Peningamál - 01.07.2008, Qupperneq 71

Peningamál - 01.07.2008, Qupperneq 71
Peningastefnan og stjórntæki hennar Markmið og framkvæmd peningastefnunnar Markmið stefnunnar í peningamálum er stöðugt verðlag. Hinn 27. mars 2001 var tekið upp formlegt verðbólgumarkmið sem hér segir:1 • Seðlabankinn stefnir að því að árleg verðbólga, reiknuð sem hækk- un vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum, verði að jafnaði sem næst 2½%. • Víki verðbólga meira en 1½% frá settu marki ber bankanum að gera ríkisstjórninni grein fyrir ástæðu fráviksins, hvernig bankinn hyggst bregðast við og hvenær hann telur að verðbólgumarkmið- inu verði náð að nýju. Greinargerðina skal birta opinberlega. • Seðlabankinn gerir verðbólguspár þar sem spáð er a.m.k. tvö ár fram í tímann. Spárnar eru birtar í riti bankans Peningamálum. Þar kemur einnig fram mat bankans á helstu óvissuþáttum tengdum spánni. Jafnframt gerir bankinn grein fyrir mati sínu á stöðu og horfum í efnahagsmálum. Peningastefnan miðar að því að halda verðlagi stöðugu og því verður henni ekki beitt til þess að ná öðrum efnahagslegum markmiðum, svo sem jöfnuði í viðskiptum við útlönd eða mikilli atvinnu, nema að því marki sem slíkt samrýmist verðbólgumarkmiði bankans. Þjóðhags- og verðbólguspár gegna mikilvægu hlutverki við fram- kvæmd peningastefnunnar. Frá og með Peningamálum 2007/1 byggj- ast spár bankans á stýrivaxtaferli sem sérfræðingar bankans telja að stuðli best að framgangi verðbólgumarkmiðsins. Stýrivaxtaferillinn er valinn með hliðsjón af því markmiði að verðbólga verði því sem næst 2½% innan ásættanlegs tíma og haldist stöðug í nánd við verðbólgu- markmiðið eftir það. Stýrivaxtaferillinn er birtur með óvissubili til að undirstrika þá óvissu sem umlykur spána og lögð er áhersla á að hann breytist eftir því sem nýjar upplýsingar verða tiltækar. Bankinn tilkynnir vaxtaákvarðanir á fyrirfram ákveðnum dögum. Í aðdraganda vaxtaákvörðunar efnir bankastjórn til peningastefnu- funda. Tilhögun þeirra er nánar lýst í starfsreglum um undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana í peningamálum sem settar eru í 1. Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands og Seðlabanka Íslands. Birt m.a. á heimasíðu bankans. Breyting Vextir Vextir Síðast (pró- fyrir Viðskiptaform nú (%) breytt sentur) ári (%) Viðskiptareikningar 15,00 10. apríl 2008 0,50 12,75 Daglán 16,50 25. mars 2008 1,25 15,25 Bindiskylda 15,00 10. apríl 2008 1,25 13,00 Lán gegn veði 15,50 10. apríl 2008 0,50 13,30 Innstæðubréf til 7 daga 15,25 10. apríl 2008 0,50 13,20 Yfirlit vaxta Seðlabankans 23. júní 2008
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.