Peningamál - 01.07.2008, Síða 46

Peningamál - 01.07.2008, Síða 46
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 8 • 2 46 ársfjórðungi lengst af á svipuðu róli og bankinn spáði í síðasta hefti Peningamála, en í júní lækkaði gengið verulega. Á öðrum fjórðungi þessa árs var talið að gengisvísitalan yrði um 150 stig en gengislækkun seinni hluta júnímánaðar leiddi til þess að hún varð heldur hærri. Á þriðja ársfjórðungi var gert ráð fyrir að hún yrði um 145 stig og myndi styrkjast smám saman fram á mitt árið 2009. Í grunnspánni nú er reiknað með að krónan verði veikari á spátímabilinu, eða að meðaltali um 155 stig á þriðja ársfjórðungi þessa árs en styrkist síðan hægt fram á seinni hluta árs 2010. Eftir það tekur gengi krónunnar að veikjast, enda lækka stýrivextir og vaxtamunur við útlönd minnkar hratt sam- kvæmt spánni. Launakostnaður hefur hækkað mikið undanfarin ár, verðbólga er mikil og spenna á vinnumarkaði rénar hægt. Hætta er á að víxlhækk- un launa og verðlags fari af stað við slíkar aðstæður. Reyna mun á endurskoðunarákvæði kjarasamninga snemma á næsta ári vegna mikillar verðbólgu og kaupmáttarrýrnunar undanfarið. Það gæti leitt til óhagstæðari verðbólguþróunar á árinu 2009 en í grunnspánni (sjá rammagrein IX-2). ... og verðbólguvæntingar haldast háar Verðbólguvæntingar haldast háar meginhluta spátímans og eru ekki við markmið fyrr en nokkru eftir að verðbólga nær því, enda ráðast þær að nokkru af sögulegri verðbólgu. Ef verðbólguvæntingar yrðu framsýnni eða ef verðbólgumarkmiðið fæli í sér öflugri kjölfestu er líklegt að takast mætti að ná verðbólgu í markmið fyrr en í grunn- spánni. Lækkun húsnæðisverðs er mikilvægur þáttur í hjöðnun verðbólgu á næstu árum Eins og í undanförnum spám Seðlabankans er gert ráð fyrir að hús- næðis verð fari smám saman lækkandi, enda hefur það hækkað gríðar- lega á undanförnum árum. Lækkunin kom hægar fram en gert var ráð fyrir í fyrri spám en spáin um þróun húsnæðisverðs á öðrum ársfjórð- ungi hefur í stórum dráttum gengið eftir. Í grunnspánni er gert ráð fyrir að lækkun húsnæðisverðs á næstu árum verði svipuð og í aprílspánni. Þessi lækkun húsnæðisverðs gegnir lykilhlutverki í hjöðnun verðbólgu á næstu árum í gegnum samdrátt einkaneyslu og með beinum hætti í gegnum húsnæðislið neysluverðsvísitölunnar. Óvissar horfur Verðbólguspár byggjast að miklu leyti á haglíkönum. Þau eru ávallt ófullkomin lýsing á þjóðarbúskapnum m.a. vegna þess að þau eru metin út frá sögulegum gögnum sem spanna umtalsverðar kerfis- breytingar í þjóðarbúskapnum. Í mörgum tilvikum þarf að gefa sér forsendur um þróun mikilvægra efnahagsstærða, sem hafa veruleg áhrif á efnahagsþróunina. Þess vegna er jafnan lögð mikil áhersla á óvissumat í spám Seðlabankans. Áhersla hefur verið lögð á óvissu um gengis- og launaþróun í síðustu spám. Í apríl voru taldar talsverðar líkur á að gengis- og launaþróunin yrði óhagstæðari á spátímanum en gert var ráð fyrir í grunnspánni. Þessir áhættuþættir hafa þegar komið fram að nokkru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.