Peningamál - 01.11.2000, Blaðsíða 49
lönd sem höfðu tiltölulega ósjálfstæða seðlabanka,
eins og Norðurlöndin, Bretland og Nýja Sjáland. Á
síðustu árum hefur hins vegar orðið mikil breyting í
átt að auknu sjálfstæði seðlabanka um allan heim.
Meðal iðnríkja hefur sjálfstæði seðlabanka verið
fært í sama horf og var fyrir hjá þeim sem áður nutu
mests sjálfstæðis. Má þar nefna þá 11 seðlabanka
sem eru aðilar að evrópska seðlabankanum (ECB),
sem skipulagður er að fyrirmynd þess þýska, auk
seðlabanka Svíþjóðar, Danmerkur, Ástralíu, Nýja
Sjálands, Bretlands og Japans. Til marks um hina
hröðu þróun í átt að auknu sjálfstæði seðlabanka
meðal iðnríkja á síðustu árum má nefna að fyrir
u.þ.b. tíu árum var seðlabanki Sviss einn allra sjálf-
stæðasti seðlabanki iðnríkja, eins og sést á myndinni.
Í dag er svissneski seðlabankinn um miðjan hóp iðn-
ríkja (sjá t.d. Gehrig, 2000).
Meðal annarra ríkja hafa einnig orðið gríðarlegar
breytingar á síðustu árum. Þar má t.d. nefna Suður-
og Mið-Ameríkuríkin Argentínu, Chíle, Ekvador,
Kólumbíu, Perú, Venesúela og Mexíkó og Austur-
Evrópuríkin Albaníu, Armeníu, Búlgaríu, Króatíu,
Lettland, Tékkland, Slóvakíu, Slóveníu, Eistland,
Ungverjaland, Pólland og Rúmeníu (sjá t.d.
Loungani og Sheets, 1995). Mörg þessara ríkja hafa
jafnvel tekið beint upp löggjöf þýska seðlabankans
og gert að sinni.6
Sama þróun hefur einnig átt sér stað meðal þró-
unarríkja. T.d. hefur sjálfstæði seðlabanka Indlands,
Suður-Afríku og Úganda verið aukið töluvert á
síðustu árum. Til marks um þessa þróun má nefna að
í dag teljast seðlabankar Tékklands og Lettlands
sjálfstæðustu seðlabankar veraldar, samkvæmt mati
rannsóknarstofnunar Englandsbanka (CCBS, sjá Fry
og félaga, 2000). Seðlabanki Svíþjóðar kemur í
þriðja sæti og seðlabanki Ekvador í því fjórða. Þar á
eftir koma seðlabankar Chíle, Japans og aðildarríkja
ECB.
2.5. Mælingar á sjálfstæði seðlabanka
Í þessari grein verður stuðst við rannsókn Frys og fél-
aga (2000), sem byggist á þekktum eldri rannsóknum
Grillis og félaga (1991) og Cukiermans (1992).
Ástæðan fyrir því að stuðst er við hana er að um er að
ræða umfangsmikla rannsókn sem byggist á gögnum
frá árinu 1998 og nær til 94 ríkja víðs vegar um
heiminn (þar á meðal Íslands). Hér er því um að ræða
nýjustu fáanlegu upplýsingar í flestum tilvikum. Þó
voru gögn fyrir aðildarríki EMU uppfærð til sam-
ræmis við lögin um ECB sem tóku gildi í byrjun árs
1999.
Rannsókn Frys og félaga byggist á því að vega
saman staðlaða þætti í lagaumhverfi og uppbyggingu
seðlabanka sem taldir eru gegna lykilhlutverki í að
48 PENINGAMÁL 2000/4
Hægt er að meta samband verðbólgu og sjálfstæðis seðla-
banka með aðfallsgreiningu (metið með gögnum
Alesinas og Summers, 1993). Slík tölfræðigreining gefur
eftirfarandi niðurstöðu (tölur í svigum eru t-gildi)
Verðbólga = 9,44 – 1,64 × Sjálfstæði R2 = 0,71
(13,6) (5,9)
Eins og sjá má er tölfræðilega marktækt samband milli
meðalverðbólgu iðnríkja 1955-1988 og sjálfstæðis seðla-
banka þeirra og skýrir mismunandi fyrirkomulag seðla-
bankasjálfstæðis um 70% af mismunandi meðalverð-
bólgu iðnríkja á þessu tímabili. Tölfræðisambandið gefur
til kynna að þau lönd sem voru með minnst sjálfstæðu
seðlabankana á þessu tímabili voru með tæplega 8%
verðbólgu að meðaltali á meðan þau lönd sem höfðu mest
sjálfstæðu bankana voru með tæplega 3% verðbólgu að
meðaltali.
Ekkert sambærilegt samband fæst hins vegar á milli
seðlabankasjálfstæðis og meðalhagvaxtar á tímabilinu
Hagvöxtur = 3,98 – 0,15 × Sjálfstæði R2 = 0,02
(5,1) (0,5)
Aukið sjálfstæði seðlabanka, og þar með minni verð-
bólga, fæst því ekki á kostnað minni hagvaxtar, sem er í
samræmi við fræðilegar kenningar.
Rammi 1 Verðbólga, hagvöxtur og sjálfstæði seðlabanka
samanber rannsókn Cukiermans (1992) á tengslum seðlabankasjálf-
stæðis og verðbólgu í þróunarríkjum.
6. Hins vegar má velta því fyrir sér hversu lýsandi lagabókstafurinn er
fyrir raunverulegt starfsumhverfi seðlabanka í sumum þessara landa,