Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 18

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 18
Bókasafnið 38. árg. 2014 1 8 verið miðlað á rituðu máli, meðal annars í utanmarkaðs­ ritum. Ályktunin er ennfremur studd af aukningu skjala­ magns sem til hefur orðið hjá opinberum aðilum hér á landi. Það gefur augaleið að þegar magn og mikilvægi rit­ aðrar atvinnutengdrar þekkingar og upplýsinga eykst eins og hér kemur fram hlýtur að þurfa aukinn mannafla til þess að sjá um skipulagningu geymdar og vistunar á þann hátt að finna megi það sem á þarf að halda með skjótum og auðveldum hætti þegar þörf krefur. Í niður­ stöðum mannaflakannananna kemur fram að frá árinu 1989 hafði eftirspurn eftir mannafla aukist mikið til ársins 2001, þvert á það sem mannaflaspáin gaf til kynna. Hlutfallslega hafði aukning mannafla orðið mest í rann­ sóknar­ og sérfræðibókasöfnum og við skjalastjórn. Það er í samræmi við að aukning útgáfu varð mest í utan­ markaðsritum og mikla aukningu skjalamagns opinberra skjalasafnsmyndara. Meðal áhrifa rafrænnar miðlunar á framboð starfa á þessu tímabili var að rekstri örfárra þjónustueininga á sviði sérfræðibókasafna sem starfræktar voru árið 1989 hafði verið hætt árið 2001. Að sögn talsmanna stofnan­ anna var rekstur mannaðra þjónustueininga ekki lengur nauðsynlegur vegna þess hve auðvelt var fyrir starfs­ menn og aðra ﴾þegar um var að ræða þjónustu við fólk utan stofnunar﴿ að afla sér þekkingar og upplýsinga raf­ rænt með tilkomu rafrænnar geymdar og miðlunar. Til þess að gera geymd og miðlun þekkingar og upplýsinga mögulega á samræmdan hátt á alþjóðavísu verður að viðhafa stöðluð vinnubrögð. Stöðlunin hefur jafnframt gert samnýtingu á vinnu við skipulag safn­ kosts, það er skráningu, flokkun og lyklun útgáfurita mögulega á alþjóðavísu. Það sama á við um miðlun í ra­ frænum gagnasöfnum sem sniðin eru að leitum fyrir al­ menna notendur. Áhrif þessarar þróunar eru þau að færra starfsfólk þarf til þess að sinna vinnu við skipulag safnkosts. Slík vinna var unnin hér á landi á hverju bókasafni fyrir sig fram undir aldamótin 2000 ﴾Stefanía Júlíusdóttir, 1996, 2013a﴿. Með tilkomu nýja Gegnis varð á því breyting og þegar þetta var ritað voru skrán­ ingarfærslur hér á landi samnýttar, bæði innanlands og fengnar erlendis frá. Þetta er í samræmi við niðurstöður Carson ﴾2002, 2004﴿ um að dregið hefði úr eftirspurn eftir og mikilvægi stéttar bókasafns­ og upplýsingafræða við slík störf á bókasöfnum. Á sviði skjalastjórnar hefur þróunin verið þveröfug hér á landi. Hér hefur eftirspurn eftir skjalastjórum sem stýra skipulagi vistunar og aðgangs að skjölum aukist, í samræmi við aukið magn skjala og aukið magn ritaðrar atvinnutengdrar þekkingar og upplýsinga. Sú þróun sem niðurstöður rannsókna minna gefa vísbendingu um og lýst er hér að ofan er í samræmi við EET kenningu Lenski ﴾2005﴿. Áhrifavaldar eru annars vegar breytingar sem stöðugt eiga sér stað og auðveld­ lega má snúa aftur til fyrra horfs, til dæmis lagabreyting­ ar. Hins vegar er um að ræða breytingar sem urðu fyrir áhrif rafrænnar miðlunar og eru annars eðlis en þær breytingar sem stöðugt eiga sér stað. Rafræna miðlunin er komin til vegna þess að notkun nýs miðils ﴾þess raf­ ræna﴿ og annars konar táknkerfis ﴾sem stendur tví­ undakótans﴿ hefur fest sig í sessi. Það er jafnvíst og að rafræn miðlun mun halda áfram að þróast að ekki verður alfarið horfið aftur til fyrri hátta við að vista, geyma og miðla þekkingu eingöngu á pappír. Því síður verður hug­ læg geymd og munnleg miðlun tekin upp aftur í stað ritmiðlunar rafrænt og á pappír. Jafnframt eru áhrifin af stöðugum breytingunum í samræmi við kenningu Abbotts ﴾1988﴿ um kerfi fagstétta og áhrifin af notkun nýs miðils eru í samræmi við miðilskenningu ﴾medium theory﴿ Meyrowitz ﴾2001﴿. 7.1 Menntun í upplýsingafræði Við uppbyggingu meistaranáms í upplýsingafræði verður að miða við þarfir íslensks þjóðfélags þar sem til stendur að nýta menntunina. Jafnframt verður að taka mið af því að þróun fyrri tíma hefur áhrif á þróun framtíð­ ar. Staða bókasafns­ og upplýsingafræðinga sem skjalastjóra og þarfir íslensks þjóðfélags fyrir fólk með þá menntun og þekkingu hlýtur til dæmis að hafa áhrif á þróun námsgreinarinnar. Áhrif sem væntanlega verða ekki þau sömu og í löndum þar sem þróunin hefur orðið önnur í þeim efnum en hér á landi, til dæmis í BNA. Með hliðsjón af þróuninni hér á landi og þeim þætti í kenningu Abbotts um kerfi fagstétta að besta vörnin gegn innrásum annarra fagstétta í eigið óðal og jafn­ framt öflugasta vopnið við að ná öðrum óðulum á sitt vald sé afstrakt þekking sem nýta má á víðum vettvangi er einboðið að efla kennslu í kjarnasviðum náms­ greinarinnar við uppbyggingu, skipulag geymdar ﴾skrán­ ingu, flokkun og lyklun﴿, heimtur og miðlun þekkingar og upplýsinga. Þekkingu sem aðrar fagstéttir búa ekki yfir, en mikil þörf er á víða í þjóðfélaginu. Það þarf að gera á þann hátt að námsefnið sé ekki eingöngu bundin við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.