Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 42. tölublað 103. árgangur
SÓLARSVÍTA
MEÐ GRÍSKU
YFIRBRAGÐI
FALSKUR
FISKUR
Í SJÓ?
YFIR 30 KVIKMYNDIR
OG FJÖLBREYTTIR
VIÐBURÐIR
VIÐSKIPTAMOGGINN KVIKMYNDAHÁTÍÐIN STOCKFISH 90ÁRNI JOHNSEN 36
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Góðar bókanir í flugi og hótelgistingu
fyrir sumarið benda til að met síðasta
sumars verði að öllum líkindum sleg-
ið. Þá komu yfir 500 þúsund ferða-
menn til landsins í júní, júlí og ágúst,
ef farþegar skemmtiferðaskipa eru
meðtaldir.
Þar sem Icelandair er skráð í
Kauphöll Íslands gefur félagið ekki
upp hve mikið sumarið er bókað en
vísbendingu um aukna flugumferð
má sjá í þeirri tilkynningu til Kaup-
hallar á dögunum að sætaframboðið í
sumar var aukið frá því sem áður
hafði verið boðað. Félagið bætti við
einni vél og verður alls með tuttugu
og fjórar Boeing-vélar í áætlunar-
fluginu. Var sex vikulegum ferðum
bætt við í sumaráætluninni. Ice-
landair hafði reiknað með að flytja 2,9
milljónir farþega á þessu ári en gerir
nú ráð fyrir að fljúga með þrjár millj-
ónir farþega yfir N-Atlantshafið.
Hildur Ómarsdóttir, markaðsstjóri
Icelandair-hótelanna, segir sumarið
líta mjög vel út. „Við vorum með
toppnýtingu síðasta sumar og það er
ekkert sem gefur annað til kynna en
að sumarið í ár verði einnig mjög
gott,“ segir hún.
Hótelnýting yfir vetrarmánuðina
hefur einnig snaraukist. Sem dæmi
þá eru hótelin í Reykjavík meira og
minna fullbókuð þessa dagana, þó að
engir stórviðburðir séu í gangi.
Aðallega eru þetta almennir ferða-
menn, m.a. Bretar og fólk frá Bene-
lúx-löndunum sem hingað er komið
með börnin í vetrarfrí. »6 og 26
Flug og hótel að fyllast í sumar
Stefnir í metsumar Yfir hálf milljón ferðamanna kom síðasta sumar
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn Ísland trekkir enn.
Það er ekki einungis yngsta kynslóðin sem þykir
gaman að klæða sig upp og bregða á leik í tilefni
öskudagsins. Íbúar á Hrafnistu halda öskudags-
skemmtun og klæða sig upp í tilefni dagsins og
starfsfólkið fer í búninga og gantast við íbúana,
sem kunna vel að meta uppátækið. »4
Tóku góðan snúning í tilefni dagsins
Morgunblaðið/Kristinn
Allar kynslóðir gleðjast á öskudag
Framleiðsla á laxi jókst um tæp
1.000 tonn á síðasta ári, fór úr
3.000 tonnum í tæp 4.000 tonn.
Fjarðalax á Vestfjörðum stendur
undir meginhluta aukningar-
innar, eins og undanfarin ár.
Laxinn hefur nú tekið við af
bleikju sem mikilvægasti eldis-
fiskurinn og með sama áfram-
haldi nær laxeldið sömu hæðum í
framleiðslu á allra næstu árum og
var í síðustu laxeldisbylgju á ár-
unum 2004 til 2006.
Laxeldisfyrirtækin eru að bæta
við og ný að hefja slátrun á þessu
ári þannig að útlit er fyrir aukn-
ingu í ár. Einnig er mikil gróska í
eldi á regnbogasilungi og marg-
faldaðist framleiðslan á síðasta
ári, miðað við árið á undan. Stöð-
ugur en hægur vöxtur er í fram-
leiðslu á bleikju í landeldis-
stöðvum. »50
Laxinn tekur for-
ystu í fiskeldinu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fjarðalax Laxinn búinn undir ferðalag á
erlendan markað, þar er eftirspurn mikil.
Notendur Ferða-
þjónustu fatlaðra
héldu fjölmenn-
an opinn fund í
gær þar sem
Stefán Eiríksson,
sem leiðir neyð-
arstjórn Strætó í
málefnum ferða-
þjónustunnar,
sat fyrir svörum.
Margir fundarmanna lýstu
slæmri reynslu sinni af hinu nýja
kerfi sem tekið var í notkun um
áramótin.
Tók fundurinn tvo tíma og svar-
aði Stefán þar fyrirspurnum fund-
armanna. »34
Hitafundur notenda
ferðaþjónustunnar
Stefán Eiríksson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Töluverð eftirspurn er eftir leigu-
íbúðum um land allt og gengur vel að
leigja á svæðum sem þótt hafa erfið.
Leiga til ferðamanna á þátt í því.
Þetta segir Bjarni Þór Þórólfsson,
framkv.stj. Leigufélagsins Kletts.
Leigufélagið Klettur var stofnað
fyrir um ári og leigir félagið út um
450 íbúðir um allt land. Eignirnar
voru áður í eigu
Íbúðalánasjóðs.
„Við erum með
eignir á svæðum
sem gætu talist
erfið til útleigu.
Það er hins vegar
ekki okkar
reynsla. Það
gengur almennt
vel að leigja út
eignir. Um 98%
fasteigna Leigufélagsins Kletts eru í
útleigu í dag,“ segir Bjarni Þór. Þær
fáu eignir sem ekki eru í útleigu eru í
viðhaldi eða auglýstar til útleigu. Um
35% af eignasafni Leigufélagsins
Kletts eru á höfuðborgarsvæðinu og
um 65% víðsvegar um landið.
Frá fjölskyldum til ferðamanna
Hann segir trúlegt að stóraukin
eftirspurn ferðamanna eftir húsnæði
hafi áhrif á þróunina. Að húsnæði
sem áður hafi verið leigt fjölskyldum
sé nú leigt ferðamönnum.
Jón Gunnarsson, löggiltur fast-
eignasali hjá Ásbergi fasteignasölu í
Reykjanesbæ, segist fá nokkrar
fyrirspurnir á dag um leiguhúsnæði.
Eftirspurnin sé greinilega að
aukast, m.a. vegna áhuga ungs fólks
og fólks sem er búsett á höfuð-
borgarsvæðinu á að leigja suður með
sjó. Verulega hafi gengið á framboð
af íbúðarhæfu húsnæði á svæðinu.
Landsbyggðin er eftirsótt
Framkvæmdastjóri Kletts segir vel ganga að leigja íbúðir á „erfiðum“ svæðum
Hús leigð ferðamönnum Höfuðborgarbúar sækja í leiguíbúðir suður með sjó
Bjarni Þór
Þórólfsson
Margir hafa
komið að máli
við eigendur
Melabúðarinnar
til að kanna
hvort ekki væri
hægt að opna
fleiri slíkar. Með-
al annars hafa
borgaryfirvöld
rætt við bræð-
urna sem reka
verslunina um
möguleika á að opna hverfisbúðir í
ýmsum hverfum borgarinnar en
þeir hafa metið það svo að enginn
rekstrargrundvöllur væri fyrir
slíku. »ViðskiptaMogginn
Margir sem vilja
fleiri Melabúðir
Það eru margir sem
leggja leið sína í
Melabúðina.