Peningamál - 01.11.2000, Blaðsíða 53
eins og t.d. Nýja Sjáland, Ástralía og Kanada, fara
hins vegar einhvers konar milliveg.
Hér á landi er ákvörðunin á höndum ríkisstjórnar
en hún er tekin í samráði við Seðlabankann. Eins og
áður hefur verið minnst á er hægt að færa góð rök
fyrir því að þessi ákvörðun eigi ekki að vera ein-
göngu í höndum seðlabankans og út frá því virðist
ekki vera aðkallandi að breyta frá núverandi fyrir-
komulagi þessara mála hér á landi.
Tækjasjálfstæði
Þegar kemur að tækjasjálfstæði seðlabanka, sem
margir telja eitt mikilvægasta form sjálfstæðis, virð-
ist Seðlabanki Íslands standa illa í samanburði við
seðlabanka annarra þjóða, samkvæmt mati Frys og
félaga (2000). Bankinn mælist í neðsta sæti meðal 28
iðnríkja og í 79.-89. sæti meðal allra 94 ríkjanna sem
könnunin nær yfir.
Matið fyrir Seðlabanka Íslands endurspeglar
veika stöðu hans gagnvart kjörnum stjórnvöldum
samkvæmt lögum bankans. Samkvæmt þeim er það
meginhlutverk bankans að stuðla að því að stefna
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum nái tilgangi
sínum, jafnvel þótt sú stefna gangi í berhögg við
skoðanir bankans eða markmiðið um stöðugt verð-
lag. Þetta veikir tækjasjálfstæði bankans í grund-
vallaratriðum. Jafnvel þótt bankinn hafi í dag nokkuð
svigrúm til að beita stjórntækjum sínum, má setja
alvarleg spurningarmerki við raunverulegt tækja-
sjálfstæði bankans komi til ágreinings milli bankans
og ríkisstjórnar.
Þegar löggjöf allra 94 seðlabankanna er skoðuð
nánar kemur í ljós að Ísland og Noregur eru einu iðn-
ríkin þar sem slíkt ákvæði kemur fyrir (Fry og fél-
agar, 2000).7 Í öðrum iðnríkjum er seðlabankanum
yfirleitt formlega bannað með lögum að leita eftir
eða taka við fyrirskipunum frá ríkisstjórn sem lúta að
stjórn peningamála. Jafnframt er ríkisstjórn viðkom-
andi ríkja bannað með lögum að reyna að hafa áhrif
á ákvarðanir seðlabankans er lúta að stjórn peninga-
mála (t.d. löggjöf Englandsbanka, sænska seðlabank-
ans og ECB).
Verði tekin ákvörðun um að laga lagalega stöðu
Seðlabanka Íslands að því sem viðgengst í þessum
löndum virðast helst tvær leiðir koma til greina. Fyrri
leiðin væri sú sem farin var í Svíþjóð og EMU-ríkj-
unum, þ.e. að banna algerlega með lögum að ríkis-
stjórnin reyni að hafa áhrif á ákvarðanir seðlabank-
ans í peningamálum og banna bankanum að taka við
og leita eftir slíkum fyrirmælum. Síðari leiðin er að
bæta inn í lög bankans að ríkisstjórnin megi grípa inn
í ákvarðanir bankans við mjög sérstakar aðstæður
sem falla undir „stórkostlega efnahagslega neyð“. Þá
þyrfti að vera til skýrt afmarkað ferli sem slíkar
ákvarðanir þyrftu að fara eftir í gegnum stjórnkerfið
sem ættu að vera sitjandi ríkisstjórn pólitískt erfitt
séu þær ekki augljóslega réttlætanlegar.
Aðgangur ríkissjóðs að lánafyrirgreiðslu í seðla-
banka
Fry og félagar telja aðgang ríkissjóðs að fjármögnun
í Seðlabankanum nógu heftan til að gefa Íslandi
hæstu einkunn í þessum lið og er Ísland eitt af 26 iðn-
ríkjum og 45 ríkjum alls sem fær hæstu einkunn í
þessum lið. Í flestum iðnríkjum er lagt blátt bann við
slíkri fjármögnun í seðlabankalögum. Hér á landi er
hins vegar ekki kveðið á um slíkt bann í lögunum.
Hins vegar er í gildi samningur á milli fjármála-
ráðherra og Seðlabankans frá árinu 1992, sem síðan
hefur þrisvar verið endurnýjaður, um að fjármögnun
ríkissjóðs fari ekki með beinum hætti í gegnum
Seðlabankann. Telja verður að þetta ákvæði sé veik-
ara en í nágrannalöndum okkar, þótt ekki komi það
fram í mati Frys og félaga. Vandinn er sá að fjármála-
ráðherra getur í sjálfu sér sagt upp þessum samningi,
þrátt fyrir að pólitískur kostnaður slíkrar ákvörðunar
yrði líklega allnokkur. Af þessum sökum má færa
fyrir því rök að einkunn Íslands í þessum málaflokki
sé of há.
Ráðningartími bankastjóra
Ráðningartími bankastjóra Seðlabanka Íslands er 5
ár, eins og bankastjóra 9 iðnríkja og 37 ríkja í öllum
ríkjahópnum. Þetta virðist vera algengasti ráðningar-
tími bankastjóra: mjög sjaldgæft er að þeir séu ráðnir
til skemmri tíma, nokkuð um að þeir séu ráðnir til 6
ára en sjaldan til lengri tíma en það.
52 PENINGAMÁL 2000/4
7. Samkvæmt þessu ætti Noregur að fá sömu einkunn fyrir tækjasjálfstæði
og Ísland í töflu 2 og þessi tvö ríki að vera með lægstu einkunn iðn-
ríkja.