Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2012, Blaðsíða 27
Úttekt 27Helgarblað 24.–26. febrúar 2012
Hátt í 200 Formúlu 1 útsend-
ingar verða á Stöð 2 Sport
um Formúlu 1 á tímabilinu,
en sautján mót eru á dagskrá
í ár. Útsendingar hefjast í
Rásmarkinu, sem er þáttur á
mannlegu nótunum á fimmtu-
dagskvöldum. Í honum er rætt
við áhugamenn, ökumenn,
tæknimenn og forráðamenn
keppnisliða.
Skyggnst er á bak við tjöldin og
rýnt í nýjungar, reglur ræddar og
landið og brautin sem keppt er í
skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
Þá munu íslenskir áhugamenn
spreyta sig í ökuhermum í hverj-
um þætti og verður stílað inn á að
fá fræga einstaklinga til leiks.
BEINAR ÚTSENDINGAR OG ÞÆTTIR
Á föstudögum verður íslensk sam-
antekt með því besta frá æfingum
föstudags og þá skyggnst í bílskúra
keppnisliða og fylgst með því sem
fyrir augu ber á fyrstu tveimur
æfingum helgarinnar. Á laugar-
dögum er sýnt beint frá lokaæf-
ingu keppnisliða þar sem bílarn-
ir eru fínstilltir og prófaðir fyrir
tímatökuna. Þá er líka sýnt beint
frá tímatökunni með tilheyrandi
upphitun.
Á sunnudögum er sýnt beint frá
kappakstrinum og hitað upp í hálf-
tíma. Í upphitun er rætt við Íslend-
inga á mótstað og farið yfir ýmiss
konar tölfræði og upplýsingar í
máli og myndum. Eftir kappakst-
urinn er mótið krufið til mergjar
af sérfræðingum Stöðvar 2 Sport
og er sá þáttur í beinni útsendingu.
Farið er yfir helstu atvik og mótið
skoðað með hliðsjón af tölfræði og
nýjum upplýsingum sem berast
eftir keppni. Umsjónarmenn þátt-
arins eru Gunnlaugur Rögnvalds-
son, Rúnar Jónsson og Halldóra
Matthíasdóttir.
MARGMIÐLUN UPPLÝSINGA
Tímatakan og kappakstur er í
beinni útsendingu í opinni dagskrá
og endursýningar frá þeim við-
burðum eru í opinni dagskrá. Allir
þættir, Rásmarkið, samantekt frá
æfingum, lokaæfing og Endamark-
ið, eru í læstri dagskrá.
Auk beinna útsendinga á Stöð
2 Sport er fjallað um Formúlu 1 á
reglubundinn hátt í þætti Rúnars
Róbertssonar á Bylgjunni klukkan
13.30 á fimmtudögum og mánudög-
um þegar mót fara fram. Heimir
Karlsson og Kolbrún Björnsdóttir
taka slaginn á föstudagsmorgnum
klukkan 07.20.
Reglulegar fréttir eru á www.
visir.is um Formúlu 1 og ítarleg-
ar upplýsingar um mót, brautir
og ökumenn og fréttir eru á www.
kappakstur.is. Þá hefur síðan
Formula 1 Ísland verið stofnuð á
Facebook.
25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR4
Dagsetning Land Braut Brautarlengd
26.-29. mars Ástralía Melbourne 5.303 km
2.-5. apríl Malasía Sepang 5.543 km
17.-19. apríl Kína Sjanghaí 5.451 km
24.-26. apríl Barein Barein 5.412 km
8.-11. maí Spánn Catalunya 4.655 km
22.-24. maí Mónakó Monte-Carlo 3.340 km
5.-7. júní Tyrkland Istanbúl 5.338 km
19.-21. júní Bretland Silverstone 5.141 km
9.-12. júní Þýskaland Nürburgring 5.148 km
24.-26. júní Ungverjaland Hungaroring 4.381 km
20.-23. ágúst Evrópa Valencia 5.419 km
27.-30. ágúst Belgía Spa-Francorchamps 7.004 km
10.-13. september Ítalía Monza 5.793 km
24.-27. september Singapúr Marina höfn 5.067 km
2.-4. október Japan Suzuka 5.807 km
16.-18. október Brasilía Interlagos 4.309 km
30. okt.-1. nóv. Abú Dabí* Yas Marina 5.554 km
*Nýr mótstaður
FORMÚLU 1 TÍMABILIÐ 2009
Hátt í 200 Formúlu 1 útsend-
ingar verða á Stöð 2 Sport
um Formúlu 1 á tímabilinu,
en sautján mót eru á dagskrá
í ár. Útsendingar hefjast í
Rásmarkinu, sem er þáttur á
mannlegu nótunum á fimmtu-
dagskvöldum. Í honum er rætt
við áhugamenn, ökumenn,
tæknimenn og forráðamenn
keppnisliða.
