Dagrenning - 01.12.1956, Síða 14

Dagrenning - 01.12.1956, Síða 14
r--------------------------------------------------------------------------\ Nauðvörn Breta og Frakka. I októberlok réðust svo ísraelsmenn inn í Egiptaland, og Bretar og Frakkar tóku litlu síðar Port Said og nokkurn hluta Súezskurðarins, til þess meðal annars að koma í veg fyrir að Arabaríkin gerðu út af við ísraels- ríki, en til þess fyrst og fremst að knýja fram einhverja lausn á Súez- vandamálinu, sem alveg var strandað. Þessi atburður virðist hafa komið flestum á óvart, og nú var það, sem Sameinuðu þjóðirnar og Bandaríkin vöknuðu við vondan draum: Frakk- land og Bretland ætluðu ekki að láta eyðileggja sig, án Jiess að veita við- nám. íhaldsmaðurinn Atliony Eden, forsætisráðherra Breta, og jafnaðar- mannaleiðtoginn Mollet, forsætisráðherra Frakka, höfðu tekið höndum saman um að reyna að hjarga |>eim ríkjum, sem |>eim hafði verið trúað fyrir að stjórna, frá yfirvofandi eyðileggingu af hálfu Rússa, Bandaríkja- manna og Sameinuðu Jijóðanna. í Frakklandi var samstaðan í Jjessu máli svo örugg og franska Jjjóðin svo samstillt, að engir voru andvígir Jjessum aðgerðum nema kommúnistar, enda ekki við öðru að búast af Jjeim. í Bretlandi varð aftur á móti annað uppi á teningnum. Brezki Alþýðuflokkurinn reis svo að kalla einhuga gegn Eden og flokki hans, og heimtaði að stjórnin færi frá Jjegar í stað, og öllum hernaðaraðgerðum yrði hætt í Egiptalandi. Brezkir jafnaðarmenn gengu þannig erinda einhvers hættulegasta einræðisherra, sem komið hefur við sögu síðustu ára, og mun sú heimskulega stefna, sem Jjeir þá tóku, verða Jjeim til vanvirðu meðan flokkurinn er til. Þeir biugðust landi sínu og þjóð, þegar mest á reyndi. Nokkur hluti flokks Edens brást honum einnig og mun það hafa fengið honum mestra vonbrigða. Viðbrögð Bandaríkjastjórnar urðu Jjau, að hún krafðist Jjess að Bretar og Frakkar hættu hernaðaraðgerðum sínum „Jjegar í stað“ og fulltrúi Bandaríkjanna flutti tillögu um Jjað bæði í öryggisráðinu og á allsherjar- þingi Sameinuðu Jjjóðanna að fyrirskipa Bretum og Frökkum að hætta „samstundis“ við hernaðaraðgerðirnar og flytja lið Jjað, sem þeir höfðu sett á land við Súezskurðinn tafarlaust í burtu. Tillagan strandaði að sjálfsögðu á neitunarvaldi Breta og Frakka í öryggisráðinu, Jjó að meiri- hluti væri Jjar fyrir henni, en var samþykkt með miklum atkvæðamun í allsherjarjjinginu, eins og við mátti bxiast. Síðari tíma saga mun telja þessa samþykkt einn mesta smánarblett, sem vestrænar Jjjóðir hafa sett á skjöld sinn, Jjó að margir séu Jjar ófagrir fyrir. A sama tíma og Jjetta gerðist, voru Rússar að nxylja niður ungversku V__________________________________________________________________________. 12 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.