Frjáls verslun - 01.05.2008, Page 180
180 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
t e n g s l a n e t h e r d í s a r þ o r g e i r s d ó t t u r
Anna Þórðardóttir
endurskoðandi hjá KPMG:
einstök stemning
„Einstök ráðstefna í alla staði og sú besta sem
ég hef tekið þátt í. Vel skipulögð með frábærum
fyrirlesurum sem Herdís hefur valið af kostgæfni.
Fyrirlesarar voru einlægir í frásögnum sínum og á
ráðstefnunni mynd-
aðist einstök stemn-
ing á milli þátttak-
enda. Konur úr
ólíkum áttum fundu
sameiginlegan flöt
á lífi og tilveru.
Ráðstefna sem
gefur konum kraft
og fyllir þær af bjart-
sýni um að hægt sé
að breyta heiminum
til batnaðar. Áfram
Herdís!“
Þórunn Sveinbjörnsdóttir
varaformaður Eflingar:
Flatirnar fylltust
af konum
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég kom á
tengslanet kvenna og var því spennt að sjá
hvernig til tækist. Gangan á Grábrók var
einstök í veðurblíðunni, löng halarófa af lit-
skrúðugum konum á leið í fjallgöngu, allar
glaðar og opnar fyrir samskiptum. Síðar var farið inn með Hreðavatni
og að Kiðá þar sem flatirnar fylltust af konum sem vildu vera saman,
skiptast á skoðunum og mynda ný tengsl. Konur tóku hver aðra tali
þótt þær þekktust ekki og ræddu sín áhugamál og drauma um lífið og
tilveruna.
Staðurinn skapaði ramma um fagra minningu. Bóndi, ritstjóri, rit-
höfundur, pólitíkus, móðir, amma. Þetta samspil ólíkra erinda gaf deg-
inum mikið gildi og veitti konum bæði innblástur og samkennd. Upp
úr stendur, að konur þurfa að hittast á sínum forsendum og geta rætt
um það sem hvílir á sálartetrinu. Þá kemur í ljós að við erum flestar
að glíma við sömu vandamálin, með ólíkum blæbrigðum aldurs og lífs-
stöðu. Skipuleggjandinn á mikið hrós skilið. Ég mæti á Tengslanet V!“
Judith Resnik, prófessor við
lagadeild Yaleháskóla í ræðustóli.
„Ráðstefnan var áhrifamikill viðburður, þar
sem konur úr ýmsum stéttum komu saman
til þess að kanna hvað hefur áunnist í jafn-
réttisbaráttunni og líta á hvaða hindranir eru
í vegi fyrir því að konur og karlar standi jafn-
fætis, innan heimilanna sem utan.
Í framsögu minni, Réttlæti stefnt í voða,
benti ég á að konur 21. aldar þurfa að vera
meðvitaðar um þrjú atriði sem stangast á,
en eru öll jafn sönn:
Það fyrsta er fagnaðarefni, þar eð mikið
hefur breyst á tiltölulega skömmum tíma.
Þar tók ég dæmi um konur í stjórnunar-
störfum hjá einka- og opinberum fyrir-
tækjum og um konur sem hafa komast inn í
löggjafarsamkunduna.
Annað atriðið lítur á hve langt er þó í
land, með dæmum um kynlífsþrælkun,
heimilisofbeldi, hungur og ólæsi.
Það þriðja veldur nokkrum kvíða, þar eð
við eigum á hættu að glata sumu af því
sem hefur áunnist. Þar tók ég sem dæmi
þegar fólk glatar mannhelgi sinni vegna
pyntinga og fór yfir í algengari dæmi, um
þverrandi aðgang að opinberum mögu-
leikum á úrlausnum ágreinings, meðal ann-
ars vegna einkavæðingar.
Sem erlendur gestur hjó ég eftir stefnu-
festunni og því hversu opnir þátttakendur
ráðstefnunnar voru fyrir nýbreytni. Að auki
var ráðstefnan ljúflega fjöl-kynslóða og
ég hitti margar mæðgur sem starfa hvor
í sínum geiranum og sóttu ráðstefnuna
saman.
Mér var tjáð það oftar en einu sinni, að
Herdís væri lykilmanneskja ráðstefnunnar:
að orka hennar og einstök sýn sé hvatinn
að henni og það sem viðhaldi henni.“
Judith Resnik, prófessor við lagadeild Yaleháskóla:
Völd til kvenna
Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
varaformaður Eflingar.
Anna Þórðardóttir,
endurskoðandi hjá KPMG.