Skyggnst er á bak við tjöldin og
rýnt í nýjungar, reglur ræddar og
landið og brautin sem keppt er í
skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
Þá munu íslenskir áhugamenn
spreyta sig í ökuhermum í hverj-
um þætti og verður stílað inn á að
fá fræga einstaklinga til leiks.
BEINAR ÚTSENDINGAR OG ÞÆTTIR
Á föstudögum verður íslensk sam-
antekt með því besta frá æfingum
föstudags og þá skyggnst í bílskúra
keppnisliða og fylgst með því sem
fyrir augu ber á fyrstu tveimur
æfingum helgarinnar. Á laugar-
dögum er sýnt beint frá lokaæf-
ingu keppnisliða þar sem bílarn-
ir eru fínstilltir og prófaðir fyrir
tímatökuna. Þá er líka sýnt beint
frá tímatökunni með tilh yrandi
upphitun.
Á sunnudögum er sýnt beint frá
kappakstrinum og hitað upp í hálf-
tíma. Í upphitun er rætt við Íslend-
inga á mótstað og farið yfir ýmiss
konar tölfræði og upplýsingar í
máli og myndum. Eftir kappakst-
urinn er mótið krufið til ergjar
af sérfræðingum Stöðvar 2 Sport
og er sá þáttur í beinni útsendingu.
Farið er yfir helstu atvik og mótið
skoðað með hliðsjón af tölfræði og
nýjum upplýsingum sem berast
eftir keppni. Umsjónarmenn þátt-
arins eru Gunnlaugur Rögnvalds-
son, Rúnar Jónsson og Halldóra
Matthíasdóttir.
MARGMIÐLUN UPPLÝSINGA
Tímatakan og kappakstur er í
beinni útsendingu í opinni dagskrá
og endursýningar frá þeim við-
burðum eru í opinni dagskrá. Allir
þættir, Rásmarkið, samantekt frá
æfingum, lokaæfing og Endamark-
ið, eru í læstri dagskrá.
Auk beinna útsendinga á Stöð
2 Sport er fjallað um Formúlu 1 á
reglubundinn hátt í þætti Rúnars
Róbertssonar á Bylgjunni klukkan
13.30 á fimmtudögum og mánudög-
um þegar mót fara fram. Heimir
Karlsson og Kolbrún Björnsdóttir
taka slaginn á föstudagsmorgnum
klukkan 07.20.
Reglulegar fréttir eru á www.
visir.is um Formúlu 1 og ítarleg-
ar upplýsingar um mót, brautir
og ökumenn og fréttir eru á www.
kappakstur.is. Þá hefur síðan
Formula 1 Ísland verið stofnuð á
Facebook.
25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR4
Dagsetning Land Braut Brautarlengd
26.-29. mars Ástralía Melbourne 5.303 km
2.-5. apríl Malasía Sepang 5.543 km
17.-19. apríl Kína Sjanghaí 5.451 km
24.-26. apríl Barein Barein 5.412 km
8.-11. maí Spánn Catalunya 4.655 km
22.-24. maí Mónakó Monte-Carlo 3.340 km
5.-7. júní Tyrkland Istanbúl 5.338 km
19.-21. júní Bretland Silverstone 5.141 km
9.-12. júní Þýskaland Nürburgring 5.148 km
24.-26. júní Ungverjaland Hungaroring 4.381 km
20.-23. ágúst Evrópa Valencia 5.419 km
27.-30. ágúst Belgía Spa-Francorchamps 7.004 km
10.-13. september Ítalía Monza 5.793 km
24.-27. september Singapúr Marina höfn 5.067 km
2.-4. október Japan Suzuka 5.807 km
16.-18. október Brasilía Interlagos 4.309 km
30. okt.-1. nóv. Abú Dabí* Yas Marina 5.554 km
*Nýr mótstaður
FORMÚLU 1 TÍMABILIÐ 2009
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum
Baki snúið í Jón Baldvin
n Jón Baldvin sviptur heiðurssæti n Ingibjörg Sólrún og Jón Baldvin gerðu samkomulag n Bréfunum dreift
1994
Jón Baldvin snertir Guð-
rúnu, tíu ára, óeðlilega
mikið, að sögn hennar.
