Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Síða 83
83
Kyngervi raunvísinda: Námsval og aðstæður kvenna í hefðbundnum karlagreinum við Háskóla Íslands
og stuðning frá fjölskyldu, leiðbeinanda
eða fyrirmyndum.
Nýleg rannsókn (Wentling og Camacho,
2008) styður þetta og þær hindranir sem
konur fundu hvað mest fyrir þegar þær
stóðu frammi fyrir því að taka ákvörðun
um að stunda nám í verkfræði voru: ónóg-
ar upplýsingar um verkfræðingsstarfið,
skortur á ráðgjöf frá náms- og starfsráð-
gjafa, þær upplifðu sig utangarðs í fram-
haldsnámskeiðum í stærðfræði, raun-
vísindum og tækni, þær skorti trú á eigin
færni á sviðinu, og kvenkyns fyrirmyndir
vantaði. Það sem virkaði helst hvetjandi
á þær að feta þessa óhefðbundnu braut
var: að hafa gengið vel í raunvísindum og
stærðfræði í framhaldsskóla, góðir kenn-
arar, hvatning frá kennara og fjölskyldu,
karlkyns fyrirmynd í fjölskyldunni, færni
í lausnaleit, áhugi á raunvísindum og
tækni, góðir starfsmöguleikar og að um
krefjandi starf er að ræða.
Það hversu margar stúlkur velja sig frá
stærðfræði og raungreinum er hindrun
sem ekki má líta framhjá. Betz (2005) telur
að hafi einstaklingar ekki trú á eigin færni
á ákveðnum sviðum leiði það til þess að
þeir forðist þau, þeim gangi verr og gefist
frekar upp þegar á móti blæs. Rannsóknir
Betz og Hackett (1997) hafa leitt í ljós að
stúlkur á framhaldsskólaaldri meti færni
sína minni en karlkyns jafnaldrar þeirra
á sviðum sem snerta stærðfræði, raun-
vísindi, tölvunarfræði og tækni, ásamt at-
höfnum sem tengjast vélum og líkamleg-
um verkefnum. Konur meta aftur á móti
færni sína meiri á sviðum sem tengjast
samskiptum, til dæmis við kennslu og ráð-
gjöf. Betz (2005) bendir á að þetta sé í sam-
ræmi við þau hefðbundnu kynhlutverk
og þær kynbundnu staðalmyndir sem eru
ríkjandi í samfélaginu. Betz og Hackett
(1997) telja að töluverður skortur á trú
á eigin færni í stærðfræði sé ein stærsta
hindrunin sem konur þurfi að yfirstíga við
val á námi á sviði raunvísinda og tækni.
Rannsóknir Eccles og félaga (1999) í
menntunarsálfræði ber að sama brunni.
Þau hafa sérstaklega beint sjónum að því
hvers vegna stúlkur velja síður greinar
sem tengjast raunvísindum, stærðfræði
og tækni og hafa þróað líkan til að útskýra
ólíkt náms- og starfsval kynjanna. Líkt og
í starfsþróunarkenningum telja þau að
ákvarðanir um náms- og starfsval stýrist
af eftirfarandi þáttum: a) væntingum ein-
staklingsins um árangur og trú á eigin
færni á sviðinu; b) tengslum valsins við
langtíma- og skammtímamarkmið ein-
staklingsins, sjálfsímynd hans og þarfir;
c) skemum kyngervis (e. gender related
schemas) og d) mati á hugsanlegum
kostnaði (e. potential cost) af því að eyða
tíma í þetta tiltekna nám miðað við ein-
hvern annan valmöguleika sem kemur til
greina. Allir þessir þættir eru svo tengdir
reynslu einstaklingsins, samfélagslegum
gildum og félagsmótunaraðilum (Eccles
o.fl., 1999) sem lituð eru af kynjakerfinu
sem lýst var hér að framan (Walby, 1990).
Þær konur sem sjónum er beint að í
þessari rannsókn hafa yfirstigið margar af
þeim hindrunum sem rannsóknir sýna að
verða á vegi kvenna á náms- og starfsferli
þeirra. Út frá þeim kenningaramma sem
fjallað hefur verið um og niðurstöðum
fyrri rannsókna verður kannað hvort og
þá hvaða hindrandi þættir hafi verið að