Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2012, Qupperneq 4
stjórinn fékk
jeppa eftir
risatap
4 Fréttir
Lýsir losta á Facebook-síðu
n Catalina Mikue Ncogo er frjáls
C
atalina Mikue Ncogo, sem hlaut
þriggja og hálfs árs dóm í júní
2010, fyrir hórmang og fíkni-
efnabrot, hefur lokið afplánun
og er því frjáls ferða sinna.
Catalina er skráð með lögheim-
ili í Hafnarfirði þar sem hún á íbúð
í fjölbýlishúsi í Vallahverfinu. Hún
sást koma út úr útibúi Landsbankans
fyrir rúmri viku með skjöl í hendi,
setjast upp í jeppabifreið hjá mið-
aldra manni. Einnig sást til henn-
ar í verslunarmiðstöð þar sem hún
keypti þrjú pör af kvenskóm, en at-
hygli vakti að skórnir voru allir í mis-
munandi stærð.
Hún virðist því smám saman vera
að aðlaga líf sitt frelsinu og tengjast
umheiminum á ný. Nýlega stofnaði
hún nýja Facebook-síðu og hljóðar
hennar fyrsta stöðuuppfærsla, sem
hún setti inn á þriðjudaginn, á þá
leið að hana langi að stunda kynlíf,
eða: „Im so horny maaaan !!“ Einn-
ig setti hún mynd af ókunnri konu í
nærfötum einum klæða, en ekki er
vitað í hvaða tilgangi myndin er sett
inn eða hvernig hún tengist Catalinu.
Catalina hélt úti umsvifamikilli
vændisstarfsemi á árunum 2008 til
2009 og rak vændishús á fjórum mis-
munandi stöðum á þessu tímabili.
Hún var einnig ákærð fyrir mansal
en ein kvennanna sem hún seldi í
vændi lýsti því í skýrslutöku hjá lög-
reglu að Catalina hefði kúgað hana til
vændis með því að „… hóta henni líf-
láti og líkamsmeiðingum, sparka og
slá í líkama hennar, svipta hana frelsi
sínu og koma í veg fyrir samskipti
hennar við aðra en viðskiptavini
vændisstarfseminnar, meðal annars
með því að læsa hana inni í herbergi,
meina henni að yfirgefa íbúðina og
banna henni að borða, sofa og nota
salerni nema með leyfi ákærðu.“
Í tilefni Dags Tónlistarskólanna laugardaginn
25. febrúar n.k. verður opið hús í Tónlistarskóla
FÍH að Rauðagerði 27 frá kl. 14:00 – 16:00.
Gestum og gangandi er boðið að koma og skoða
skólann, hlýða á tónlist og njóta léttra veitinga.
Boðið verður upp á fjölbreytta efnisskrá samspilsbanda,
söng- og einleiksatriða sem í gangi verða í tveimur
sölum skólans samtímis.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Opið hús
í Tónlistarskóla FÍH
G
uðmundur Þ. Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna,
keyrir um á milljóna króna
bíl frá lífeyrissjóðnum. Bíll-
inn var keyptur á síðasta ári, nokkr-
um mánuðum áður en svört skýrsla
um gríðarlegt tap sjóðsins var birt.
Samkvæmt upplýsingum frá lífeyr-
issjóðnum er um að ræða Toyota-
jeppabifreið. Í svari frá upplýsinga-
fulltrúa sjóðsins segir að enginn
annar starfsmaður njóti bifreiðafríð-
inda líkt og framkvæmdastjórinn.
„Þetta er minni tegundin af To-
yota-jeppanum. Land Cruiser 150,“
segir Þórhallur B. Jósepsson, upplýs-
ingafulltrúi Lífeyrissjóðs verslunar-
manna. „Þar verð ég bara að vísa þér
á DV því ég held að hvergi hafi komið
fram ítarlegri upplýsingar um það en
í DV á fyrrihluta ársins 2009,“ sagði
hann svo aðspurður um bílafríðindi
fyrri framkvæmdastjóra sjóðsins.
„Þetta hefur komið svo margoft fram
opinberlega að við látum alveg vera
að tala um það núorðið.“
Dýrmætari en meðalárstekjur
Lífeyrissjóður verslunarmanna, sem
er einn af stærstu lífeyrissjóðum
landsins, tapaði áttatíu milljörðum
króna í hruninu. Það kom hins vegar
ekki í veg fyrir að sjóðurinn fjárfesti í
rúmlega tíu milljóna króna jeppabif-
reið fyrir framkvæmdastjórann. Ekki
er ljóst af hverju stjórnendur lífeyris-
sjóðsins telja framkvæmdastjórann
þurfa á jeppabifreið að halda, sem
sérstaklega er auglýst fyrir lúxus og
aksturseiginleika í erfiðum aðstæð-
um.
