Peningamál - 01.11.2000, Blaðsíða 56
3.3. Kröfur um gagnsæi og reikningsskil
Þrátt fyrir að aukið sjálfstæði seðlabanka stríði ekki
gegn lýðræðishugtakinu er nauðsynlegt að tryggja að
peningastefnan sé gagnsæ þannig að almenningur og
kjörin stjórnvöld eigi auðvelt með að fylgjast með og
meta ákvarðanir seðlabankans og að bankanum sé
með einhverjum hætti, lagalega sem og óformlega,
gert að standa reikningsskil gerða sinna. Með þessu
er líklegt að peningamálastefna bankans festist enn
betur í sessi, auk þess sem komið er til móts við
lýðræðisleg sjónarmið um tengsl valds og ábyrgðar.
Þetta kemur t.d. fram í víðtækum reglum um gagnsæi
peningamála sem stjórnarnefnd Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins samþykkti haustið 1999 (sjá grein Ingi-
mundar Friðrikssonar, 2000).
Með kröfum um gagnsæi peningastefnunnar og
reikningsskil seðlabankans er bankanum gert að
skýra allar sínar aðgerðir með greinargóðum hætti og
vera tilbúinn að svara fyrir ákvarðanir sínar gagnvart
almenningi og ríkisstjórn. Það er því engin tilviljun
að þau lönd sem hafa aukið sjálfstæði seðlabanka
sinna á síðustu árum hafa jafnframt lagt mikla
áherslu á að gagnsæi peningastefnunnar og reikn-
ingsskil seðlabankanna séu aukin því til samræmis.
Rammi 3 fjallar nánar um hvernig gagnsæi og reikn-
ingsskil Englandsbanka hafa verið tryggð en fyrir-
komulagi Breta hefur víða verið hrósað og það
almennt talið tryggja hvað gagnsæjasta peninga-
stefnu.
3.4. Mat á gagnsæi peningastefnunnar
Fry og félagar (2000) leggja einnig mat á gagnsæi
peningastefnunnar í þeim 94 löndum sem rannsókn
þeirra náði til. Reynt er að leggja mat á hversu mikið
viðkomandi banki leggur upp úr því að útskýra að-
gerðir sínar fyrir almenningi.
Í fyrsta lagi er gefin einkunn fyrir hversu vel
aðgerðir eru skýrðar. Þar er tekið til þess hvort greint
sé frá ákvörðunum í peningamálum samdægurs,
hvort greint sé frá ákvörðunum um óbreytta stefnu,
hversu oft opinbert mat sé lagt á stöðu peningamála
og hvort fundargerð og niðurstöður atkvæðagreiðslu
séu birt opinberlega. Í öðru lagi er gefin einkunn fyrir
áherslu bankans á framsýnt mat á efnahagshorfum og
skýrleika verðbólguspáa bankans. Matið ræðst af því
hvort slíkar spár séu yfirleitt birtar, hvort þær inni-
haldi áhættumat og hvort fjallað sé um fyrri spávillur.
Að lokum er gefin einkunn fyrir hversu oft seðla-
bankinn birti opinberlega í ræðu og riti greiningu á
innlendum efnahagsmálum.
Tafla 2 sýnir samantekt á slíku mati. Upplýsing-
arnar um 11 aðildarríkin að EMU eru uppfærðar til
samræmis við fyrirkomulag ECB. Eins og sjá má í
töflunni fær Seðlabanki Íslands 6,5 í einkunn og er
nálægt meðaltali iðnríkja. Þeir bankar sem mælast
með gagnsæjustu stefnuna eru seðlabankar Bret-
lands, Svíþjóðar, Bandaríkjanna og Nýja Sjálands.
ECB stendur sig síður og hefur verið gagnrýndur fyr-
ir lítt gagnsæja stefnu.
Seðlabanki Íslands er talinn standa sig nokkuð
vel í framsetningu á verðbólguspám sínum en síður á
hina tvo mælikvarðana. Skýringin á tiltölulega lágri
einkunn fyrir skýringu aðgerða er að fundargerðir er
snúa að ákvörðunum í peningamálum eru ekki birtar
enda engar slíkar fundargerðir samdar og að ákvarð-
anir um óbreytta stefnu eru ekki kynntar sérstaklega
enda ekki fjallað um mögulegar aðgerðir á fyrirfram
ákveðnum tímum. Það sem helst dregur niður
einkunn bankans í tíðni greiningar á innlendum efna-
PENINGAMÁL 2000/4 55
Tafla 2 Gagnsæi peningastefnunnar víða um heim1
Verðbólgu- Tíðni á
spár opinberri
Aðgerðir birtar og greiningu
Lönd skýrðar skýrðar efnahagsmála Alls
Bandaríkin .......... 9,4 9,1 10,0 9,5
Bretland .............. 9,7 10,0 10,0 9,9
ECB .................... 7,2 4,3 10,0 7,2
Japan ................... 9,4 4,3 8,7 7,5
Iðnríki ................. 6,8 5,3 9,5 6,9
Umskiptaríki ....... 6,0 3,4 7,7 5,7
Þróunarríki .......... 4,7 3,9 6,8 5,1
Danmörk ............. ... ... ... ...
Finnland .............. 7,2 4,3 10,0 7,2
Noregur ............... 6,6 10,0 10,0 8,9
Svíþjóð ................ 8,5 10,0 10,0 9,5
Ísland .................. 4,7 8,2 6,7 6,5
Sæti Íslands
meðal iðnríkja ... 24. 7. 26. 23.
meðal allra ríkja . 61.-65. 8. 58.-64. 40.
1. Matið miðast við stöðuna síðla árs 1998. Hins vegar hafa þær breytingar
verið gerðar á tölum Frys og félaga að staða aðildarríkja EMU er uppfærð
til samræmis við stöðu evrópska seðlabankans. Tölur fyrir Danmörk vant-
aði í rannsókn Frys og félaga. Hæsta einkunn er 10. Iðnríkin eru 27 talsins
en heildarfjöldi ríkja 93.
Heimildir: Fry og félagar (2000) og heimasíður ýmissa seðlabanka.