Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Síða 64
64
Torfi Hjartarson og Anna Kristín Sigurðardóttir
safna og tölvuvera, stundum með því að
tefla saman prentgögnum, tölvukosti og
búnaði til miðlunar á vel völdum stað í
skólabyggingunni (Allyson Macdonald,
Torfi Hjartarson og Þuríður Jóhannsdóttir,
2005). Aðgengi að tækninni er auðvitað í
lykilhlutverki í þessu sambandi. Í þessari
rannsókn verður hugað að sveigjanleika
í rýmisnotkun og nýtingu tæknibúnaðar
auk möguleika á að framleiða stafrænt
efni og kynna í samkomusölum, kennslu-
stofum og smiðjum.
Bætt aðgengi að menntun
Eitt af mikilvægum markmiðum við
hönnun skólabygginga er aðgengi fyrir
alla. Bæði arkitektar og fræðimenn á sviði
menntavísinda þurfa að greina þá hönn-
unarþætti sem ýta undir eða hindra sam-
þætta þjónustu og blöndun í námi, ekki síst
einstaklingsmiðað samvinnunám. Bygg-
ingarlistarhugtök á borð við niðurbrot,
yfirsýn, gagnsæi, flæði og sveigjanleika
geta varpað ljósi á ýmsa þá þætti hönnunar
sem draga úr eða greiða fyrir möguleikum
til náms án aðgreiningar; þætti sem hafa
áhrif á sveigjanlegt aðgengi að rýmum til
náms og kennslu, námsgögnum og stuðn-
ingi við nám eða skilvirkt skipulag náms-
vinnu í blönduðum hópi nemenda með til-
liti til aldurs, þroska eða sérstakrar færni.
Þjónustu við nærsamfélag skóla þarf líka
að hafa í huga ásamt aðgengi nemenda
og starfsliðs að nágrannaskólum, söfnum
og annarri starfsemi í nærsamfélagi skóla.
Hugmyndin um náin tengsl við nærsam-
félagið helst í hendur við hugmyndir um
opið og sveigjanlegt skólastarf sem tekur
mið af fjölbreytilegum kringumstæðum,
áhuga og þörfum nemenda.
Hönnun sjálfbærra og notalegra
skólabygginga
Á síðustu árum hefur aukinni athygli
verið beint að sjálfbærri hönnun bygginga.
Þetta á líka við á Íslandi en hugmyndir og
hugtök á því sérsviði eru enn nýjabrum
á almennum vettvangi hönnunar og
bygginga. Ein skólabygging sem lýtur al-
þjóðlegum stöðlum um sjálfbærni hefur
verið hönnuð af íslensku arkitektastofunni
ARKÍS (http://www.ark.is) en hefur ekki
risið enn.
Sjálfbærnistaðlar eins og BREEAM
(http://www.breeam.org) og LEED
(http://www.usgbc.org) eru notaðir til að
stilla upp góðum námsrýmum fyrir sveigj-
anleg not með náttúrulegri dagsbirtu, nátt-
úrulegri loftræstingu þar sem því verður
komið við, vistvænni hitun, lítilli vatns-
notkun, góðri hljóðvist og efnisnotkun
sem tekur mið af sjálfbærni við byggingu,
viðhald og rekstur. ARKÍS skilgreinir sjálf-
bæra hönnun á grundvelli þessara staðla
og bendir á nokkra lykilþætti:
n Staðarval skóla, skólalóð og tengsl
við umhverfi
n Græn orka – lítil vatnsnotkun
n Stýring á frárennsli
n Notkun vistvænna byggingarefna og
flokkun úrgangs á byggingartíma
n Þægileg rými til náms og gæði í
hönnun innan dyra
n Nýsköpun og beiting vistvænnar
hönnunar sem tækis til náms