Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 30

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 30
Bókasafnið 38. árg. 2014 30 tvær kannanir gefa upplýsingar um þróun starfsvettvangsins og mönnun hans á umræddu tímabili. Ég hafði einnig gert könnun í starfi mínu á Bókasafni Landspítala, sem fyrr er getið á notkun tímarita á pappír ann­ ars vegar og rafrænnar útgáfu þeirra hins vegar skólaárið 2000­2001. Þessa rannsókn vann ég upp til þess að nota í doktorsritgerðinni. Það kemur nátt­ úrulega fram geysileg breyting á störf­ um fólks í bókasöfnum við það að efni verður rafrænt, það þarf ekki lengur að manna vaktir á kvöldin og um helgar og það þarf ekki að raða upp þessum ra­ fræna safnkosti, það þarf heldur ekki að fara yfir hvort tímaritaheftin hafi skilað sér eins og gert var áður, skrá heftin inn þegar þau bárust, rukka inn hefti sem ekki skiluðu sér eða gera annað sem tengdist pappírsáskriftum. Auk þess drógust millisafnalán verulega saman þegar stór hluti efnis var orðin rafrænn, auk þess sem ákvæði var í okkar samningi um að ekki mátti nota áskriftarritin í millisafnalánum. Það er bara fullt af störfum sem hverfa með tilkomu raf­rænnar út­ gáfu og miðlunar. Þriðja megindlega rannsóknin var á þróun útgáfu­ eininga, þar sem sérstaklega var skoðuð þróun á hlut­ falli af markaðsútgáfu annars vegar og utanmarkaðsútgáfu hins vegar hér á landi ásamt þróun markaðsútgáfu erlendis á þekkingu sem verður til hér á landi. Rannsóknin náð einnig til nýtingar á einkaleyfa­ umsóknum hér á landi í því skyni að miðla nýrri þekk­ ingu á tímabilinu 1944­2001. Eigindlega rannsóknin var gerð síðast til þess að leita skýringa á niðurstöðum megindlegu rannsóknanna, með því að afla upplýsinga um viðhorf valinna forstöðu­ manna í starfi á rannsóknasviðinu og tveggja notenda með viðtalskönnun. Breytingar á námi Ég er þeirrar skoðunar að fólk í okkar þjóðfélagi þurfi á góðri fagmenntun að halda til viðbótar við nám í bókasafns­ og upplýsingafræði, eða upplýsingafræði eins og greinin er nefnd núna. Það er ekki nóg að hafa 60 einingar í aukagrein til viðbótar við 120 einingar í upplýsingafræði. Mér finnst þurfa meira. Ég hef trú á því að þessi breyting muni skila öflugra fólki út á vinnu­ markaðinn og í rannsóknir hér á landi. Ég er mjög hlynnt því að námið færist á framhaldsstig eingöngu. Í nútímaþjóðfélagi er þörf á meiri þekkingu og þess vegna meiri menntun starfsfólks en áður var. Til sam­ ræmis við það eru margar háskólagreinar búnar að færa sig alfarið yfir á meistarastigið. Námið í upplýsingafræði þarf að haldast í hendur við þjóðfélagsþróunina. Á þeim tíma sem breytingin var gerð var ekki möguleiki á því að halda áfram bæði með grunnnám og framhaldsnám. Til þess hefði þurft að ráða fleiri kennara og hafa námsleið­ irnar aðskildar. Auk þarfar á meira menntuðu starfsfólki í nútíma þjóðfélagi hafa undanfarin ár verið fleiri nemend­ ur á framhaldsstigi en í grunnnámi. Þegar námið færðist á meistarastigið komu fram rök um þörf á breytingu á nafninu til þess að undirstrika að breytingar muni eiga sér stað á náminu; að ekki væri bara verið að flytja það yfir á meistarastigið, það væri líka verið að breyta náminu á annan hátt. Og þá varð heitið upplýsingafræði ofan á. Mér finnst breytingar á atvinnumöguleikum, og ekki bara þeim heldur líka þörfum þjóðfélagsins, kalla á aukna þörf á að skipuleggja þekkingu og upplýsingar til geymslu á þann hátt að finna megi aftur með auðveldu móti. Þess vegna finnst mér að innan upplýsingafræð­ innar verði að kenna aðferðir við það; mér finnst það vera aðalatriðið í náminu. Sú þekking og færni sem að því lýtur er það sem aðrar greinar hafa ekki. Hún er ein­ stök. Það eru kenningar og kerfi við að skipuleggja geymsluna þannig að efnið finnist á auðveldan hátt aft­ Doktorsvörnin. Stefanía ásamt Lindu Rafnsdóttur, forseta Félags- og mannvísindadeildar og andmælendum, Karen Markey og Hermanni Óskarssyni. Ljósmyndari: Kristinn Ingvarsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.