1996
Jón Baldvin er sæmd-
ur æðstu heiðursorðu
Eystrasaltsríkjanna
Eistlands, Lettlands
og Litháen.
1997–1998
Að sögn Guð-
rúnar var Jón
Baldvin í og
við herbergið
hennar á meðan
hún svaf.
1998–2002
Sendiherra Ís-
lands í Bandaríkj-
unum og Mexíkó.
1998
Jón Baldvin
sendir Guðrúnu
fimm bréf, þrjú
frá sendi-
ráðsbústaðnum
í Washington.
Guðrún var
fjórtán ára. 1999
Að sögn Guð-
rúnar reyndi
Jón Baldvin að
kyssa hana, þá
15 ára að aldri.
2001
Jón Baldvin sendi
Guðrúnu þrjú bréf, þar
af eitt frá Tallinn. Hún
var þá sautján ára.
2002–2005
Jón Baldvin varð
sendiherra Íslands
í Finnlandi og
Eystrasaltsríkjunum.
2005
Guðrún lýkur stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti.
2005
Guðrún kærði
Jón Baldvin fyrir
kynferðisbrot. Hún
var þá 21 árs.
2006
Ríkissaksóknari
fyrirskipaði lög-
reglurannsókn á
málinu. Lögreglan
óskar upplýsingum frá
dómsmálráðuneytinu
sem áfram sendi
fyrirspurnina til utan-
ríkisráðuneytisins.
2007
Utanríkisráðuneytið svarar
fyrirspurninni og ríkissak-
sóknari fellir málið niður.
2007–2012
Guðrún
lýkur B.A.-námi
í arkitektúr frá
Listaháskól-
anum í Berlín.
2012
Guðrún stígur fram
í tímaritinu Nýju Lífi
og birtir bréf Jóns
Baldvins.
hann hafa strunsað út úr salnum
strax eftir fyrsta upplestur á tölum,
svo tekið var eftir.
Hefur nokkrum
sinnum komið til tals
Jón segir samskipti hans við stúlk-
una hafa reglulega komið upp á
undanförnum árum. „Já, já, þetta
er tólf ára gamalt mál,“ svarar Jón
Baldvin aðspurður hvort hann hafi
verið minntur á ásakanir á hendur
honum í tengslum við stjórnmála-
feril hans. Hann segist sjálfur hafa
orðið þess var að bréfin væru í um-
ferð og að fjölmargir hefðu séð þau.
„Þeim hefur verið dreift, þau hafa
verið fjölfölduð og fjöldi fólks hefur
lesið þau. Það hefur alltaf borist til
mín í tengslum við einhver pólitísk
mál. Fyrir kosningar 2007, og próf-
kjör 2009. Og þá vofði alltaf yfir sú
spurning; Tja, ef þú hefur þig ekki
hægan þá verður þetta birt,“ segir
Jón Baldvin um hvort hann viti til
þess að aðilar tengdir stjórnmálum
hafi séð bréfin.
Sjálfur segist hann hafa fjölfald-
að bréfin og leyft aðilum sem heit-
ið hafi milligöngu um sáttaumleit-
anir við fjölskyldu stúlkunnar sem
Jón á að hafa áreitt kynferðislega.
„Ég skrifaði þegar í stað afsökun-
arbréf til stúlkunnar. Seinna skrif-
aði ég bréf til föður hennar. Ég hef
boðist til þess að hitta fjölskylduna
með hverjum þeim sem þau hefðu
viljað, sálfræðingum, lögfræðingum
eða félagsfræðingum.Við þetta hef
ég sjálfur látið fjölfalda þessi bréf og
dreift til þeirra sem boðist hafa til að
hafa milligöngu um sátt í málinu.“
J
ón Baldvin Hannibalsson, fyrr-
verandi ráðherra og sendiherra,
segir Guðrúnu Harðardóttur
hafa haft frumkvæði að bréfa-
skriftum hans til hennar þegar hún
var 14 ára. Hún hafi beðið hann um
að skrifa sér bréf því hún hafði löng-
un til að skrifa. „Ég varð við þessari
beiðni og hvatti hana til ritstarfa,“
segir Jón en segir að það verið dóm-
greindarleysi af hans hálfu að verða
við beiðninni.
