Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Blaðsíða 20
20
Amalía Björnsdóttir, Baldur Kristjánsson og Börkur Hansen
það sem verkefni skólastjórnenda jafnt
sem kennara og foreldra. Enn fremur telja
þeir að skólamenning hafi áhrif á starfsemi
skóla enda mótist hún af þeim tengslum,
samstarfi, áhuga, væntingum og viðhorf-
um sem eru ríkjandi á hverjum stað.
Deal og Peterson (1999) benda á að í
skólum geti verið mjög mismunandi á
hvað höfuðáhersla er lögð í skólastarfinu.
Í sumum skólum er til dæmis mest áhersla
lögð á að standa sig vel í íþróttum eða í
listum en í öðrum á árangur í hefðbundn-
um námsgreinum. Einnig getur skipt skóla
mestu að skila sem flestum nemendum í
viðtökuskóla sem hafa gott orð á sér. Í enn
öðrum skólum er lögð áhersla á að allir
nemendur taki framförum í námi og komi
vel út á samræmdum prófum. Áherslur í
skólamenningu geta því verið mjög mis-
munandi. Engar kerfisbundnar rannsókn-
ir eru til á skólamenningu í grunnskólum
hér á landi og áhrifum hennar á skólastarf.
Eigi að síður má ætla að hún sé nokkuð
mismunandi og hafi einkum mótast af
sögu viðkomandi skóla, nánasta umhverfi
skólans og kennslufræðilegum áherslum.
Það er því áhugavert að skoða skólamenn-
ingu í íslenskum grunnskólum og tengsl
hennar við námsárangur.
Fjölbreytilegt umhverfi hefur áhrif á
skólastarf með margvíslegum hætti (sjá
t.d. Banks, 2009). Í sumum skólum þróast
gildismat neikvæðni og áhugaleysis sem
leiðir til firringar og lélegs námsárangurs,
en hið gagnstæða gerist í öðrum skólum
þar sem unnið er af áhuga og metnaði og
tekist á við vanda með góðum árangri.
Að mati Ginsberg og Wlodkowski (1995,
2000) og Ginsberg (2004) er mikilvægur
liður í þessu sambandi að skapa námsum-
hverfi sem kveikir áhuga og metnað allra
nemenda sem vissulega er margbrotið
viðfangsefni og ræðst af mörgum ólíkum
atriðum.
Markmið þessarar greinar er að fjalla
um skólamenningu og hvernig ákveðnir
þættir hennar tengjast námsárangri nem-
enda á samræmdum prófum. Fyrst er
fjallað um skólamenningu og þætti sem
henni tengjast. Því næst er greint frá nið-
urstöðum rannsóknar í átta heildstæðum
grunnskólum sem byggist á spurninga-
könnun meðal kennara og deildarstjóra
um skólamenningu. Loks er fjallað um
niðurstöður og þann lærdóm sem megi af
þeim draga.
Skólamenning
Skólamenning – rannsóknir
Stofnanamenning (e. organizational cult-
ure) er hugtak sem gjarnan er notað til
að lýsa einkennum á starfsemi stofnana
(Schein, 2004). Skólamenning tekur því til
stofnanamenningar í skólum. Þá er átt við
það sem er einkennandi og dæmigert fyrir
viðkomandi skólastofnun, þ.e. hvernig
starfsfólk er vant að starfa saman, nálgast
og leysa jafnt langtíma- sem aðsteðjandi
verkefni. Skólamenning getur einkennst af
því að vera metnaðarfull og framsækin eða
óskipuleg og letjandi. Flestir sem koma í
skóla verða þess fljótt áskynja að talsverður
munur er á því hvernig unnið er á hverjum
stað, hvernig starfsfólk hefur mótað sér
skoðanir, viðhorf og venjur. Þennan mun
má jafnan rekja til mismunandi menningar
(sjá t.d. Börk Hansen, 1994).