Glóðafeykir - 01.04.1984, Síða 3

Glóðafeykir - 01.04.1984, Síða 3
GLOÐAFEYKIR Félagstíðindi Kaupfélags Skagfirðinga 21. HEFTI - FEBRÚAR 1984 Abyrgðarmaður: Ólafur Friðriksson. Umsjón með útgáfu: Rögnvaldur Gíslason. Tölvusetning: Guðbrandur Magnússon, Sauðárkróki. Prentun: Sást sf. Fylgt úr hlaði Útgáfa Glóðafeykis hefur legið niðri um sinn og liggja til þess ýmsar orsakir. Gísli í Eyhildarholti lést á miðju sumri 1981. Hann var, sem kunnugt er ritstjóri Glóðafeykis og burðarásinn í útgáfustarfseminni allri og vann þar með þeim hætti, að trauðla verður í fótspor hans fetað. Honum þótti vænt um ritið og vann að því af alúð og þeim mun meira, sem lengur leið. Oft varð ég þess var, hið síðasta árið, sem hann lifði - og fann að leið að lokum - hversu mjög hann bar Glóðafeyki fyrir brjósti og taldi einsýnt að áfram yrði haldið á þeirri braut, með einhverjum hætti. Hann skóp ritinu fastan farveg, lagði línurnar og ritaði meginhluta þess og á þá lund, sem honum einum var lagið. Glóðafeykir varð í hans höndum eftirsótt rit, sem menn vildu lesa, eiga og varðveita. Er faðir minn lá banaleguna afhenti hann mér til varðveislu og ráðstöfunar 80 þætti, fullgerða, um fallna félagsmenn. Að þáttum þessum hafði hann unnið allt þar til þrek var þrotið. Þættirnir munu væntanlega birtast í næstu heftum. Það hefur orðið að ráði, að ég taki að mér um sinn, að sjá Glóðafeyki farborða og verður auðna að ráða, hversu til tekst.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.