Peningamál - 01.11.2000, Page 79

Peningamál - 01.11.2000, Page 79
78 PENINGAMÁL 2000/4 hætti til markaðarins upplýsingum sem áhrif geta haft á verðmyndun skuldabréfa. Hinn 30. júní veitti viðskiptaráðherra samþykki sitt fyrir samruna Samvinnusjóðs Íslands hf. og Fjár- vangs hf. í Frjálsa fjárfestingarbankann hf. sem er lánastofnun skv. lögum nr.123/1996. Júlí 2000 Hinn 6. júlí tilkynnti Sparisjóðabanki Íslands hf. Seðlabankanum að hann hefði ákveðið að hætta þátt- töku á millibankamarkaðnum fyrir gjaldeyri. Upp- sögnin tók gildi mánuði síðar. Hinn 13. júlí var millibankamarkaði með gjaldeyri lokað milli kl. 10 og 12 að ákvörðun viðskiptavak- anna á markaðnum. Ákvörðunin var tekin vegna mikilla viðskipta og snöggrar lækkunar á gengi krón- unnar um morguninn. Hinn 18. júlí hófust viðskipti með hlutabréf DeCode Genetics á Nasdaq. Hinn 18. júlí var tilkynnt um meirihlutakaup Lands- banka Íslands hf. í breska fjárfestingarbankanum The Heritable and General Investment Bank Ltd. (HGI). Hinn 20. júlí var gengisskráningarvog breytt í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta á árinu 1999. Með- fylgjandi tafla sýnir hina nýju vog og breytingu frá fyrri vog. Ágúst 2000 Hinn 8. ágúst hætti Sparisjóðabanki Íslands hf. við- skiptavakt á millibankamarkaði með gjaldeyri. September 2000 Hinn 4. september opnaði danski netbankinn Basis- bank sem Íslandsbanki-FBA hf. á fjórðungs hlut í. Hinn 11. september fjölgaði viðskiptavökum með húsbréf og húsnæðisbréf úr tveimur í fimm þegar Íslandsbanki-FBA hf., Kaupþing hf. og Spari- sjóðabanki Íslands hf. bættust í hóp viðskiptavaka. Fyrir voru Búnaðarbanki Íslands hf og Landsbanki Íslands hf. Hinn 29. september var tilkynnt að Búnaðarbanki Íslands hf. hefði sótt um leyfi yfirvalda bankamála í Lúxemborg til að starfrækja banka þar í landi. Október 2000 Hinn 2.október var lagt fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2001 þar sem gert er ráð fyrir 30 milljarða af- gangi ríkissjóðs. Hinn 13. október beindi ríkisstjórn Íslands tilmælum til bankaráða Búnaðarbanka Íslands hf. og Lands- banka Íslands hf um að hefja viðræður um samein- ingu bankanna og að leitað yrði forúrskurðar sam- keppnisráðs. Hinn 20. október tóku gildi breyttar reglur um milli- bankamarkað með gjaldeyri. Tvær meginbreytingar voru gerðar frá fyrri reglum. Fellt var niður ákvæði sem heimilaði viðskiptavökum að koma sér saman um tímabundna stöðvun viðskipta og lágmarksfjár- hæð viðskipta var hækkuð úr einni milljón Banda- ríkjadala í eina og hálfa milljón Bandaríkjadala. Ný gengisskráningarvog (%) Byggt á viðskiptum 1999 Út- Inn- Breyting Lönd flutn- flutn- Meðal- frá fyrri Mynt ingsvog ingsvog tal vog Bandaríkin ............ USD 25,57 24,95 25,26 0,57 Bretland ................ GBP 15,14 13,58 14,36 1,36 Kanada.................. CAD 1,83 1,02 1,42 0,09 Danmörk............... DKK 8,41 9,37 8,89 0,52 Noregur................. NOK 6,85 8,37 7,61 0,26 Svíþjóð.................. SEK 2,58 5,57 4,07 0,35 Sviss...................... CHF 3,16 1,06 2,11 -0,39 Evrusvæði ............. EUR 32,21 30,64 31,43 -2,92 Japan..................... JPY 4,25 5,44 4,85 0,16 Norður-Ameríka ................... 27,40 25,97 26,68 0,66 Evrópa.................................. 68,35 68,59 68,47 -0,82 Evrópusambandið ................ 58,34 59,16 58,75 -0,69 Japan.................................... 4,25 5,44 4,85 0,16 Alls ....................................... 100,00 100,00 100,00 0,00
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.