Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 82
82 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015
Elísabet Sverris-dóttir er ráð-gjafi hjá Hag-
vangi, og hefur unnið
þar síðan hún lauk
MSc.-gráðu í mann-
auðsstjórnun frá Há-
skóla Íslands. Hennar
helstu viðfangsefni
eru ráðningar en sam-
hliða því hefur Elísa-
bet veitt ráðgjöf í
mannauðsmálum og
starfsmannavali. Í því
felst m.a. að hanna
starfslýsingar, sjá um
fyrirlögn og túlkun
prófa og annast út-
tektir og greiningar á
stjórnskipulagi fyrir-
tækja. Einnig hefur
Elísabet sérhæft sig í
starfslokaráðgjöf sem
er einn hluti ráðgjaf-
arþjónustu fyrirtækisins gagnvart einstaklingum sem missa vinnu
sína. ,,Því miður er enn verið að segja upp fólki hér og þar. Við finn-
um þó að atvinnumarkaðurinn er að styrkjast og er talsvert líflegri
en verið hefur um langt skeið. Við erum því líka að upplifa mikla já-
kvæðni og eftirvæntingu um betri tíma fram undan.“
En hver eru áhugamálin? Fjölskyldan er númer eitt, tvö og þrjú
og svo reynum við að ferðast eins og við getum. Núna er ég í námi í
verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík sem styrkir mig í því að
leiða flóknari ráðningarferli sem og önnur stefnumótandi verkefni.
Því gefst lítill tími fyrir annað en fjölskylduna en ég klára í vor svo
þetta fer að verða rólegra. Við fórum síðast út til Flórída, hlóðum
batteríin og söfnuðum smá D-vítamínforða. Það var gott frí, við höf-
um verið áður erlendis um jól og það er yndislegt inn á milli.“
Sambýlismaður Elísabetar er Guðmundur Hjalti Sveinsson, við-
skiptastjóri á fyrirtækjasviði hjá Verði tryggingum hf., og dóttir
þeirra er Ísold María 5 ára, nemandi í Barnaskóla Hjallastefnunnar í
Garðabæ.
En hvað á að gera í tilefni dagsins? „Ég ætla bara að njóta dagsins
í faðmi fjölskyldunnar. Dóttir mín er búin að segja mér að hún ætli
að teikna mynd handa mér og semja sögu fyrir mig og er nokkuð
hægt að biðja um betri gjöf?“
Elísabet Sverrisdóttir er fertug í dag
Ráðgjafi Elísabet vinnur hjá Hagvangi.
Safnaði D-vítamín-
forða yfir jólin
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Gullbrúðkaup eiga í
dag Hulda Schev-
ing Kristinsdóttir
og Snæbjörn Krist-
jánsson. Þau verða
að heiman í dag.
Árnað heilla
50 ár
V
albjörn fæddist í
Reykjavík 19.2. 1965 en
ólst upp í Kópavogi og
hefur átt þar heima alla
tíð, við Nýbýlaveg,
Hjallabrekku, Lyngbrekku, Engi-
hjalla, Blikahjalla, Álfhólsveg og
loks í Frostaþingi. Hann er hæst-
ánægður með sitt sveitarfélag og
segir einfaldlega: „Það er gott að
búa í Kópavogi.“
Þar með er þó ekki sagt að hann
hafi aldrei farið út fyrir bæjar-
mörkin: „Þegar ég var strákur var
ég eina viku í sveit í Teigagerði í
Reynissveit. En það var stutt gam-
an því mér var bara ekkert
skemmt. Ég hringdi því í pabba og
mömmu og bað þau að koma og
sækja mig sem og þau gerðu. Þarna
var auðvitað ekki við neinn að sak-
ast nema mig sjálfan. Einhverrra
hluta vegna skynjaði ég bara ekki
þessa margrómuðu sveitasælu sem
mín kynslóð gerir svo mikið úr þeg-
ar hún vex úr grasi og lítur um öxl.
Ári síðar kom pabbi mér á sjóinn
á fraktskip hjá Sambandinu og ég
fann strax að sjávarseltan og sjó-
mennskan átti miklu betur við mig
en sveitasælan. Þess vegna er ég
til sjós nú í dag og reyndar hjá
sama fyrirtækinu og þegar ég var
Valbjörn J. Höskuldsson, yfirvélstjóri á Arnarfelli – 50 ára
Smiðir að störfum Valbjörn og sonur hans, Höskuldur Hrafn, smíða sumarhús fyrir ömmu Siggu austur í Grímsnesi.
Tók sjómennskuna
fram yfir sveitasæluna
Kaffihúsarómantík Hjónin Valbjörn og Kristín slaka á og njóta lífsins í Prag.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.