Frjáls verslun - 01.05.2008, Síða 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
Nova_pung_Frjalsversl_200608 6/18/08 2:32 PM Page 1
FjölMIðlar
þjónusta
Þitt góða ráð eða heilræði í stjórnun?
Skýr markmiðasetning og að velja rétta fólkið í liðið; hlusta,
hvetja og leiðbeina ásamt því að veita svigrúm til athafna og
ákvarðanatöku.
Hverjir eru mikilvægustu eiginleikar stjórnanda?
Heiðarleiki, traust, drifkraftur og víðsýni
Ert þú hlynnt því að ganga í ESB og taka upp evru?
Ég tel löngu tímabært að stjórnvöldi setji aðild á dagskrá, en
það er margt sem þarf að ræða áður en sú ákvörðun verður
tekin.
Hvað er brýnasta verkefnið þessa stundina hjá stjórn-
endum íslenskra fyrirtækja?
Að ná meiri hagkvæmni í rekstri, nýta fjárfestingar og fjár-
muni betur og lækka skuldir.
Áttu von á að fyrirtæki þitt nái markmiðum sínum á
árinu?
Já, ég geri ráð fyrir að við munum ná flestum okkar mark-
miðum.
Sex orða ævisagan:
Skin og skúrir en oftast heiðskírt.
ELÍN G. RAGNARSDÓTTIR
forstjóri útgáfufélagsins Birtíngs, framkvæmdastjóri útgáfu-
félagsins DV, framkvæmdastjóri bókaforlagsins Skugga
Þitt góða ráð eða heilræði í
stjórnun?
Að hafa alltaf góða yfirsýn og að vera
óhrædd við að breyta þegar á þarf að
halda.
Hverjir eru mikilvægustu eiginleikar
stjórnanda?
Stjórnendur þurfa að hafa skýra framtíð-
arsýn, fylgja vel eftir áætlunum og mark-
miðum og síðast en ekki síst að leggja
sig fram við að eiga góða samvinnu og
samskipti við samstarfsmenn og reyna
að ná því besta fram.
Ert þú hlynnt því að ganga í ESB og
taka upp evru?
Fyrst þarf að skilgreina samningsmark-
mið, svo að fara í viðræður og þá fyrst
getur maður í raun tekið afstöðu. En án
efa á að kanna þetta til hlítar. Ég tel rétt
að taka upp evru, ef við göngum í ESB.
Í millitíðinni þarf að skoða vandlega
hvort leyfa eigi fyrirtækjum að gera upp
í evrum.
Hvað er brýnasta verkefnið þessa
stundina hjá stjórnendum íslenskra
fyrirtækja?
Á þessari stundu er aðhald í rekstri
nauðsynlegt, en menn eiga þó einmitt
núna að hafa augun galopin fyrir góðum
tækifærum.
Áttu von á að fyrirtæki þitt nái
markmiðum sínum á árinu?
Já, pottþétt og gott betur.
Sex orða ævisagan:
Hef tekið ótal beygjur en alltaf stefnt í
sömu átt.
Guðný Rósa Þorvarðardóttir, forstjóri Parlogis.
GUÐNÝ RÓSA ÞORVARÐARDÓTTIR
framkvæmdastjóri Parlogis
Elín Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Birtíngs.