Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 49
FRÉTTIR 49Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015
um þar sem fram kom að starfs-
menn hans hefðu aðstoðað auðmenn
við að fela peninga fyrir skattyfir-
völdum í heimalöndum sínum.
Rannsókn í kjölfar afhjúpana
Saksóknaraembættið í Genf sagði
að ákveðið hefði verið að leita og
hefja peningaþvættisrannsóknina
eftir „nýlegar afhjúpanir í tengslum
við einkabankann HSBC (í Sviss)“.
Samkvæmt svissneskum lögum
er banki ábyrgur ef „stórfellt pen-
ingaþvætti“ á sér stað og ekki er
gripið til allra nauðsynlegra ráða
Genf. AFP | Svissnesk yfirvöld
gerðu í gær húsleit í skrifstofum
útibús breska bankans HSBC í
Sviss. Leitin er hluti af rannsókn á
því hvort peningaþvætti hafi verið
stundað í bankanum, sem hefur ver-
ið sakaður um að hjálpa viðskipta-
vinum sínum að koma milljónum
dollara undan skatti.
Útibú HSBC í Sviss komst í
heimsfréttirnar 9. febrúar. Fjöl-
miðlar birtu leyniskjöl úr bankan-
innan veggja hans til að afstýra því.
Olivier Jornot, yfirsaksóknari í
kantónunni Genf, og Yves Bertossa
saksóknari stjórna rannsókninni.
Þeir sögðu að hún beindist að bank-
anum, en gæti eftir því sem henni
vindur fram náð til einstaklinga,
sem grunur félli á um aðild að mál-
inu.
Viðurlög við slíkum glæpum í
Sviss eru allt að fimm ára fangelsi
og háar fjársektir.
Herve Falciani, þáverandi starfs-
maður bankans í Sviss, stal skjöl-
unum 2007 og fór með þau til
Frakklands. Frönsk stjórnvöld eru
meðal þeirra, sem hafa notað þau til
að hafa hendur í hári skattsvikara.
Stjórnendur útibús HSBC í Sviss
segja að rótttækar breytingar hafi
átt sér stað í bankanum síðan 2007.
Þegar skjölin voru birt 9. febrúar
komu fram kröfur um að svissnesk
yfirvöld rannsökuðu málið. Bankinn
á nú þegar yfir höfði sér málsókn í
Bandaríkjunum, Frakklandi, Arg-
entínu, Spáni og Belgíu.
Svisslendingar höfðu þar til í gær
aðeins hafið rannsókn á Falciani.
Hann segir að það sem komið hafi
fram í fjölmiðlum sé „aðeins topp-
urinn á ísjakanum“.
Ráðist í húsleit hjá útibúi HSBC í Sviss
EPA
Leitað Öryggisvörður í dyrum
HSBC í Genf á meðan leitað var.
Rannsókn hafin á því hvort pen-
ingaþvætti hafi átt sér stað í bankanum
Áfrýjunardóm-
stóll í Sádi-
Arabíu staðfesti í
gær 15 ára fang-
elsisdóm yfir
mannréttinda-
lögfræðingnum
Waleed Abulkha-
ir. Abulkhair var
dæmdur í fyrra-
sumar fyrir ýms-
ar sakir, þar á meðal að „espa al-
menning“. Þá voru fimm ár
skilorðsbundin, en í janúar kvað
dómstóll úr um að hann skyldi af-
plána allan dóminn, 15 ár.
Abulkhair var lögmaður sádiarab-
íska bloggarans Raefs Badawis, sem
afplánar nú tíu ára fangelsisdóm og
var dæmdur til þúsund svipuhögga
fyrir að móðga íslam. Hann fékk
fyrstu 50 svipuhöggin 9. janúar og
átti að fá 50 högg vikulega eftir það,
en hefur ekki verið refsað síðan.
Refsingunni hefur verið mótmælt
víða um heim.
Norskur þingmaður hefur lagt til
nöfn Badawis og Abulkhairs við nób-
elsnefndina, sem ákveður hverjum
verði veitt friðarverðlaunin á þessu
ári.
Sádar dæma
lögmann
Waleed Abulkhair
Úkraínski herinn dró í gær herlið
sitt út úr bænum Debaltseve í aust-
urhluta landsins eftir að uppreisn-
armenn réðust inn í hann. Evrópu-
sambandið sagði að árás
uppreisnarmanna, sem njóta stuðn-
ings Rússa, væri „skýrt brot“ á
vopnahléinu, sem samið var um í
Minsk í liðinni viku og tók gildi um
helgina.
Debaltseve er á milli borganna
Dónetsk og Lúhansk, sem eru í
höndum uppreisnarmanna. Bærinn
er mikilvægur fyrir samgöngur. Það
er talið áfall fyrir Petro Porosjenkó,
forseta Úkraínu, að herinn skuli
þurfa að hörfa frá borginni. Í kosn-
ingabaráttunni kvaðst hann ætla að
brjóta uppreisnina á bak aftur.
Í frétt AFP sagði að hraktir her-
menn í skítugum klæðum hefðu sést
koma til bæjarins Artemivsk, sem er
skammt frá Debaltseve, ýmist í
skriðdrekum eða öðrum farartækj-
um eða gangandi.
Úkraínski
herinn
hörfar
AFP
Á undanhaldi Úkraínskir hermenn
koma til Artemivsk frá Debaltseve.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:Mán. - föst. kl. 09-18
Laugardaga kl. 11-15
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLLHERBERGIHEIMILISINS
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,
FRAMHLIÐUM,KLÆÐNINGUMOGEININGUM,
GEFAÞÉR ENDALAUSAMÖGULEIKAÁ
AÐSETJASAMANÞITTEIGIÐRÝMI.
VIÐ HÖNNUMOG TEIKNUM FYRIR ÞIG
Komdumeð eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu,
þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum,
teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu
í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.
STERKAR OG GLÆSILEGAR
ÞITT ER VALIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir
þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
BE
TR
IS
TO
FA
N