Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 24.–26. febrúar 2012 Helgarblað
Bloggari safnar fé
n Andrés Helgi var dæmdur fyrir að skrifa um Aratúnsmálið
F
ái þessi dómur að standa verð-
ur hann til að hefta mjög og tak-
marka alla umræðu á vefnum,“
segir Andrés Helgi Valgarðsson
sem í lok nóvember í fyrra var dæmdur
til að greiða samtals 950 þúsund krón-
ur vegna bloggskrifa sinna um Arat-
únsmálið svokallaða. Hann leitar nú
til almennings í von um fjárstyrk fyrir
komandi baráttu fyrir tjáningarfrels-
inu eins og hann orðar það.
Andrés segist ekki sjá fram á að
standa undir lögfræðikostnaði sín-
um sem kominn sé úr böndunum
en Andrés segir í samtali við DV að
hann vilji fara með málið fyrir Hæsta-
rétt í von um að fá dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur hnekkt. Öll fjárframlög,
stór sem smá, muni hjálpa honum.
„Gangi allt að óskum og kostnaður
málskostnaðar fáist greiddur mun ég
endurgreiða alla aðstoð, svo og hlut-
fallslega allt sem hugsanlega verð-
ur umfram það sem ég þarf. Það sem
safnast verður eingöngu notað til að
greiða lögfræðikostnað vegna þessa
máls,“ segir Andrés í tilkynningu sinni.
Hann telur meiðyrðamálsdóminn afar
óréttlátan og mikið ósamræmi sé milli
hans og annarra sambærilegra dóma
þar sem hinir stefndu hafa ýmist verið
dæmdir til að greiða lægri skaðabætur
eða sýknaðir.
„Þeir lögmenn sem ég hef talað
við eru sammála um að dómurinn sé
bæði undarlegur, í innbyrðis ósam-
ræmi og noti hugtök á mjög sérkenni-
legan hátt.“
Andrés óttast að ef dómurinn fái að
standa verði það fólki nánast ómögu-
legt að tjá skoðanir sínar á umdeildum
málefnum án þess að eiga það á hættu
að vera dæmt til að greiða háar skaða-
bætur.
Viljir þú styrkja Andrés Helga þá
hefur hann opnað sérstakan reikning
vegna þessarar söfnunar:
0513-14-403842
kt. 180883-4019.
N
iðurstaðan er nýlega kom-
in til mín, eftir mikla eftir-
gangsmuni,“ segir Helgi
Magnús Gunnarsson vara-
ríkissaksóknari um rann-
sókn embættis ríkissaksóknara
á andláti 33 ára Pólverja í fanga-
geymslu lögreglunnar á Suðurnesj-
um aðfaranótt 6. september síðast-
liðins. Nú fyrst, tæplega 6 mánuðum
eftir að maðurinn lést, er komin nið-
urstaða úr krufningu. Rannsóknin
hefur dregist mikið og að sögn Helga
gæti hún dregist enn frekar í fram-
haldinu vegna annarra skuldbind-
inga hans.
Töf vegna manneklu
„Það hefur verið bið eftir endanleg-
um niðurstöðum úr krufningu hins
látna. Er það tilkomið vegna bágrar
mönnunar réttarmeinafræðinga hér
á landi,“ segir Helgi í svari við fyrir-
spurn DV um stöðu málsins. DV
sagði fyrst frá málinu á sínum tíma
og hefur reglulega fylgt því eftir á
rannsóknarstiginu. Aðspurður hvort
hann telji ekki gagnrýnivert hversu
langan tíma það taki að rannsaka
þegar maður lætur lífið í haldi lög-
reglu segir Helgi að auðvitað sé vilji
til að ljúka málum sem fyrst. Hann
telur þó að ekki sé liðinn mjög lang-
ur tími. „Það er þó ekki í höndum
ákæruvalds að stjórna störfum rétt-
armeinafræðingsins og urðum við að
bíða þeirrar niðurstöðu um líklega
dánarorsök.“
Handtekinn fyrir ölvun
Maðurinn var handtekinn af lögregl-
unni á Suðurnesjum þann 5. sept-
ember síðastliðinn vegna ölvunar og
færður í fangaklefa. Klukkan 23.20
það kvöld, við reglubundið eftir-
lit lögregluþjóns, fannst hann líflaus
í klefanum. Maðurinn svaraði ekki
áreiti og komst ekki til meðvitundar
þrátt fyrir lífgunartilraunir lögreglu
og sjúkraflutningamanna. Lækn-
ir sem kvaddur var á staðinn úr-
skurðaði manninn látinn aðfaranótt
þriðjudagsins 6. september.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
óskaði í kjölfarið eftir því að öðrum
lögreglustjóra yrði falið að annast
rannsókn málsins og hefur embætti
ríkissaksóknara haft yfirumsjón með
því. Þar hefur málið verið í biðstöðu í
hartnær hálft ár.
Saksóknari bundinn í lands-
dómi
Helgi Magnús segir í svari sínu til DV
að hann hafi ekki komist í að taka af-
stöðu til framhaldsins, nú þegar nið-
urstaða krufningarinnar liggi fyr-
ir. Það muni hann hins vegar gera
við fyrsta tækifæri. Það sem vekur
athygli er að biðin gæti enn lengst
vegna annarra skuldbindinga Helga
við landsdómsmálið gegn Geir H.
