Dagrenning - 01.12.1956, Blaðsíða 34
Franski haninn galar.
Oft hefir verið vikið að því í þessu riti, að eitt þeirra tákna, sem boðar
endalokin, er að „þjóð mun rísa gegn þjóð og konungsríki gegn konungs-
ríki“, og að þjóðir verði innbyrðis mjög ósáttar. Vér höfum nú dvalið um
stund við missætti vestrænna þjóða, sem aldrei liefir, síðustu öldina eða
lengur, verið jafnmikið og nú.
Þó sú saga sé rakin, og mistök Bandaríkjanna dregin fram í dagsljósið
ómjúkum höndum, er það ekki gert af óvild í þeirra garð, enda á þetta
bent áður við ýmis tækifæri. Mistökin skipta heldur ekki mestu máli leng-
ur, heldur hitt, að nú verði snúið við og úr þeim bætt. Nú ríður þeim á
að skilja uppruna sinni og hlutverk sitt og hegða sér samkvæmt því. Láta
ekki sundra sér, en leggja samhuga og samstilltar til síðustu atlögunnar
undir þeim fánum frelsis og réttlætis, sem þær til þessa hafa sigrað undir.
Þeim er nauðsynlegt að losna við allar blekkingar í sambandi við hinar
Sameinuðu þjóðir, og efla bandalag sitt — Atlantshafsbandalagið — en
brjóta það ekki niður fyrir svikabros eða áferðafallegan nýkommúnisma,
sem ekki er annað en hin gamla krumla einræðis og kúgunar þegar silki-
hanzkinn er dreginn af.
Ef innrás Breta og Frakka á Súezeiðið verður til þess að sameina enn
betur hinar vestrænu þjóðir, svo þær mæti sameinaðar lokaárás Gógs-
bandalagsins er ljóst að Anthony Eden hefir verið verkfæri í hendi æðra
valds þegar hann greip til þess úrræðis.
Enginn þarf að halda, þó nú verði e. t. v. eittlivert stundarhlé, að var-
anlegur friður sé í nánd. Hinu skyldu menn gera skóna, að stórfelldasta
styrjöld allra tíma sé nú fyrir dyrum, og að í þeirri styrjöld verði stefnt að
því að lima sundur Brezka samveldið og tortíma franska ríkinu.
Það er gömul trú — eða hjátrú — að Frakkar séu sú þjóð í Evrópu sem
fyrstir allra gera sér ljósa aðsteðjandi hættu. „Galliski lianinn“, sem er
tákn frönsku þjóðarinnar í sögum og ævintýrum, er árvakrari en „brezka
ljónið“, „þýzki örninn“ og „rússneski björninn“. Og þegar hann galar er
liætta í nánd. Jafnvel Karl Marx skynjaði þennan mikilvæga sannleika.
Lítum til Frakklands nú í dag. Þar er eina þjóðin í Evrópu, sem virðist
gera sér ljóst, hvað um er að vera.
Frakkar eru eina þjóðin, sem er sameinuð nú á liættunar stund. „Gall-
iski haninn“ hefur nú galað í fyrsta sinn, og varað þjóðirnar við hættunni,
sem að Jæim steðjar. Vakið þær af blundi andvaraleysis og falskrar ósk-
hyggju-
Það verður ekki langt Jjangað til liann galar öðru sinni.
_________________________________________________________________________________J
32 DAGRENNING