Frjáls verslun - 01.05.2008, Side 105
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 105
Kaffitár stundar viðskipti án króka-leiða. Að sögn Stellu Mörtu Jóns-dóttur framkvæmdastjóra tryggir
það gæðin, kaffibóndinn fær meira fyrir
sinn snúð og viðskiptin verða án þess kostn-
aðar sem fylgir verkefnum eins og t.d. Fair
Trade. Ætla má að bóndi sem selur kaffi án
krókaleiða fái um 30% hærra verð, auk þess
sem kostnaður hans er minni.
Kaffitár án krókaleiða þýðir ...
Að sanngjörn viðskipti séu í hávegum •
höfð. Fáir eða engir milliliðir sem
hámarka hlut bóndans.
Að búið sé að heimsækja bóndann sem •
ræktar kaffibaunirnar og kynnast honum.
Að sannreynt sé að framleiðsluaðferðir •
hans eru góðar.
Að tryggt sé að hann komi vel fram við •
starfsfólkið.
Að kaffið sé keypt beint af bóndanum •
eða útflutningsaðila sem hann mælir
með og hægt sé að treysta því að kaffið sé
framúrskarandi gott.
Samstilltur hópur starfsmanna
Kaffitár hefur að leiðarljósi að veita sem flestum
þá ánægju að drekka gott kaffi. Fyrirtækið er ört
vaxandi og verkefnin eru fjölbreytt. Að mörgu
er að hyggja við nýjar framkvæmdir og upp-
byggingu innra skipulags og mannauðs. Kaffi-
tár hefur virka fræðslu- og starfsmannastefnu
og heldur fjölbreytt námskeið fyrir starfsfólkið
í öllu sem við kemur kaffidrykkjagerð, svo sem
ræktunar- og framleiðsluferli kaffisins, þjón-
ustu og uppáhellingaraðferðum.
Viðurkenning
Kaffitár hlaut viðurkenningu á árinu frá Félagi
viðskiptafræðinga og hagfræðinga, sem veitt
var í tilefni Íslenska þekkingardagsins, undir
yfirskriftinni „drifkraftur til árangurs“.
Kaffihúsum hefur fjölgað
Nýjasta kaffihúsið er í Höfðatorgi, Borgar-
túni 10. Það er stærsta kaffihús Kaffitárs
og þar er mikið úrval af léttum hádeg-
isréttum.
Velgengni kaffibarþjóna á Íslandsmóti
kaffibarþjóna
Á síðasta Íslandsmóti kaffibarþjóna náðu
starfsmenn Kaffitárs 2.-6. sæti. Harpa Hrund,
starfsmaður í Höfðatorgi, hlaut verðlaun á
mótinu fyrir besta expressóinn, cappuccinóinn
og frjálsa drykkinn.
Nýjar áherslur í meðlæti
Kaffitár stefnir að því að bjóða upp á öndveg-
ismeðlæti ásamt kaffinu og til þess er starfrækt
framleiðslueldhús fyrir kaffihúsin. Nýverið
var ráðinn nýr liðsmaður, Dómhildur A.
Sigfúsdóttir, til að sjá um vöruþróunina.
Gildi kaffitárs eru fjögur: Ástríða, sér-
fræðiþekking, alúð og fjölmenning.
Aðalheiður Héðinsdóttir forstjóri og Stella Marta Jónsdóttir framkvæmdastjóri Kaffitárs:
„Kaffitár hefur að leiðarljósi að veita sem flestum þá ánægju að drekka gott kaffi.“
www.kaffitar.is
Kaffitár
Nýjasta kaffi-
húsið okkar er
í Höfðatorgi,
Borgartúni 10.
Kaffitár án KróKaleiða