Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2012, Side 29
borð við Newsweek og International
Herald Tribune. „Ísland sannar að
efnahagsleg kraftaverk geta gerst og
það hratt! Það er gaman að hafa það
í huga þegar björgunarpakki Grikkja
er skoðaður, en því er haldið fram að
það muni líða ár eða jafnvel áratugir
þar til Grikkland nær sér á strik. Það
sama á við um önnur illa stæð Evr-
ópuríki.“
Jon Nadler skrifar á vefinn resour-
ceinvestor.com að ef hægt sé að taka
eitthvað jákvætt út úr kreppunni sé
það efnahagsleg endurreisn Íslands.
„Landið hefur risið úr öskustónni á
undraskömmum tíma. Ísland hefur
ekki neyðst til að selja erlendum fjár-
festum eignir landsins til þess að ná
í peninga. Stórvirkar – jafnvel óhugs-
andi – aðgerðir? Heldur betur,“ segir
hann og tekur dæmi um hvernig Ís-
land hefur tekið af krafti á hrunsmál-
um með rannsókn á málunum og
með því að hafa hreinlega leyft bönk-
unum að falla í stað þess að taka á sig
himinháar skuldir.
Ísland eða Írland?
Lánshæfismat Írlands er enn í rusl-
flokki á meðan lánshæfismat Ís-
lands hefur risið upp úr þeim
flokki. Fjallað er um málið í The
Wall Street Journal þar sem efna-
hagsbati Íslands og Írlands er bor-
inn saman. Þar kemst höfundur að
þeirri niðurstöðu að til skemmri
tíma litið sé staða Íslands betri, en
horfurnar á Írlandi séu til lengri
tíma litið góðar, þar sem landið er
með evruna sem gjaldmiðil.
Bæði Ísland og Írland hrundu í
kjölfarið á glórulausri bankastarf-
semi þar sem áhættusæknir banka-
menn fóru mikinn. Bæði lönd voru
í þeirri stöðu að bankakerfin voru
miklu stærri en landsframleiðslan.
Ógæfa Írlands var sú að bankakerf-
ið þar í landi var ekki svo ofvaxið
að ríkið gæti ekki bjargað því. Á Ís-
landi, þar sem bankakerfið var 10
sinnum stærra en landsframleiðsl-
an, átti ríkisstjórnin engra annarra
kosta völ en að leyfa því að falla og
láta kröfuhafa bankanna taka skell-
inn.
Endurreisn bankakerfisins hef-
ur verið hlutfallslega svipuð hér á
landi og á Írlandi. Alls kostaði end-
urreisn bankakerfisins 45 prósent
af landsframleiðslu á Íslandi en
um 40 prósent á Írlandi. Í báðum
ríkjum varð skarpur samdráttur í í
kjölfar kreppunnar, 12–13 prósent í
heildina.
Bæði ríkin glíma við miklar
skuldir, þó að staðan hér á landi sé
talsvert skárri. Helsti munurinn er
sá að á meðan hagvöxtur mældist 3
prósent á Íslandi í fyrra var hann 1
prósent á Írlandi.
Ísland glímir hins vegar enn við
mörg vandamál. Gjaldeyrishöftin
hindra fjárfestingu en afnám þeirra
gæti líka valdið því að gengi krón-
unnar hrynji enn meira. Icesave-
málið er enn óleyst og svo gæti far-
ið að Ísland yrði dæmt til að greiða
tugi milljarða króna.
NiðurskurðuriNN hefur öfug áhrif
Erlent 29Helgarblað 24.–26. febrúar 2012
Ekta fiskur ehf - Hauganesi v/Eyjafjörð - Sími: 466 1016 - www.ektafiskur.is
Ektafiskur hefur ætíð og eingöngu
notað vottað matvælasalt frá
Saltkaupum í allar sínar vörur!
