Glóðafeykir - 01.04.1984, Síða 58
58
GLÓÐAFEYKIR
bónda þar, Gíslasonar bónda í Teigi í sömu sveit, Jónssonar, og konu
hans Sigríðar Jónsdóttur frá Undhóli. Kona
Gísla eldra og móðir Páls var Hólmfríður
Jónsdóttir bónda í Stafni í Deildardal. Hún
var mæt kona og skörungur mikill, hreinlynd
og glaðlynd. Páll Hólm Gíslason, eigin-
maður Hólmfríðar, var mikill atgervismað-
ur, traustur maður og vinsæll og vildi hvers
manns vanda leysa. Sama árið og þau giftust
tóku þau við búi á Undhóli af foreldrum
Hólmfríðar, sem dvöldust þar áfram í skjóli
dóttur sinnar og tengdasonar meðan lifðu.
Heilsan brast Páli fyrir aldur fram og létu
þau hjón af búskap árið 1929, fengu Sölva
Sigurðssyni, fósturbróður Hólmfríðar, jörðina í hendur til eignar og
afnota, en voru þar kyrr og höfðu nokkrar skepnur, enda bæði tvö
miklir dýravinir og fóru vel með allan búpening.
Mann sinn missti Hólmfríður árið 1939, rösklega sextugan að aldri.
Þau eignuðust eigi börn, en tóku nokkur fósturböm, er þau ólu upp að
nokkru leyti eða öllu. Eftir lát eiginmanns síns var Hólmfríður um
árabil á Undhóli, átti nokkrar kindur sér til ánægju, heyjaði handa
þeim og hirti að vetrinum. Um 1953 flytst hún til fósturdóttur sinnar,
Þóreyjar Jóhannsdóttur, og eiginmanns hennar, Þórðar Eyjólfssonar,
sem um þær mundir fóru að búa í Stóragerði í Óslandshlíð. Hjá þeim
var hún til æviloka.
Hólmfríður Jóhannesdóttir var í meðallagi há og svaraði sér vel;
dökk á yfirbragð, fríðleikskona. Hún var greind vel, skapgerðin
heilsteypt og traust. Félagslynd var hún í besta lagi, kom mikið við
sögu Ungmennafélagsins Geisla sem og kvenfélags sveitarinnar.
„Henni fylgdi mikil, geislandi birta og glaðværð...” (J.S.) Hún var
fágætlega heimakær, elskaði sveitina sína, heimili sitt, og vildi helst
aldrei vera nætursakir að heiman. (Upplýs. frá Jóh. Sig. og Birni í Bæ).
Hólmfríður Jóhannesdóttir
Steinbjörn Marvin Jónsson, bóndi á Hafsteinsstöðum, varð
bráðkvaddur 7. september 1975. Bar andlát hans að með sviplegum
hætti, var á ferðalagi norður í Þingeyjarsýslu, um nætursakir á bænum
Asbyrgi í Kelduhverfi og lést þar í svefni um nóttina.
Hann var fæddur að Stóru Seylu á Langholti 6. maí 1926. Foreldrar: