Glóðafeykir - 01.04.1984, Qupperneq 66

Glóðafeykir - 01.04.1984, Qupperneq 66
66 GLÓÐAFEYKIR Magnús Bjarnason, kennari á Sauðárkróki, varð bráðkvaddur hinn 13. nóvember 1975. Hann var fæddur í Stóru-Gröf á Langholti 13. mars 1899, sonur Bjarna jámsmiðs Magnússonar, Jónssonar bónda á Lýtingsstöðum í Tungusveit, Bjarnasonar bónda að Hall- dórsstöðum á Langholti, Jónssonar bónda á Marbæli í sömu sveit, Jónssonar. Móðir Magnúsar og kona Bjarna smiðs var Kristín Jónsdóttir frá Strandhöfn í Vopnafirði. Hafði Bjarni farið austur þangað með Arna lækni Jónssyni árið 1892 og verið þar á hans vegum til 1897, er Árni læknir andaðist. Þar eystra kynntist Bjarni konuefni sínu. Kona Magnúsar á Lýtingsstöðum, föður Bjarna smiðs, var Guðrún Arnþórsdóttir, en kona Bjarna á Halldórsstöðum var Ragnheiður Magnúsdóttir Magnússonar prests í Glaumbæ. Þau Bjarni og Kristín fluttust vestur hingað 1897, fyrst að Eyhildarholti og svo að Stóru-Gröf, í húsmennsku á báðum stöðum, reistu bú á Löngumýri í Hólmi 1899 og bjuggu þar tvö ár, fluttu þá til Sauðárkróks með börnum sínum, Guðrúnu og Magnúsi, og áttu þar heima til æviloka. Magnús ólst upp með foreldrum sínum, stundaði sjó á unglingsárum, lauk námi í unglingaskóla um tvítugsaldur og kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands 1924. Næstu 9 árin var hann kennari í Torfalækjarhreppi vestra, í Rípurhreppi og Holtshreppi og síðan eitt ár við Austurbæjarskólann í Reykjavík, en réðst svo árið 1934 að Barnaskólanum á Sauðárkróki og var þar fastur kennari allt til ársins 1961, er hann hvarf frá kennslustörfum. Árin 1936 - 1946 kenndi hann einnig við unglingaskólann á Sauðárkróki. Tvær námsferðir fór hann til Norðurlanda, 1933 og 1958. Magnús var góður kennari, ljúfur og glaðlyndur og laðaði að sér börn og unglinga; nemendum þótti vænt um hann. Magnús Bjarnason var að vísu kennari að ævistarfi. En fyrir mannkosta sakir, vinsælda og félagshyggju komst hann eigi hjá að gegna fjölda trúnaðarstarfa. Hann sat í hreppsnefnd 1936 - 1942 og aftur 1946 - 1947, í bæjarstjórn 1947 - 1958 og aftur 1962- 1966. Hann Magnús Bjarnason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.