Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2008, Side 86

Frjáls verslun - 01.05.2008, Side 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 s j á v a r ú t v e g u r g uðrún Lárusdóttir og Ágúst Sigurðsson hófu útgerð fyrir tæpum fjórum áratugum, með Ráninni, sem fór á sjó í ágúst 1971. „Ágúst keypti breskan togara sem strandaði og sökk í Arnarfirði við Ísafjarðardjúp. Hann gerði skipið upp, sem var mikið verk, en tókst vel til og þetta fyrsta skip okkar reyndist hið mesta happafley. Við höfum haldist í útgerð allar götur síðan, með mismunandi mörg skip.“ Hvaða ráð hefur Guðrún til kvenna í viðskiptalífinu? „Fyrst og fremst að láta verkin tala. Ég held að konur séu varfærnari í peninga- málum og veðji fremur á eitthvað öruggt en að leggja út í óvissu. Að þær spili ekki jafn djarft, þótt um mig megi segja að ég hafi oft spilað ansi djarft, þó aldrei þannig að ég sæi ekki fram á að ná endum saman,“ segir Guðrún. Sem dæmi um dirfsku Guðrúnar nefnir hún þegar þau hjón keyptu Sigureyna frá Patreksfirði á uppboði. „Við vorum stödd þarna á svæðinu og ákváðum að bjóða í þetta skip, sem var með góðan þorskkvóta. Þá var skiptingin þannig að norðanskip höfðu meiri þorskkvóta, en við hérna sunnan megin meiri karfakvóta. Það var allt fullt af svona kerfavitleysu í þá daga. Við buðum í skipið og fengum það, en fyrir miklu hærri upphæð en við höfðum handbæra. Við fengum ekki að yfirtaka nema hluta af þeim lánum sem hvíldu á skipinu; Byggðastofnun vildi ekki taka okkur sem skuldara. Þetta var nú byggðastefnan í hnotskurn. Við sömdum við minni aðila og nokkra stóra, en opinberu aðilarnir treystu sér ekki til þess að láta lánin fylgja, þannig að við urðum að borga þau lán upp. Reyndar var það okkar gæfa því við gátum fengið miklu hag- stæðari lán,“ segir Guðrún. Besta fjárfesting sem ég hef gert Hún bætir við, að kaupin á Sigureynni hafi verið besta fjárfesting sem hún hafi gert. ,,Þarna fengum við gott skip, með allan kvótann sem fylgdi og þegar fram í sótti var þetta flott. Reyndar höfum við alltaf verið mjög heppin í okkar útgerð. Vissulega höfum við orðið fyrir óhöppum, en aðeins einu sinni fyrir stórtjóni, þegar Ýmir, frystitogarinn okkar, fór á hliðina hérna í Hafnarfjarðarhöfn í ágúst 1999. Hann sökk og skemmdist mikið, en það tókst að gera hann jafngóðan. Að öðru leyti höfum við verið farsæl í allri okkar útgerð og gengið vel með allan mannskap, því það er lykilatriði að hafa góða áhöfn.“ Hvernig hefur jafnréttisbaráttan í atvinnulífinu breyst und- anfarna áratugi? „Ég hef alltaf litið svo á að konur og menn væru jafningjar og ynnu á jöfnum grundvelli, þannig að það þyrfti í sjálfu sér ekki að vera með neina jafnréttisbaráttu. Sennilega er það arfur frá ömmu minni, Guð- rúnu Lárusdóttur, einni af fyrstu konum sem var kosin til alþingis. Hún áleit sig jafningja þeirra manna sem hún var með á þingi, sem og annarra.“ Er jafnréttið samt ekki komið töluvert lengra en þegar þú byrjaðir? „Miklu lengra. Nú eru konur bæjarstýrur, útibússtjórar annars hvers banka og ég tala nú ekki um kvenpresta. Það er það sem amma mín hefði viljað vera, ef það hefði verið hægt þá. Það finnst mér vera mikil framför. Svo er aukinn hlutur kvenna á alþingi og á fleiri stöðum.“ ekki kynbinda möguleikana Hvaða aðferðafræði baráttunnar hefur verið röng? „Ég held að það hafi verið rangt að leggja svona mikla áherslu á þennan svokallaða kynjakvóta. Hvort sem manneskjan er kona eða karl á hún rétt á að fá að njóta sín og sinna verðleika, en það á ekki að kynbinda möguleikana.“ Hvaða aðferðir eru árangursríkastar í rekstri? „Það er nú það, hvaða aðferðir eru réttar í viðskiptum, aðrar en að beita skynseminni hverju sinni? Ég hef valið að bera mig alltaf aðeins betur en efni standa til og aldrei segja aumingja ég. Ég hef líka vanið mig á hreinskilni, þótt hún sé stundum óþægileg. Ég lít upp til Vigdísar Finnbogadóttur, sem heldur alltaf sínu striki, en af þeim tíguleika sem hefur alltaf einkennt hana. Aldrei heyrði ég hana krefj- Hef oft spilað ansi djarft Guðrún Lárusdóttir rekur ásamt manni sínum útgerðafyrirtækið Stálskip í Hafnarfirði. Þetta er eitt kunnasta fyrirtækið í greininni og þekkt fyrir sterka stöðu, mikinn hagnað og að greiða há laun. Guðrún segist oft hafa spilað ansi djarft en þó aldrei þannig að hún hafi ekki séð fram á að endar næðu saman. texti: þórdís bachmann • Mynd: geir ólafsson GuðRún LÁRuSdóttiR í StÁLSkipuM, HaFnaRFiRði:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.