Þessigamligóði
virðing
gæði
Líklega minnsti
maður veraldar
Fulltrúar Heimsmetabókar
Guinness eru væntanlegir til
Nepal um helgina til að fram-
kæma hæðarmælingu á Chandra
Bahadur Dangi sem er 72 ára.
Dangi vill fá staðfest hjá Heims-
metabókinni að hann sé minnsti
maður veraldar, en samkvæmt
frétt AP er hann einungis 56
sentímetrar á hæð.
Dangi hefur alla tíð búið í af-
skekktu þorpi í vesturhluta Nepal
og raunar alltaf verið í þorpinu.
Hann er nú kominn til höfuð-
borgarinnar Katmandu til að
hitta forsvarsmenn Heimsmeta-
bókarinnar, en mælingin fer
fram á laugardag. Dangi, sem
hefur aldrei verið við kvenmann
kenndur, býr með eldri bróður
sínum og fjölskyldu hans í þorp-
inu Rhimkholi. Það var farand-
verkamaður sem kom til þorps-
ins sem vakti athygli fjölmiðla í
Katmandu á málinu og settu þeir
sig í samband við forsvarsmenn
Heimsmetabókar Guinness. Op-
inberlega er Junrey Balawing frá
Filippseyjum minnsti maður ver-
aldar, 60 sentímetrar á hæð, en
það mun koma í ljós um helgina
hvort Dangi verðskuldar nafn-
bótina.
„Mamma, ég
elska þig“
Sextán ára piltur svipti sig lífi
með því að fleygja sér fram af
Beachy Head-klettunum í Aust-
ur-Sussex í september síðastliðn-
um. Við réttarrannsókn málsins á
Englandi á fimmtudag kom fram
að hann hafði sent móður sinni
SMS-skilaboð andartaki áður
en hann stökk fram af brúninni.
Fallið var rúmir 150 metrar.
„Mamma, ég elska þig,“ voru
hinstu skilaboð hans til móð-
ur sinnar en pilturinn, Niko-
las Brkic, var króatískur nemi á
Englandi. Fyrr um morguninn
þennan örlagaríka dag, 5. sept-
ember, hafði hann vakið móð-
ur sína Jasminu til að kveðja.
Strandgæslumenn fundu lík hans
í fjöruborðinu nokkrum dögum
síðar, þann 13. september. Á hon-
um fannst kveðjubréf.
Brkic hafði ekki glímt við geð-
sjúkdóma en mun hafa glímt við
vanlíðan og depurð um nokkurt
skeið.
Grikkland Hvorki gengur né rekur
hjá Grikkjum. Skuldir aukast þrátt fyrir
niðurskurð. Þessu er öfugt farið á Ís-
landi, þar sem skuldir hafa ekki hækkað
hlutfallslega.
„ Ísland sannar
að efnahagsleg
kraftaverk geta gerst og
það hratt!
n Myndin sýnir skuldir Íslands, Írlands, Grikklands og Portúgals sem hlutfall af vergri landsframleiðslu (VLF). Gott er að bera saman
hversu þungar byrðar skuldirnar eru á hverju landi með því að nota þennan samanburð. Oft er miðað við að ríki séu komin að ystu
þolmörkum hvað varðar skuldir þegar þetta hlutfall er komið yfir 90 prósent af landsframleiðslu. Í ríkjunum þremur sem Ísland ber
sig saman við hefur verið ráðist í gífurlegar niðurskurðaraðgerðir. Það hefur haft í för með sér að hagkerfi ríkjanna hefur minnkað og
skuldirnar því orðið illviðráðanlegri. Það hefur ekki gerst á Íslandi.
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
%
Ríkisskuldir
Íslands
Ríkisskuldir
Grikklands
Ríkisskuldir
Portúgals
Ríkisskuldir
Írlands
20
12
20
12
20
12
20
12
20
10
20
10
20
10
20
10
82
,3
%
10
5 % 11
0
%
15
9
%
13
9
%
81
% 88
% 91
%
Atvinnuleysi
7,3 %
14,2 %
14 %
20,9 %
Öfug þróun á Íslandi