Frjáls verslun - 01.05.2008, Page 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
h r i n g b o r ð s u m r æ ð u r
Kristín Pétursdóttir
forstjóri Auðar Capital
Kristín var aðstoðarforstjóri hjá
Kaupþingi Singer & Friedlander í London
til ársloka 2006 og hafði yfirumsjón
með samþættingu Singer & Friedlander
við Kaupþing. Kristín starfaði hjá
Kaupþingi frá árinu 1997 og var lykil-
manneskja í uppbyggingu bankans í að
verða stór, alþjóðlegur banki. Á árunum
1999-2005 var Kristín framkvæmda-
stjóri fjárstýringar og sá alfarið um fjár-
mögnun bankans. Áður en Kristín hóf
störf hjá Kaupþingi vann hún hjá Statoil
í Noregi, Skeljungi og Íslandsbanka.
Kristín er hagfræðingur frá Háskóla
Íslands og er með mastersgráðu í
alþjóðaviðskiptum frá Handelshöyskolen
í Bergen í Noregi.
hverjar eru
konurnar?
Við erum kannski svo lítil að við getum ekki stækkað mikið miðað
við útlönd?
Auður: Ísland er mjög lítill markaður og til að ná hagkvæmni stærðarinnar er
eina leiðin að leita til annarra miða og þannig stækka markaðinn.
Kristín, þú ert búin að vera hjá Kaupþingi - sem á kannski
velgengnisformúluna. Hafa bankarnir vandað sig í kaupum á
erlendum fyrirtækjum?
Kristín: Já, ég held að margt gott hafi verið gert hjá bönkunum í þeirra útrás.
Við erum í útrás. Þó svo að við séum ekki að bæta við okkur, þá erum við
Íslendingar í dag með starfsemi um allan heim og erum að reka fyrirtæki,
byggja þau upp og vonandi eigum við eftir að sjá fleiri dæmi um það. Útrásin
er komin til að vera.
Heimurinn er alltaf að minnka og viðskipti og fyrirtækjarekstur færist yfir
landamæri - slíkt er að gerast alls staðar og er ekkert séríslenskt í sjálfu sér.
Sjáið þið fram á einhverja ákveðna markaði sem Íslendingar muni
herja á á næstunni? Horfa allir til Kína og Indlands eða verðum við
bara áfram í gömlu, góðu Evrópu?
Kristín: Við eigum að leita að tækifærunum þar sem þau myndast og þau
eiga eftir að vera áfram til staðar. Íslensk fyrirtæki munu í framtíðinni verða
minna háð því að íslenskir bankar séu á bak við þau.
Áslaug: Við erum ekki eyland í viðskiptalegri hugsun. Fyrirtækin eru í rekstri
og líta á allan heiminn sem markað, hvort sem um er að ræða Norðurlöndin,
Evrópu eða aðra skilgreinda markaði. Mörg af stærri fyrirtækjunum í Kaup-
höllinni eru með aðeins litla prósentu af starfsemi sinni á Íslandi. Smáhlé er
kannski á svokallaðri útrás, en svo held ég að menn safni vopnum og hefjist
handa á nýjan leik.