Peningamál - 01.11.2000, Blaðsíða 35
hvort hagnaðurinn fæst úr eigin rekstri eða sem hlut-
deild í afkomu dóttur- eða hlutdeildarfélaga. Einnig
verður að taka tillit til ólíkrar meðferðar markaðs-
skuldabréfa í svonefndri fjárfestingarbók.
Hvað fyrra atriðið varðar er m.a. ljóst að án hlut-
deildar í 529 m.kr. hagnaði Kaupþings hf. hefðu
sparisjóðirnir ekki getað sýnt þann hagnað sem fram
kemur í hálfsársuppgjörinu. Varðandi síðara atriðið
var gengisfall markaðsskuldabréfa að fullu tekið með
í uppgjöri Íslandsbanka-FBA. Ef Landsbanki Íslands
og Búnaðarbanki Íslands hefðu gert hið sama hefði
hagnaður þeirra fyrir skatta verið lægri. Á móti kem-
ur vanmat á hlutabréfaeign í fjárfestingarbók hjá
Landsbankanum en einnig hjá Íslandsbanka-FBA.
Kostnaðarhlutfallið
Kostnaðarhlutfallið, þ.e. rekstrargjöld sem hlutfall af
hreinum rekstrartekjum, er skýrt viðmið um hag-
kvæmni í rekstri. Fyrir hverja fjármálastofnun er
mikilvægt að halda kostnaði niðri miðað við tekjur
þannig að samkeppnisstaða fyrirtækisins sé viðun-
andi í samanburði við keppinauta. Sérstaklega skiptir
þetta máli í þeim greinum fjármálaþjónustu þar sem
verðviðkvæmni er mikil svo sem í hefðbundinni
bankaþjónustu. Með sama hætti má segja að innlend-
ar fjármálastofnanir í heild þurfi að gæta að sam-
keppnishæfni sinni gagnvart erlendum keppinautum.
Kostnaðarhlutfall viðskiptabanka og stærstu
sparisjóða hefur lítið breyst síðustu 5 ár að undan-
teknu síðasta ári eins og fram kemur af töflu 5. Hlut-
fallið var 67,1% á fyrri hluta þessa árs en 68,4% á
sama tímabili árið 1996. Lækkun kostnaðarhlutfalls-
ins 1999 virðist því miður hafa verið tímabundin og
skýrist fremur af aukningu annarra tekna en kostn-
aðaraðhaldi.
Annað athyglisvert kemur í ljós þegar litið er bak
við meðaltölin og skoðuð staða og þróun einstakra
banka og sparisjóða. Kostnaðarhlutfallið hefur lækk-
að umtalsvert hjá Íslandsbanka-FBA en hækkað hjá
hinum viðskiptabönkunum og stærstu sparisjóðun-
um. Á fyrrihluta þessa árs var hlutfallið 55% hjá
Íslandsbanka-FBA, 73,1% hjá Landsbankanum,
34 PENINGAMÁL 2000/4
Tafla 4 Úr hálfsársuppgjörum
banka og sparisjóða
Íslands- Bún- Stærstu
banki- Lands- aðar- spari-
M.kr. FBA banki banki sjóðir Alls
Hreinar vaxtatekjur . 3.549 2.919 1.921 1.630 10.019
Aðrar rekstrartekjur 2.552 1.576 1.012 987 6.127
Hreinar rekstrartekjur 6.101 4.495 2.933 2.617 16.146
Rekstrargjöld ........... 3.358 3.287 2.244 1.945 10.834
Framlag í
afskriftarreikning .... 545 526 255 262 1.588
Matsverðsbreytingar 1.164 0 0 0 1.164
Tekju- og eignarskattar 285 178 95 124 682
Hagnaður ................. 750 503 339 286 1.878
Heildareignir í
júnílok ..................... 269.370 216.477 128.449 96.397 710.693
Eigið fé í júnílok ..... 16.811 11.603 7.408 7.909 43.731
%
Arðsemi eigin fjár ... 9,0 9,1 9,8 7,8 9,0
Kostnaðarhlutfall .... 55,0 73,1 76,5 74,3 67,1
Eiginfjárhlutfall alls 9,40 8,72 9,79 10,48 9,41
Eiginfjárhlutfall án
víkjandi lána ............ 7,22 5,69 6,54 7,09 6,63
Tafla 5 Kostnaðarhlutföll 1995-20001
Jan.-júní Jan.-júní Jan.-júní Jan.-júní Jan.-júní
M.kr. 1995 1996 1996 1997 1997 1998 1998 1999 1999 2000
Viðskiptabankar og
stærstu sparisjóðir ...................... 68,1 68,4 67,8 67,1 66,2 69,3 68,1 63,8 62,3 67,1
Íslandsbanki- FBA .................... 63,3 61,3 59 57,7 55,1 59,6 59,4 55,3 55,2 55,0
Landsbankinn ............................ 68,9 70,8 71,9 70,8 72,2 74,6 75 69,5 70,9 73,1
Búnaðarbankinn ........................ 74,7 74,1 74,2 73,6 71,4 73,7 68,5 63,6 61,5 76,5
Stærstu sparisjóðir ..................... 68,1 70,9 70,1 71,3 71,8 73,3 72,6 71,9 62,1 74,3
1. Rekstrargjöld sem hlutfall af hreinum rekstrartekjum.
Heimild: Fjármálaeftirlitið.