Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2008, Síða 139

Frjáls verslun - 01.05.2008, Síða 139
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 139 r í k u s t u k o n u r n o r e g s Mille-Marie Treschow hefur lengi verið kölluð „ríkasta kona Noregs“. Titillinn er alltaf hafður í gæsalöppum. Mille-Marie er ríkust í þeim skilningi að hún stýrir sínum peningum sjálf. Hún á miklar eignir og stundar sjálf viðskipti. Hrein eign á síðasta skattári var metin á 36 milljarða íslenskra króna. Hún hefur á síðustu árum notað að jafnaði um þrjá milljarða á ári til heimilishalds og fjárfestinga. Þetta er séreign hennar í hjónabandinu með kaupmanninum Stein Erik Hagen. Eign hans, sem næstríkasta manns Noregs, er einnig séreign. Þetta eru hjón sem stunda viðskipti hvort fyrir sig. En Mille-Marie er ekki í raun og veru ríkasta kona Noregs. Aðrar konur eru ríkari. Þessar ríkari konur eiga það allar sameiginlegt að vera erfingjar skipakónga og eign þeirra felst í hlutafé sem bræður, eiginmenn eða frændur stjórna. Ríkasta kona Noregs á lista síðasta árs heitir Helene Odfjell. Þetta segir mikið um stöðu norskra kvenna í viðskiptum. Þær sitja á gömlum peningum sem yfirleitt má rekja til skipafélaga frá næstsíðustu öld og þær halda sig til hlés. Karlarnir stjórna. Mille-Marie Treschow er þarna undantekning þótt hún hafi líka fengið auðæfi sín í arf. Hún á sig sjálf – 54 ára gömul kona í við- skiptum. Hún er til dæmis eina konan úr hópi ríkustu kvennanna í Noregi sem er árlega boðið á ársfund Seðlabankans. Gestalistinn þar er líka listinn yfir áhrifamesta fólkið í landinu. Ættarnafnið Treschow þýðir tréskór og upphaflega er þetta ætt danskra skósmiða sem hét ýmist Hans eða Nils – Hansen eða Nilsen. Þegar þeir urðu ríkir tóku þeir upp ættarnafnið Treschow. Árið 1812 keypti einn þeirra sér aðalsnafnbót. Michael sonur hans flutti árið 1837 til Noregs og gerðist athafnamaður. Hann eignaðist mikil lönd við Larvík í Vestfold, vestan Óslóar, og græddi á timbursölu og síðar járnvinnslu. Hann lét byggja sér herragarðinn Fritzöhus, 2302 fermetra á þremur hæðum með 75 herbergjum og 170 hektara garði. Það er enn stærsta íbúðarhús í einkaeigu í Noregi. Konungshöllin er stærri en garðurinn þar er minni. Mille-Marie er 6. ættliður frá þessum fyrsta Treschow í Noregi. Hún býr nú í Fritzöhus ásamt eiginmanni sínum, Stein Erik Hagen. Þau gengu í hjónaband árið 2004 en voru bæði gift áður – Mille- Marie þrisvar. Hún á tvö börn frá öðru hjónabandi sínu. Gestir í brúðkaupi þeirra hjóna voru 300 og þar á meðal forsætis- ráðherrann þáverandi – Kjell Magne Bondevik. Fjármálaráðherra var þar líka. Bondevik er nú sjálfstætt starfandi friðarboði og fær ókeypis skrifstofu hjá þeim hjónum í Ósló. Þau hafa sambönd. Mille-Marie er stundum kölluð „skógarbarónessan“. Það er vegna þeirra miklu skóga sem hún á. Hún á einnig iðnfyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á steinhellum og auk þess byggingavöruverslanir. Mille- Marie á fyrirtæki sitt að fullu sjálf. Hún er þar stjórnarformaður og forstjóri og ræður og rekur að vild. Með eiginmanni sínum á hún þó eitt lítið fyrirtæki sem stendur fyrir byggingu lúxushótels í Larvík. Mille-Marie var á yngri árum kunn handboltakona og hún er að sjálfsögðu hestakona. Á sumrum stundar hún siglingar. Þrátt fyrir aðskilinn rekstur fyrirtækjanna eru þau Mille-Marie og Stein-Erik oft nefnd í sömu andrá og þau þykja samhent hjón. Þó eru uppruni þeirra ólíkur. Hún er aðalskona – hann upphaflega matvörukaupmaður. Mille-Marie treschow Þær Mille-Marie Treschow, ríkasta kona Noregs, og Grete Faremo sem nefnd hefur verið stjórnar- kona Noregs eru ævinlega báðar ofarlega á lista yfir áhrifamestu konur Noregs. En hverjar eru þær? tExti: gísli kristjánsson Mille-Marie Treschow.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.