Hvatti hana til að skrifa dagbók
„Þegar hún var í síðasta bekk grunn-
skóla þá var hún kosin í ritnefnd og
hún sagði við mig að hún hefði mikla
löngun til þess að skrifa. Ég vissi
ekki þá að hún ætti erfitt með það.
En ég skrifaði henni þá af því tilefni
og hvatti hana eindregið til þess og
sagði að besta leiðin til þess væri að
halda dagbók. Trúa dagbók fyrir sín-
um hugrenningum, hugleiðingum,
vonum, draumum og þjálfa sig upp
með þeim hætti.“
Sendi bréf í Hagaskóla
Í umfjöllun Nýs Lífs er birt brot úr
bréfi Jóns Baldvins til Guðrúnar
sem dagsett er 15. nóvember 1998.
Þar skrifar Jón: „Viltu halda þessum
bréfaskriftum leyndum, þangað til
50 árum eftir okkar dag.“
Sama ár sendi hann henni ann-
að bréf, þá á heimilisfang Hagaskóla.
Ástæðu þess af hverju hann sendi
bréfið til hennar í grunnskólann þar
sem hún var nemandi, tilgreindi
hann í bréfinu. Hann taldi að henni
þætti ef til vill óþægilegt að fá þessi
bréf heim til sín.
Má því ætla að Jón hafi fyllilega
gert sér grein fyrir því á þeim tíma
er hann skrifaði bréfin að samskipti
hans við Guðrúnu væru óheppileg
og að best væri að halda þeim leynd-
um. Inntur eftir viðbrögðum við úr
elstu bréfunum sagði Jón: „Ég vil
ekkert kommenta um þetta.“
„Á ekkert erindi við almenning“
Í kjölfar þess að DV greindi frá því,
fyrstur fjölmiðla á miðvikudaginn, að
til stæði að birta umrædda umfjöllun
um bréfin í Nýju Lífi, sendi Jón Bald-
vin yfirlýsingu til fjölmiðla. Þar viður-
kenndi hann að hafa gerst sekur um
dómgreindarbrest með því að verða
við óskum Guðrúnar um bréfaskriftir
þegar hún var á sautjánda ári. Í yfir-
lýsingunni minntist hann ekkert á að
bréfaskriftirnar hefðu í raun hafist
þegar hún var 14 ára.
Í síðustu bréfunum sem Jón Bald-
vin skrifaði Guðrúnu lýsti hann kyn-
lífi sínu og Bryndísar Schram konu
sinnar eftir að hún hafði lesið bókina
In Praise of Stepmother eftir Vargas
Llosa. Þá sendi hann Guðrúnu jafn-
framt bókina.
„Það er nánast óskiljanlegt nema
þú setjir það í samhengi við bókina
sem þessu fylgdi,“ segir Jón Baldvin
aðspurður hvort það hafi ekki ver-
ið óeðlilegt að skrifa ungri frænku
konu sinnar lýsingar á kynlífsathöfn-
um þeirra hjóna. „En það er auðvitað
dómgreindarbrestur og það er það
sem ég hef beðist afsökunar á hundr-
að sinnum og endurtek núna opin-
berlega.“ Jón Baldvin segist sjá eftir
því að hafa skrifað Guðrúnu bréfin.
„En þetta á ekkert erindi við almenn-
ing, ekki frekar en geðveiki dóttur
minnar,“ bætir hann við.
Ekki kynferðisleg áreitni
Jón Baldvin spyr hvaða tilgangi það
þjónar að opinbera málið núna í fjöl-
miðlum. Það hafi farið sína leið í rétt-
arkerfinu í tvígang og því verið vísað
frá. „Ef maður er grunaður um kyn-
ferðislega áreitni eða einhvern refsi-
verðan glæp þá að kæra hann. Það er
búið að gera það. Það er búið að fjalla
um það. Það er búið að leggja fram
vitnisburðinn og það er búið að út-
kljá málið.“
Hann ítrekar þó að á því sem
lúti að persónulegum afleiðingum
málsins fyrir fjölskylduna hafi hann
margoft beðist afsökunar. „Og þessu
dómgreindarleysi, að hafa orði við
þessum tilmælum. En kynferðisleg
áreitni var það ekki.“
soldrun@dv.is
Jón Baldvin vísar
ásökunum á bug„Kynferðisleg áreitni
var þetta ekki.