Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 68
68
GLOÐAFEYKIR
filmusafn ánafnaði hann Héraðsskjalasafni Skagf. eftir sinn dag. Má
af því marka hvern hug hann bar til safnsins — og héraðsins.
Arið 1930 gekk Kristján að eiga Sigrúnu M. Jónsdóttur, sýslufulltrúa
um langt skeið. Er hún dóttir Jóns Þorsteinssonar og konu hans Jó-
hönnu Gísladóttur, sjá Glóðaf. 1969,9. h. bls. 52. Þeim varð ekki barna
auðið.
Kristján C. Magnússon var hár maður og höfðinglegur, fölleitur og
grannleitur, fyrirmannlegur í fasi og sjón. Hann var prýðilega
greindur og fjölgefinn, las mikið og átti stórt og vandað bókasafn,
ágætlega að sér í bókmenntum og ættfræði og unni þjóðlegum fróð-
leik. Hann var mjög listelskur, hneigður til hljómlistar og söngs, sem
og bæði þau hjón, og lék vel á orgel. Kristján var mikill tilfinninga-
maður, viðkvæmur í lund og auðsærður, en léttur í máli að öllurn
jafnaði og glettinn á stundum, gæddur næmu skopskyni og sagði vel
frá. Hann var hlédrægur og yfirlætislaus, hverjum manni prúðari.
Kristján var einlægur trúmaður og einn hinn ljúfasti drengur.
*
Leiðréttingar
I Glóðafevki 1973, 14. h., bls. 57, er minnzt Guðvarðar Steinssonar, bílstj. og bónda
á Kleif á Skaga o.v. Steinsson var hann að visu, en faðir hans hins vegar annar Steinn
en sá, er i minningargreininni getur. Mér hefur borizt bréf frá Guðrúnu, dóttur
Guðvarðar, þar sem m.a. segir:
,.Foreldrar Guðvarðar voru Ingibjörg Guðvarðardóttir ógift vinnukona á
Sævarlandi á Skaga (réttara: Laxárdal) og Steinn Óli Jónsson ókvæntur vinnupiltur á
Sævarlandi. Hálfbróðir Steins, sammæðra, var Jóhannes Jóhannesson, bóndi á
Sævarlandi og húsbóndi þeirra Ingibjargar".
Þá bendir Guðrún mér á að faðir sinn hafi eigi átt sig milli kvenna. eins og í
Glóðafevki getur, heldur áður en hann giftist fyrri konu sinni. Sigurbjörgu
Helgadóttur.
Hafi Guðrún beztu þakkir fyrir þessar leiðréttingar sínar.
G. M.