Peningamál - 01.07.2008, Blaðsíða 61
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
8
•
2
61
Auk þessara efnahagslegu skilyrða þarf að uppfylla tiltekin skil-
yrði varðandi stofnanauppbyggingu og ber tilvonandi þátttökuríkjum
að koma á ákveðnum skipulagsbreytingum á sviði peningamála sem
miða að því að tryggja sjálfstæði seðlabanka gagnvart stjórnvöldum.2
Nýju Evrópusambandsríkin3
Af þeim tíu ríkjum sem gengu í ESB árið 2004 höfðu sjö þeirra það
markmið að taka upp evru eins fl jótt og mögulegt væri. Eistland, Kýp-
ur, Lettland, Litháen, Malta, Slóvakía og Slóvenía gengu því í ERM II
fl jótlega eftir inngöngu í ESB. Þrjú þessara ríkja hafa þegar tekið upp
evru. Evra var tekin upp í Slóveníu þann 1. janúar árið 2007 og á Kýpur
og Möltu ári seinna. Þau bættust þá í hóp þeirra tólf ríkja sem áður
höfðu tekið upp evru.4 Slóvakía mun verða sextánda ríkið til að taka
upp evru, en þann 7. maí sl. tilkynnti Evrópuráðið (e. The European
Commission) að Slóvakía uppfyllti öll Maastricht-skilyrðin og gæti því
fylgt eftir þeim áætlunum sínum að taka upp evru 1. janúar 2009.
Eistland og Litháen höfðu sett sér það markmið að taka upp evru
1. janúar 2007 og Lettland 1. janúar sl. Ekkert þeirra náði að upp-
fylla Maastricht-skilyrðin í tæka tíð, aðallega vegna þess að erfi ðlega
hefur gengið að uppfylla skilyrðið um verðstöðugleika. Því urðu þau
að hverfa frá áður settum markmiðum. Verðbólga hefur farið vaxandi
í Eistlandi, Lettlandi og Litháen undanfarin misseri og verðbólguþrýst-
ingur er enn til staðar, m.a. vegna ytri skilyrða eins og hás hrávöru-
og olíuverðs. Samkvæmt spám mun verðbólga í þessum löndum ekki
komast niður á stig sem samræmist Maastricht-skilyrðinu um verð-
stöðugleika fyrr en eftir árið 2009. Talið er að Litháen geti hugað að
taka upp evru eftir árið 2010, Eistland frá og með árinu 2011 og inn-
leiðing evru í Lettlandi ætti að geta orðið að veruleika einhvern tímann
á árunum 2012-2014.
Ríkin sem standa utan við ERM II
Eitt af fyrstu skrefum ríkis í átt að upptöku evru er innganga í ERM II.
Af þeim tólf ríkjum sem gengið hafa í ESB frá árinu 2004 hafa Pólland,
Tékkland, Ungverjaland og Búlgaría auk Rúmeníu ekki gengið í ERM
II. Stjórnvöld í Tékklandi, Póllandi og Ungverjalandi hafa ákveðið að
aðild að ERM II skuli vara í eins skamman tíma og mögulegt er til að
samleitniskilyrðið um stöðugleika í gengismálum náist. Gengi gjald-
miðla þeirra þriggja landa mun því ekki vera fest við evru fyrr en u.þ.b.
tveimur árum áður en upptaka evru er áætluð.
Pólland, Tékkland og Ungverjaland eiga það sameiginlegt, fyrir
utan að hafa ekki gengið í ERM II, að halli á rekstri hins opinbera hefur
verið umfram það sem skilyrðið um afkomu hins opinbera kveður á
um. Þau vinna nú að úrbótum til að koma ríkisfjármálunum á réttan
kjöl. Pólland er eina ríkið af nýju ESB-ríkjunum fyrir utan Slóvakíu, sem
2. Nánari upplýsingar um Maastricht-skilyrðin er m.a. að fi nna á heimasíðu Evrópusambandsins,
www.europa.eu.
3. Nánari upplýsingar um stöðu nýju ESB-ríkjanna sem fjallað er um í þessum undirkafl a og
kafl anum á eftir er að fi nna á heimasíðu seðlabanka hvers lands.
4. Þau 11 ESB-ríki sem hafa verið meðlimir EMU frá upphafi og tóku upp evru þann 1.
janúar 1999 eru: Austurríki, Belgía, Finnland, Frakkland, Holland, Írland, Ítalía, Lúxemborg,
Portúgal, Spánn og Þýskaland. Grikkland var tólfta ríkið til að taka upp evru, en hún var
tekin upp þar þann 1. janúar árið 2001.