Haarde, eins og hann segir í svari
sínu: „Þó kann meðferð landsdóms-
málsins að fresta því nokkuð þar sem
ég er bundinn í því máli.“
Spurður nánar út í hver næstu
skref í málinu eru segir Helgi að
nú þurfi að meta hvort niðurstaða
krufningar og þeirrar rannsóknar
sem farið hefur fram, meðal annars
með skýrslutökum af vitnum, gefi til-
efni til frekari rannsóknar, ákæru eða
hvort það sem fram er komið sýni
fram á að rétt sé að fella sakamála-
rannsókn niður. Hann muni senda
fréttatilkynningu þegar niðurstað-
an liggi fyrir. „Það er ekkert hægt að
segja fyrr en þá.“ Af virðingu við hinn
látna geti ákæruvaldið ekki upplýst
um smáatriði málsins.
Aðstandendur í heimalandinu
bíða
Hinn látni átti enga aðstandendur
hér á landi samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk á upphafsstigum máls-
ins. Hann átti þó einhverja kunn-
ingja hér á landi, en virðist annars
hafa verið einn síns liðs.
Aðstandendum hans í Póllandi
var greint frá þessum voveiflega at-
burði með aðstoð pólska sendiráðs-
ins á Íslandi. Aðstandendurnir hafa
því beðið allan þennan tíma í al-
gjörri óvissu um hver dánarorsök
mannsins var. Helgi segir að hann
hafi ekki heyrt frá aðstandendum
mannsins síðan hann tók við málinu
í nóvember.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
n Hálft ár síðan Pólverji lést í klefa n Niðurstaða krufningar nýkomin
Landsdómur tefur
máL Látna fangans
„Þó kann
meðferð
landsdómsmálsins
að fresta því nokkuð
Sex mánuðir Þann 5. september var Pól-
verji handtekinn fyrir ölvun. Eftir miðnætti
var hann úrskurðaður látinn í fangaklefa
lögreglunnar á Suðurnesjum.
Mynd TengiST efni fréTTAr ekki beinT
bundinn Helgi Magnús segir mjög hafa þurft að ganga á eftir niðurstöðu krufningarinnar
sem nýkomin er til hans. Við fyrsta tækifæri tekur hann afstöðu til framhaldsins, tefji lands-
dómsmálið hann ekki.
Snorri kærður
Snorri Óskarsson, jafnan kenndur
við Betel, hefur verið kærður til lög-
reglu vegna ummæla á bloggsíðu
sinni. Það er Pétur Maack, sálfræð-
ingur á Akureyri, sem kærir Snorra,
sem kennir við Brekkuskóla á
Akur eyri. Akureyri vikublað greinir
frá málinu í nýjasta tölublaði sínu.
Í blaðinu er greint frá því að
óvissa virðist vera um það hvar
mörk tjáningarfrelsis liggi og þess
vegna kæri Pétur Maack hann.
Skólayfirvöld sendu Snorra í
sex mánaða leyfi frá störfum vegna
ummæla hans um samkynhneigð
á bloggsíðu sinni.
Mikið hefur verið rætt um tján-
ingarfrelsið vegna þessara um-
mæla hans en í blaðinu er greint
frá því að skólayfirvöld hafi verið
sökuð um gerræði, skoðanakúgun
og jafnvel brot á stjórnarskrárvörðu
tjáningarfrelsi Snorra.
Pétur Maack greinir frá því að
honum sé óheimilt að tjá sig um
málefni sjúklinga sinna og sam-
bærilegar skorður við tjáningar-
frelsið séu fjölmargar. Tjáningar-
frelsið sé ein af grundvallarreglum
stjórnarskrárinnar. En tjáningar-
frelsið sé ekki óskert. „Að sama
skapi má ætla að sá sem tekið hef-
ur að sér kennslu í grunnskóla hafi
framselt rétt sinn til að tjá skoðanir
sem ganga jafn augljóslega gegn
hagsmunum hluta nemendahóps-
ins og bloggskrif Snorra gera,“ segir
Pétur við Akureyri vikublað.
Safnar Andrés Helgi telur að dómurinn sé
óréttlátur. Hann biðlar nú til almennings
um aðstoð.
Borgin fékk
verðlaun
Jón Gnarr borgarstjóri tók á mið-
vikudag við EDI-verðlaununum
sem ICEPRO veitir fyrir fyrir fram-
úrskarandi rafræn viðskipti. Á síð-
ustu tveimur árum hefur Reykja-
víkurborg tekið forystu á Íslandi
við að innleiða rafræna reikninga.
Sparnaður borgarinnar og birgja
hennar nemur tugum milljóna
á ári vegna þessa. Í tilkynningu
frá borginni kemur fram að í stað
þess að taka á móti reikningum á
pappírsformi taki borgin nú við
60 þúsund reikningum á rafrænu
formi. Það er samt ennþá innan
við helmingur af þeim reikning-
um sem borginni berast en þeir
eru um 200 þúsund á ári. Borgin
stefnir að því að fá flestalla reikn-
inga á rafrænt form innan tíðar.
Djúpnærandi Silki-
andlitsolía serum
með blágresi og
rauðsmára ásamt vítamín-
ríkum apríkósu- og argan-
olíum, sem þekktar eru
fyrir nærandi og yngjandi
áhrif á húðina.