Gerðir kirkjuþings - 1982, Side 13
3
Við vottum minningu þessarra látnu kirkjuþingsmanna virðingu og
þökk, og biðjum ástvinum þeirra huggunar - með því að risa úr sætum
í hljóðri bæn.
Þegar nýtt kirkguþing kemur saman að afloknum kosningum og
eftir nýjum lögum, er um þáttaskil að ræða, þar sem við litum yfir
farinn veg. Þakkir flyt ég fyrrverandi kirkjuþingsmönnum, er
lokið hafa störfum á þessum vettvangi. Þá er mér rikt i huga
að færa fyrrverandi forseta þingsins dr. Sigurbirni Einarssyni
bestu þakkir fyrir hinn stóra þátt hans i störfum liðinna kirkju-
þinga og stjórn þeirra. Að fyrsta kirkjuþingi 1958 undanskyldu
hefur hann verið forseti allra kirkjuþinganna - eða 11 talsins.
Hann hefur meir en nokkur annar mótað þessa stofnun og vakað
yfir störfum kirkjuþinga. Það hefur hann gert af lipurð, góðvild
og stjórnvisku, sem ég þakka fyrir i nafni kirkjuþings. Lærdóms-
rikt var að taka þátt í þingstörfum undir handleiðslu hans.
Biskupshjónunum Sigurbirni og frú Magneu þökkum við hugljúfar
samverustundir og óskum þeim gæfu og Guðs blessunar á ókomnum
timum.
Með nýju lögunum veróur kirkjuþing á hverju ári, og starfar
allt að 10 dögum. Kjördæmum fjölgar um eitt og eru þau nú átta.
Reykjavikurprófastsdæmi hefur nú fjóra kirkjuþingsmenn i stað
tveggja áður, - og guðfræðingar og prestar, sem ráðnir eru til
starfa fyrir kirkjuna i heild, fá sinn fulltrúa. Þá eiga vigslu-
biskupar sæti á kirkjuþingi með sömu réttindum og þeir kirkju-
ráðsmenn, sem ekki eru jafnframt kjörnir fulltrúar.
Meó árlegu þinghaldi fær kirkjuþing meira ráðrúm til þess
að fjalla um mál sin og leióa þau betur og skjótar til lykta.
Sum málin eru svo umfangsmikil, að um þau þarf að fjalla á fleiri
en einu þingi. Meó árlegu þinghaldi er stórum haganlegra aó hafa
yfirlit yfir það sem er að gerast i kirkjunni, reglubundið frá
ári til árs.
Þingstörfin eru kirkjunni nauðsyn. Þingfundi sem slika má
rekja allt til frumkristni. Á ég þar t.d. við postulafundinn i
Jerúsalem, sem sagt er frá i Postulasögunni 15. kafla. Sá fundur
er gott dæmi um þaó, hve nauðsynlegt er að koma saman og ræða
málin, og ná samkomulagi, samþykkt um það, sem kirkju og kristni
er fyrir bestu. Kristur gaf lærisveinum sinum og þar meó fylgj-
endum sinum á öllum timum mörg fyrirmæli til aö fara eftir. En