Peningamál - 01.07.2008, Side 77
ANNÁLL
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
8
•
2
77
Hinn 19. júní samþykkti ríkisstjórnin sérstakar aðgerðir í húsnæðismál-
um sem varða m.a. fyrirkomulag lánveitinga Íbúðalánasjóðs. Hámarks-
lán var hækkað í 20 m.kr. úr 18 m.kr. og verður miðað við allt að 80%
af kaupverði eigna í stað brunabótamats áður. Einnig voru stofnaðir
nýir lánafl okkar til að fjármagna íbúðalán fjármálastofnana.
Hinn 19. júní tilkynnti ríkisstjórnin um viðbótarútgáfu ríkisbréfa á inn-
lendum markaði þar sem gefi n yrðu út ríkisbréf í fl okkum RIKB 08
1212, RIKB 09 0612 og RIKB 10 0317 fyrir allt að 75 ma.kr.
Hinn 19. júní ákvað bankastjórn Seðlabanka Íslands að útgáfu inn-
stæðubréfa (SI 08 0924) verði fram haldið þegar bréfi n sem bankinn
gaf út í mars sl. falla í gjalddaga í september nk. Ákvarðanir um útgáfu
innstæðubréfa á næsta ári verða teknar með hliðsjón af skilyrðum á
markaði þegar þar að kemur.
Hinn 23. júní tilkynnti Íbúðalánasjóður, í kjölfar útboðs á íbúðabréfum
hinn 20. júní, að útlánsvextir sjóðsins yrðu lækkaðir um 0,15 prósentur.
Útlánsvextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði lækkuðu í 5,05% og
vextir á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis í 5,55%.
Hinn 27. júní fór fram útboð Kaupþings á sérvörðum skuldabréfum.
Útgáfan er ætluð til að fjármagna útlán bankans til einstaklinga vegna
húsnæðiskaupa. Alls var tilboðum tekið fyrir 4,8 ma.kr. Vegin meðal-
ávöxtunarkrafa í útboðinu var 5,17% og munu útlánavextir bankans
taka mið af henni með 0,9% álagi. Útlánsvextir bankans munu því
lækka úr 6,4% í 6,05% í kjölfar útboðsins.