Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2013, Page 179

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2013, Page 179
179 Þetta þýðir til dæmis að sá módernismi sem mótaðist annars vegar hjá skáldum fimmta áratugarins (s. fyrtiotalisterna) í Svíþjóð og hins vegar hjá íslensku atómskáldunum á sjötta áratugnum verður hluti af hinum alþjóðlega eða öllu heldur landfræðilega módernisma og sem slíkur alveg jafn áhugaverð- ur og mikilvægur og sá sem kom fram í áðurnefndum háborgum menningar- innar nokkru fyrr á öldinni. En þetta þýðir líka að taka verður tillit til þess að nútíminn er ekki alls staðar eins – meðal annars vegna þess að hann ber ekki alls staðar að garði á sama tíma – og viðbrögðin við honum eru ekki alltaf og hvarvetna hin sömu. Hvert svæði býr meðal annars yfir sínu stjórnmálakerfi og valdakerfi sem getur skýrt hvernig menningarlegu forræði er þar háttað. Í Svíþjóð var módernisminn til að mynda innlimaður í menningarstofnunina sem þar var fyrir án mikilla átaka. Stofnun nútímalistasafnsins í Stokkhólmi, Moderna Museet, árið 1958 var hluti af nánast hnökralausri innlimun mód- ernismans í sænska liststofnun. Á Íslandi mætti módernisminn aftur á móti harðri andstöðu hjá liststofnuninni og bókmenntastofnuninni. Væri módern- ismi þessara tveggja landa borinn saman frekar myndu fleiri sérkenni koma í ljós, svo sem áhrif sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á þróun og viðhorf til lista og bókmennta fyrir og um miðja tuttugustu öld. Hin landfræðilega nálgun við módernismann hefur leitt af sér talsverða endurskoðun. Á síðustu árum og áratugum hafa til að mynda verið sett fram ýmis hugtök um það sem mætti kalla nýja módernisma eða framhaldslíf mód- ernismans, en hann virtist um nokkurt skeið jafnvel heyra sögunni til. Hugtakið ‚póstmódernismi‘ (e. postmodernism) – sem merkir ‚eftir módernisma‘ – gaf endalokin sterkt til kynna en benti jafnframt til þess að verkefni módern- ismans væri haldið áfram í einhverri mynd.8 Í því sambandi hefur sömuleið- is verið talað um mögulega eða aðra módernisma, samanber hugtak Dilips Paramedhswars Gaonkar um aðra nútíma í ritinu Alternative Modernities.9 Enn fremur hefur hugtakið ‚blendingsmódernismi‘ (e. hybrid modernism) skotið upp kollinum þar sem rætt er sérstaklega um módernisma á jaðar- svæðum.10 Svæðisbundinn módernismi (e. regional modernism) hefur einnig 8 Sjá umfjöllun um samspil módernisma og póstmódernisma hjá Ástráði Eysteinssyni, The Concept of Modernism, Ithaca og London: Cornell University Press 1990, bls. 103–142. Ástráður segist ekki sjá neina ástæðu til þess að taka undir með þeim sem halda því fram að módernisminn sé dauður þó að hann hafi vissulega haft hvað bylt- ingarkenndust áhrif á árabilinu 1910 til 1935 í flestum vestrænum löndum öðrum en Norðurlöndunum, þar sem hann hafi náð hápunkti nokkuð seinna (bls. 136). 9 Hugtakið ‚alternative medicin‘ hefur verið þýtt sem ‚óhefðbundnar lækningar‘ og mætti nota þann möguleika í þessu tilviki einnig þótt íslenska orðið ‚óhefðbundinn‘ sé ekki merkingarlega jafngilt enska orðinu ‚alternative‘. 10 Sjá til dæmis Eleni Kefala, „Hybrid Modernisms in Greece and Argentina: The Case of Cavafy, Borges, Kalokyris, and Kyriakidis“, Comparative Literature 2/2006, bls. 113–127. LANDFRæðI MÓDERNISMANS Í HNATTRæNUM HEIMI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.