Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 5
Útdráttur
Fjallað er um þróun fræðigreinarinnar bókasafns
fræði hér á landi, síðar bókasafns og upplýsingafræði
til þess tíma er heiti hennar varð upplýsingafræði. Spurt
er hvers vegna og hvernig bókasafnsfræðin varð til hér
á landi? Og hvernig námsframboði í upplýsingafræði,
sem eingöngu verður í boði á meistarastigi í framtíðinni
verði best háttað við þær aðstæður sem ríkja þegar
greinin er skrifuð. Lagt er til að annars vegar verði lögð
áhersla á afstrakt sérhæfingu á kjarnasviðum greinar
innar, þekkingu sem nýtist á víðum vettvangi við kerfis
bundna vistun þekkingar ﴾ekki aðeins á bóka og
skjalasöfnum﴿ og hins vegar að mynda tengsl við aðrar
fræðigreinar til þess að útskrifa nemendur sem hafa
haldgóða þekkingu á sem fjölbreyttustum efnissviðum.
Niðurstöður rannsókna og viðburða í þróun fræði
greinarinnar voru greindar samkvæmt EET ﴾Ecological
evolutionary theory﴿, kenningunni um kerfi fagstétta
﴾The system of professions﴿ og miðilskenningunni
﴾Medium theory﴿. Drepið er á áhrif miðlunarmenningar á
atvinnumenningu og tengsl atvinnuhátta við miðlun
þekkingar hér á landi. Þau tengsl hafa haft áhrif á þróun
fræðigreinarinnar. Umfjöllunin er að mestu byggð á
tveimur megin þáttum doktorsritgerðar höfundar. Annars
vegar könnunum á breytingum á þjónustueiningum og
mannafla 1989 og 2001 í bóka og skjalasöfnum og hins
vegar könnun á breytingum á fjölda og gerð útgáfuein
inga þekkingar sem til varð hér á landi á síðari helmingi
20. aldar. Þróun þessara þátta á rannsóknartíma tengd
ist breytingum á atvinnuháttum þjóðarinnar sem leitt
hafa til stóraukinnar þarfar fyrir ritaða þekkingu og upp
lýsingar til atvinnutengdra nota. Sú þróun hefur leitt til
aukinnar eftirspurnar eftir bókasafns og upplýsinga
fræðingum til vinnu við skipulag geymdar og miðlun rit
aðrar þekkingar og upplýsinga. Þessi þróun er lauslega
borin saman við þróun þessara þátta í Bandaríkjum
Norður Ameríku ﴾BNA﴿ þar sem höfundur bjó um
nokkurra ára skeið og tók meistarapróf í fræðigreininni.
1 Inngangur
Fjallað er um þróun fræðigreinarinnar bókasafns
fræði hér á landi. Bókasafnsfræðin var í fyrstu kennd
sem aukafag en síðar einnig sem aðalfag til BA gráðu.
Síðar varð heiti hennar bókasafns og upplýsingafræði,
sem kennd var til BA, MA og MLIS gráðu. Umfjöllunin
nær frá þeim tíma er þörf skapaðist fyrir menntað starfs
fólk á bókasöfnum til þess tíma er fræðigreinin var færð
á meistarastig eingöngu og heiti hennar breytt í upplýs
ingafræði. Drepið er á áhrif miðlunarmenningar á
atvinnumenningu og tengsl atvinnuhátta við miðlun
þekkingar hér á landi. Þau tengsl hafa haft áhrif á þróun
fræðigreinarinnar. Umfjöllunin er byggð á tveimur megin
þáttum doktorsritgerðar höfundar ﴾Stefanía Júlíusdóttir,
2013a﴿. Annars vegar könnunum á breytingum á þjón
ustueiningum og mannafla 1989 og 2001 í bóka og
skjalasöfnum og hins vegar könnun á breytingum á
fjölda og gerð útgáfueininga þekkingar sem til varð hér á
landi á síðari helmingi 20. aldar. Þróun þessara þátta á
rannsóknartíma er talin tengjast breytingum á atvinnu
háttum þjóðarinnar sem leitt hafa til stóraukinnar þarfar
fyrir ritaða þekkingu og upplýsingar til atvinnutengdra
nota, jafnt útgáfurita sem skjala. Hún hefur einnig leitt til
aukinnar eftirspurnar eftir bókasafns og upplýsinga
fræðingum til vinnu við skipulag geymdar og miðlun rit
aðrar þekkingar og upplýsinga, bæði útgáfurita og
skjala. Þróunin hér á landi er lauslega borin saman við
Frá bókasafnsfræði til upplýsingafræði:
þróun fræðigreinar, þörf á menntun
Ritrýnd grein
Dr. Stefanía Júlíusdóttir
Stefanía Júlíusdóttir hefur lengst af starfað sem lektor í bókasafns og upplýs
ingafræði við Háskóla Íslands og stundakennari fyrir þann tíma. Hún var áður
forstöðumaður á Bókasafni Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins, Bóka
safni Landlæknisembættisins, Bókasafni Landspítala Háskólasjúkrahúss og
vann jafnframt að doktorsrannsókninni í lausamennsku í nokkur ár. Stefanía er
með BA próf frá Háskóla Íslands í bókasafnsfræði og líffræði, MS próf frá Col
umbia University in the City of New York og doktorspróf frá Háskóla Íslands í
bókasafns og upplýsingafræði 2013.