Peningamál - 01.11.2000, Qupperneq 77

Peningamál - 01.11.2000, Qupperneq 77
76 PENINGAMÁL 2000/4 Október 1999 Hinn 25. október birti Seðlabanki Íslands verðbólgu- spá sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags yrði 3,3% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá upphafi til loka árs 1999 yrði 4,6%. Spáð var að verðlag á fjórða ársfjórðungi myndi hækka um 1,0% eða 4,1% á ársgrundvelli. Ríkissjóður seldi 51% hlut sinn í FBA. Söluverð- mætið nam 9,7 ma.kr. Hinn 25. október hóf Seðlabanki Íslands að birta á heimasíðu sinni, www.sedlabanki.is tölfræðilegar upplýsingar um íslenskt efnahagslíf og varða þær einkum þá þætti sem heyra beint undir verksvið bankans. Upplýsingarnar eru uppfærðar vikulega. Nóvember 1999 Hinn 24. nóvember kom út fyrsta hefti Peningamála. Peningamál eru gefin út ársfjórðungslega og inni- halda umfjöllun um efnahags- og peningamál og þró- un á fjármálamarkaði auk greina og tölulegra upp- lýsinga. Desember 1999 Í desember fór fram sala á 15% hlut ríkissjóðs í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. Bréfin voru seld með áskriftar- og útboðsfyrirkomu- lagi. Söluverðmætið nam tæpum 6 ma.kr. Bandarísku matsfyrirtækin Moody's Investor Service og Standard & Poor's staðfestu mat sitt á lánshæfi íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnirnar eru Aa3 og A+ á langtímaskuldbindingum og P-1/A-1+ á skammtímaskuldbindingum í erlendri mynt. Á skuld- bindingar í íslenskum krónum fékk ríkið hæstu eink- unn, Aaa frá Moody's og einkunnina AA+ frá Stand- ard & Poor's. Hinn 8. desember voru samþykkt á Alþingi lög nr. 90/1999 um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerf- um. Ákvæði laganna taka til þeirra greiðslukerfa sem rekin eru hér á landi. Hinn 21. desember voru samþykkt á Alþingi lög nr. 96/1999 um breytingu á lögum nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Breytt var 8 gr. laganna, sem fjallar um laust fé, á þann veg að skilgreining á lausu fé lánastofnana var rýmkuð. Hinn 31. desember tóku gildi nýjar reglur um laust fé bindiskyldra stofnana. Nýju reglurnar byggjast á öðr- um grunni en þær eldri og fela í sér að fram fer heild- armat á lausafjáreignum og lausafjárskuldbindingum lánastofnana. Janúar 2000 Hinn 1. janúar tóku gildi nýjar reglur um verðtrygg- ingu sparifjár og lánsfjár o.fl. Breytingar voru gerðar á ákvæði um jöfnuð verðtryggðra eigna og skulda lánastofnana. Leyfileg mörk misvægis voru aukin úr 20% í 30% af eigin fé. Ekki voru gerðar breytingar á heimildum til verðtryggingar sparifjár og lánsfjár eins og stefnt hafði verið að samkvæmt reglum bankans frá júní 1995. Lágmarksbinditími verð- tryggðra innlána verður áfram 3 ár og lágmarksbindi- tími verðtryggðra lána 5 ár. Hinn 1. janúar tók gildi breyting á lögum nr. 36/1986 um Seðlabanka Íslands og fluttist yfirstjórn bankans frá viðskiptaráðherra til forsætisráðherra. Hinn 1. janúar fékk Greiðslumiðlun hf. Visa Ísland starfsleyfi sem lánastofnun. Hinn 12. janúar hækkaði Seðlabanki Íslands vexti sína um 0,8 prósentustig. Hinn 24. janúar birti Seðlabanki Íslands verðbólgu- spá sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags yrði 5% milli áranna 1999 og 2000 en hækkun frá upphafi til loka árs 2000 yrði 3,8%. Spáð var að Annáll fjármálamarkaða Október 1999 - október 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.