Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 62
FUNDIROGráðstefnur62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Liðin eru þrjú ár síðan hótelið var tekið rækilega í gegn og varð að Icelandair hótel Reykjavík Nat- ura. Endurbæturnar miðuðu m.a. að því að gera yfirbragð hótelsins léttara og nútímalegra og um leið að áherslum í veitingum og þjón- ustu var breytt í áttina að aukinni hollustu og heilnæmi. Berglid Ósk Bárðardóttir er ráðstefnu- og viðburðastjóri hót- elsins og segir hún Rekjavík Nat- ura hafa á að skipa mörgum fal- legum sölum sem henti viðburðum af öllum stærðum og gerðum. „Við höfum hér fjórtán sali sem henta fyrir allt frá tveggja manna starfs- mannasamtölum upp í 350 manna fund eða standandi móttöku með 500 gestum.“ Létt og hollt Salirnir eru búnir nýjustu tækni, háskerpuskjám og full- komnum hljóðkerfum. Tæknimenn eru ávallt á staðnum og ganga úr skugga um að tæknihliðin gangi snurðulaust fyrir sig. Þegar hótelið var klætt í nýjan búning hóf þar starfsemi nýr og spennandi veitingastaður, Satt, þar sem hollusta, ferskleiki og bragðgæði eru í fyrrirúmi. Satt heldur utan um alla veitingaþjón- ustu í tengslum við fundi og ráð- stefnur og segir Berglind hægt að velja hagkvæma veit- ingapakka eftir lengd og eðli við- burðarins. „Er t.d. í boði að kaupa hálfsdags eða heilsdags- veitingar allt eftir því hvað hent- ar. Oft vilja viðskiptavinir okkar lífga upp á fyrirlestur eða kynn- ingu með léttu hanastéli og snarli eða brjóta upp heilsdags- ráðstefnu með því að bjóða gest- um í hádegisverðarhlaðboð á Satt.“ Berglind minnir á að þótt veit- ingastaðurinn Satt sé kunnur fyrir hollustu þá starfræki Satt sitt eig- ið bakarí og baki ferskt brauð og sætmeti á degi hverjum. Það er því sjálfsagt að verða við óskum þeirra sem vilja klassísk vín- arbrauð og kökur með kaffinu, en hún getur þess að Reykjavík Nat- ura er þekkt fyrir að halda flottar erfidrykkjur og annars konar veislur með hefðbundnu kaffihlað- borði. Margir sjá þó mikla kosti við að velja frekar veitingar í hollari kantinum og fundar- og ráð- stefnugestir séu oft glaðir að fá léttar og grænar veitingar. „Heilsusafarnir og smoothie dags- ins hafa reynst mjög vinsælir á viðburðum fyrir bæði í einkageir- anum og opinbera geirann og er þess vandlega gætt að hafa alltaf grænmetisrétti í boði fyrir þá sem það vilja. Matreiðslumennirnir á Satt hafa líka gaman af að takast á við skemmtilegar sérþarfir og óskir, t.d. ef viðskiptavinurinn vill hafa tiltekið litaþema í veiting- unum.“ Betri orka með góðri næringu Ekki skyldi vanmeta mikilvægi góðra veitinga fyrir vel heppnaðan viðburð. Góður matur setur oft punktinn yfir i-ið, gleður og kætir. „Fagfólk nú til dags gerir sér líka góða grein fyrir því að hollur mat- ur með rétta næringargildið gefur þeim betri orku til að fylgjast vel með og taka þátt af fullum krafti. Liðin er sú tíð að fólk haldi sér gangandi með hverjum kaffiboll- anum og vínarbrauðinu á fætur öðru, til að halda blóðsykurfalli og sleni í skefjum,“ segir Berglind kímin. Það hefur ýmsa kosti að halda ráðstefnu á hóteli, sér í lagi þegar von er á erlendum gestum. Berg- lind segir spara tíma og auðvelda utanumhald að hafa alla undir sama þakinu. Gestir spari sér löng ferðalög milli hótelherbergja og fundarstaðar og minnki líkur á töfum og truflunum sem raskað geta dagskránni. Þá getur mjög hagkvæmt verð verið í boði þegar keypt er saman gisting og fund- araðstaða. „Það færist í aukana að þegar fyrirtæki halda árshátíðir sínar hjá okkur þá velji gestir að kaupa sér gistingu í leiðinni. Það kostar ekki ósvipað og farið með leigubíl út í sum ystu hverfi höfuðborg- arsvæðisins. Eftir nærandi svefn og morgunverð bíður svo bíllinn þar sem honum var lagt kvöldið áður.“ Smoothie dagsins vekur lukku  Hjá Reykjavík Natura er m.a. rík áhersla lögð á gott framboð af hollum réttum á fundum og ráðstefnum.  Vínarbrauðin eru þó vitaskuld á sínum stað, úr bakaríi veitingastaðarins Satt þar sem eldað er af metnaði Staðsetning Lífið á flugvellinum blasir við gestum Natura. Hvít Aðstaðan er björt og létt eftir endurbæturnar. Aðstaða Finna má stóra og smáa sali fyrir alla fundi. Morgunblaðið/Ómar Eldsneyti „Fagfólk nú til dags gerir sér líka góða grein fyrir því að hollur matur með rétta næringargildið gefur þeim betri orku til að fylgjast vel með og taka þátt af fullum krafti,“ segir Berglind Ósk ráðstefnustjóri. Náttúra og iðandi flugvöllur Sumir fundarsalir á Reykjavík Natura bjóða upp á óvenjulega og eftirminnilega umgjörð. Berglind nefnir gamla bíósal- inn sem ber skemmtilegt „retró“ yfirbragð og Sóley Natura Spa í kjallaranum þar sem hægt er að stilla upp óhefðbundnu fundarrými. Aðr- ir fundarsalir hafi óviðjafn- anlegt útsýni yfir flugvöllinn og út á haf og margir sem sækja gagngert í að panta sal þar sem fylgjast má með flug- vélunum lenda og taka á loft yfir daginn. Í næsta nágrenni hótelsins er svo hægt að stunda ýmislegt sem lífgar upp á dagskrána og vel hægt að ímynda sér að gönguferð um Öskjuhlíðina eða stuttur sundsprettur í Nauthólsvík geti komið fund- ar- og ráðstefnugestum í stuð, hlaðið batteríin og örvað sköp- unargáfuna. duxiana.com D U X® ,D U XI A N A® an d Pa sc al ® ar e re gi st er ed tr ad em ar ks ow ne d b y D U X D es ig n A B 20 12 . Okkar best varðveitta leyndarmál! Allar götur síðan DUX var stofnað 1926 þá hefur það verið metnaður okkar að framleiða heimsins þægilegust rúm, því það er frábær tilfinning að vakna úthvíldur eftir góðan nætursvefn. Til að ná því marki höfum við hjá DUX þróað DUX Pascal system er samanstendur af útskiftanlegu fjaðramottum sem gera þér kleift að sníða rúmið (stífleikann) að þínum þörfum hvenær sem þú vilt, eins oft og þú villt. Það er leyndarmálið að góðum svefni. DUXIANA Reykjavik, Ármuli 10, 568 9950
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.