Glóðafeykir - 01.04.1984, Side 7

Glóðafeykir - 01.04.1984, Side 7
GLÓÐAFEYKIR 7 Aldarafmæli samvinnuhreyfmgarinnar á Islandi Er K. S. minntist aldarafmœlis samvinnuhreyftngarinnar á Islandi með hófí í Selinu á Sauðárkróki, flutti Gunnar Oddsson, þá varaformaður, nú formaður K. S. eftirfarandi ávarp: Blámi er yfir þótt skefli skafl þreytt er oft á þorranum tvísýnt tafl hvaðan fær smáfuglinn ókennilegt afl? Veislustjóri og afmælisgestir, svo kveður Guðmundur skáld og bóndi Friðfinnsson á Egilsá. Við erum hér saman komin í dag til þess að minnast, gleðjast og fagna. Við minnumst þess að í endaðan þorra fyrir eitthundrað árum réttum, komu nokkrir vinnulúnir bændur saman í baðstofunni at Þverá í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu og stofnuðu kaupfélag Samvinnustarf var hafið á Islandi, nýr kapítuli í íslenskri þjóðarsögt Ekki er hægt að segja, þá Þverárfundur var haldinn, að blítt hs verið í ári svo bjartsýni vekti til framfara og félagslegra átaka, held svo hart að enn er í minnum haft. Viðskiptahættir og stjórnar minntu þá einnig um margt á harðindi náttúrunnar. En þingeysku bændumir áttu kjark. Þeir vissu það mæta vel, hvað það var þreyja þorrann og góuna, og kunnu á því fyllstu skil hve lífstaflið hafði oft verið erfitt og tvísýnt þessari litlu þjóð. Þess er og vert að minnast að á þessum tíma höfðu unnist merkir áfangasigrar í sjálfstæðisbaráttunni og skáldin - sem jafnan eru spámenn sinnar samtíðar - höfðu kveðið þjóðinni eldheit ættjarðar og baráttuljóð. Þetta hvort tveggja kann að hafa ráðið úrslitum um Þverárfund. En það var fleira en kjarkurinn sem þingeysku bændurnir báru inn í baðstofuna að Þverá 20. febrúar 1882. Þeir áttu einnig í hug og brjósti þá hugsjónaglóð, sem vermir og nærir og hvetur til starfs og dáða, eigindir sem eru í ætt við lífmögn vors og gróanda. Eg hygg að þessir þingeysku bændur hafi verið yfirlætislitlir menn,

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.