Samkvæmt upplýsingum frá
Toyota-umboðinu á Íslandi kostar
ódýrasti Land Cruiser-jeppinn 10,3
milljónir króna. Listaverð dýrustu út-
gáfu bílsins er hins vegar rúmlega 13
milljónir króna. Sama hvort bíllinn
kostaði 10 milljónir eða 13 milljónir
er ljóst að verðmæti hans er meira
en tvöfalt það sem meðallaunamað-
ur á íslenskum vinnumarkaði hef-
ur í árstekjur, en samkvæmt upplýs-
ingunum frá 2010 voru meðallaun
á vinnumarkaði 348 þúsund krónur
á mánuði, eða tæplega 4,2 milljónir
króna á ári.
Svara ekki meiru
Fyrirrennari núverandi fram-
kvæmdastjóra í starfi, Þorgeir Eyjólfs-
son, ók ódýrari bíl en Guðmund-
ur. DV greindi frá því árið 2009 að
í janúar sama ár hefði verið keypt-
ur 7,9 milljóna króna Cadillac Esca-
lade fyrir þáverandi forstjóra. Sam-
kvæmt upplýsingum frá þáverandi
stjórnarformanni sjóðsins, Gunnari
Páli Pálssyni, var Cadillac-bifreiðin í
sama klassa og fyrri bílar sem fram-
kvæmdastjórinn hafði þá haft til af-
nota.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náði
blaðamaður ekki tali af Guðmundi
vegna málsins.
Lengi að
borga af
bifreiðinni
n Ef kostnaður bílsins er skoðaður í
samhengi við iðgjöld sjóðsfélaga kemur
í ljós að sjóðsfélagi sem er með 348.000
krónur í mánaðarlaun, sem voru meðal-
laun launþega á íslenskum vinnumark-
aði árið 2010, er rúmlega 20 ár að borga
fyrir bílinn. Miðað við endurnýjun fyrri
framkvæmdastjóra sjóðsins verður þó
búið að skipta um bílinn um það bil 20
sinnum á þeim tíma. Þessir útreikningar
miðast við 12 prósent iðgjaldagreiðslur
launþega og atvinnurekenda til sjóðsins
í hverjum mánuði. Byggja þeir á gögnum
frá Hagstofu Íslands um laun á ís-
lenskum vinnumarkaði árið 2010.
n Sé dæmið reiknað – miðað við sömu
forsendur og að framan – út frá algeng-
ustu launum fólks á vinnumarkaði, sem
voru á bilinu 175–225 þúsund krónur árið
2010, kemur í ljós að það tekur flesta
launamenn í lífeyrissjóðnum 32 til 40
ár að borga fyrir bílinn með iðgjöldum
sínum.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
n Lífeyrissjóðurinn keypti 10 milljóna jeppa eftir 80 milljarða tap
Á dýrari bíl Bíllinn sem Guð-
mundur Þórhallsson ekur um á
er rúmlega tveimur milljónum
króna dýrari en sá sem forveri
hans hjá sjóðnum hafði til
umráða.
Milljónafríðindi Fram-
kvæmdastjórinn Guðmundur
Þórhallsson hefur rúmlega tíu
milljóna króna bíl frá sjóðnum
til umráða.
24.–26. febrúar 2012 Helgarblað
Laus Catalina Mikue Ncogo lætur allt
flakka á Facebook.
Málverk Sæv-
ars boðið upp
Málverkið Fantasía eftir Sævar Cie-
sielski er á uppboði í Gallerí Fold
þessa dagana. Málverkið er fyrsta
málverk Sævars sem boðið er upp,
en hann mun
hafa málað
nokkur mál-
verk. Hæsta
boð í verkið er
um 30 þúsund
krónur sem
stendur, en það
er á svokölluðu
vefuppboði.
Sævar lést í sumar af slysförum
en hann varð þekktur í íslensku
þjóðfélagi þegar hann var einn af
sakborningunum í Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu svokallaða á átt-
unda áratugnum, en það mál er eitt
stærsta og flóknasta sakamál í sögu
þjóðarinnar og hafa fá mál haft jafn-
mikil áhrif á þjóðarsálina. Sævar
hélt ávallt fram sakleysi sínu og nú
starfar sannleiksnefnd sem hefur
það að markmiði að fara yfir gögn
málsins. Meðfylgjandi er skjáskot af
verkinu af vef Gallerís Foldar.
Íslendingar
á yfirdrætti
Fjárráða Íslendingar skulduðu
að meðaltali um 310 þúsund
krónur í yfirdrátt um síðustu ára-
mót. Síðustu sex mánuði síðasta
árs jukust þessi lán um tæpa
tuttugu milljarða. Miðað við nú-
verandi vaxtastig á yfirdráttarl-
ánum, sem er á bilinu 11 til 12
prósent, greiðir meðal Íslending-
ur um 36 þúsund krónur í vexti á
ársgrundvelli. Yfirdráttarlán eru
meðal dýrustu lána sem völ er á.
Íslendingar skulda nú, sam-
kvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum, um 70 milljarða
króna í yfirdráttarlán. Af þeirri
upphæð borga þeir um 8 millj-
arða króna í vexti á árinu, ef
vextir haldast óbreyttir.