Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Blaðsíða 107
107
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir og Þorgerður Einarsdóttir
Rannsóknir um kyngervi og skóla
Sem fyrr segir grefur einstaklingshyggjan
undan umræðu um jafnréttismál og sam-
félagslegum og kerfislægum skýringum á
misrétti. Reynslan segir okkur hins vegar
að karlar njóta almennt meiri virðingar en
konur (Andersen, 2009; Bourdieu, 2001)
og að það endurspeglist einnig í skólaum-
hverfinu og innan skólastofunnar (Ander-
sen, 2009; Baxter, 2002; Jenson, Castell og
Bryson, 2003; Paechter, 2007). Rannsókn
Berglindar Rósar Magnúsdóttur (2003)
sýndi að sama einkunn getur haft ólíka
þýðingu eftir kyni nemanda. Orðræðan
um námsárangur stráka hefur frá fornu
fari einkennst af þeirri sýn að hæfni þeirra
byggist á innsæi og fyrirhafnarlausri
snilld. Stúlkur eru aftur á móti taldar sam-
viskusamar og námsárangur þeirra frem-
ur tengdur undirgefni og kvenleika. Ef
strákum gengur illa í námi eru ástæðurnar
oft og tíðum raktar til utanaðkomandi að-
stæðna en þegar stúlkum gengur illa er
það rakið til þátta í fari þeirra sjálfra (Co-
hen, 1998; Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,
2004).
Í rannsókn Berglindar Rósar kom í ljós
að kynbundnar hugmyndir um virðingu
og greind megi finna hjá 15 ára íslenskum
krökkum. Strákar sem vel gekk voru taldir
snillingar en stúlkur með háar einkunnir
voru duglegar að læra og samvisku-
samar. Strákarnir greindu sig jafnframt
frá því sem taldist kvenlegt, til að mynda
því að sinna heimanámi (Berglind Rós
Magnúsdóttir, 2003). Rannsókn Brandell
og Staberg (2008) sýndi samskonar niður-
stöður. Strákar voru þar álitnir líklegri til
að finnast stærðfræði auðveld og stúlkur
taldar hafa almennt meiri áhyggjur af
stærðfræðinámi, þær ynnu meiri heima-
vinnu og væru duglegri í tímum. Rann-
sókn Tiedemann (2000) leiddi í ljós að
kennarar geta einnig haft kynjaðar vænt-
ingar til nemenda sinna. Þátttakendur í
rannsókn hans töldu að stúlkur þyrftu að
hafa meira fyrir stærðfræðinámi en strákar
og að strákar væru almennt færari um að
hugsa rökrétt. Kennarar í rannsókn Warr-
ington og Younger (2000) voru einnig með
ólíkar væntingar til kynjanna og töldu
stráka almennt þurfa að leggja minna á sig
til að fá góðar einkunnir. Þeir bjuggust við
því að strákum gengi betur en stúlkum og
höguðu kennslu sinni samkvæmt því. Þeir
álitu stúlkur samviskusamar og þroskaðar
en fannst áhugaverðara að kenna strákum.
Ofangreindar rannsóknir, sem lutu að
nemendum í grunnskóla, leiða líkur að
því að kynbundnar væntingar og eðlis-
hyggjusýn á kynin séu mun algengari og
útbreiddari en flestir gera sér grein fyrir.
Stelpur í strákaheimi
Þegar við göngum inn í nýtt samfélag
lærum við smám saman hvaða kröfur eru
gerðar til okkar. Henwood (1998) hefur
rannsakað hvernig nemendur tileinka sér
ríkjandi orðræðu innan tækni- og raun-
vísindagreina. Hún bendir á að brýnt sé
að ganga í takt við viðteknar hugmyndir
því ef einstaklingur sker sig úr hópnum
er hann um leið ekki eins gjaldgengur inn
í samfélagið. Konur geri því gjarnan lítið
úr kynjamun og vilji láta koma fram við
sig eins og karlmenn. Þannig finna þær
sér stað innan ríkjandi staðalmyndar. Um
leið og konur skilgreina sig sem stráka-