína og Theodóra að lokum þá trú sem Sigrún hafði ffá upphafi. Hins vegar er það fremur séra Bernharður sem á í eins kon- ar glímu við almættið, og snýst hún um það hvort hann muni bogna í mótlætinu, eins og Pétur postuli, og afheita sannfær- ingu sinni. Þá raun stenst hann, og það á sinn þátt í að endir Blóðakurs er mun já- kvæðari en sögulok „hliðarmyndanna". En hér skal látið staðar numið. Því fer fjarri að þessar bollaleggingar séu á nokkurn hátt tæmandi, og verður að láta lesendum eftir að þræða hin ýmsu stef sem ganga í gegnum þennan marg- slungna þríleik. Að lokum mætti þó kannske benda á tvö atriði til viðbótar sem lesendur gætu kannske haft að leið- arljósi. I heimi þessara skáldsagna ríkja ýmis lögmál, og er eitt þeirra á þá leið, að aðgerðir manna, sem virðast kannske lít- ilfjörlegar þegar þær gerast, geta haff ger- samlega ófýrirsjáanlegar og stundum mjög örlagaríkar afleiðingar, jafnvel löngu síðar. Eitt einfalt dæmi um það er atvikið, þegar Hörður læknir slær í bræði áfengisglas úr höndum konu sinnar rétt áður en hann þarf að fara í skyndingu á læknavakt, en gætir þess ekki að hluti af áfenginu skvettist á jakkaermina og lykt- ar af því. Þetta leiðir til þess að hann er síðar ákærður fyrir að hafa verið ölvaður við vitjanir, þegar svo langt er liðið að hann getur ekki komið neinum vörnum við, og stuðlar þetta ásamt fleiru að því að koma honum í þess konar klípu að hann verður meðfærilegt verkfæri í valdaglímu. Stundum verða orsaka- tengsl af þessu tagi að löngum keðjum: dæmi um slíkt er ekki síst að finna í Vetrarferðinni, ffá framhjáhaldi Sigur- gests í byrjun og fram að „arfinum" eftir Kristján seint í sögunni. En þannig mætti lengi telja. Annað lögmál nátengt þessu, en þó í eðli sínu öðru vísi, er þannig, að ef maður hefur í huga eða hótar ofbeldis- aðgerð en ekkert verður af henni í það sinnið, blossar hún kannske upp annars staðar síðar án þess að nokkur bein tengsl séu á milli. 1 Tröllakirkju lætur Helgi sig dreyma um að skjóta illvirkj- 102 www.malogmenning.is TMM 2000:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.