Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Qupperneq 15
Jólasálmar Lúters
annan utan íslands. í sálmabókinni 1972 á Marteinn Lúter enn á annan tug
sálma, sem tengjast honum með nokkrum hætti. Og það er athyglisvert, að
þeir birtust allir undir eins í sálmabók Guðbrands biskups 1589.
Þegar ritað er um sálma Lúters, em þeir skoðaðir frá ýmsum
sjónarmiðum og þeir flokkaðir með margvíslegum hætti. í þessu
greinarkomi er ætlunin að velta fyrir sér þeim 5 sálmum, sem rekja rætur
til hans að einhverju leyti og tengjast jólum. Víst er, að 3 þeirra birtust
fyrst í sálmasöfnun árið 1524. Líkast til hafa þeir einhverjir áður einnig
birzt í flugritum.8 Sálmar þeir, sem hér ræðir um, em Gelobet seist du,
Jesu Chríst, Nun komm der Heiden Heiland og Christum wir sollen loben
schon.
Heiðra skulum vér herrann Krist
Fyrsta erindi sálmsins Gelobet seist du, Jesu Christ, Heiðra skulum vér
herrann Krist, á sér fyrirmynd í þjóðvísu, sem varðveitzt hefir í heimild frá
því um 1370. Vísan er á lágþýzku, og er frumtextinn geymdur í
Konunglegu bókhlöðunni í Kaupmannahöfn.9
Lúter kunni jafnan að meta kveðskap alþýðunnar, en vísan hljóðar svo:
Loust sistu isu crist,
dat du hute gheboren bist
von eyner maghet. Dat is war.
Des vrow sik olde hemmelsche schar. Kyr.
Nú dyttar Lúter að þessari vísu, svo að af verður fyrsta erindi í
jólasálminum. Fræðimenn telja líklegast, að hann sé ortur kringum
áramótin 1523/1524, og hann sé fyrsti sálmur, sem Lúter hafi ort.
Um sömu mundir og Lúter yrkir þennan sálm eða litlu seinna snýr
hann yfir á þýzku 2 latneskum sálmum, sem síðar verður vikið að. Er ekki
annað sýnna en greina megi í orðalagi þessa sálms enduróm frá latnesku
sálmunum. Greinilegust koma þessi áhrif fram í 2. og 4. erindi, sem draga
dám af 6. og 7. erindi sálmsins Veni redemptor gentium.
Sálmafræðingar benda á, að þessi sálmur, sem Lúter frumsemur, andi
frá sér meiri hlýju og trúarlegum ilmi en lamesku jólasálmamir í búningi
hans. Raunar hlýtur hugarflugið oft og einatt að vera frjálsara, þegar það er
ekki bundið af orðum annarra höfunda, sem leggja þau skáldinu á tungu eða
svo reynist a.m.k. mörgum þeim, sem í skáldskap vasast. Raunar eru margir
sálmar Lúters ortir við sterk hughrif.
Þessi sálmur Lúters hefir komizt í margar sálmabækur kaþólskra,
ýmist óbreyttur eða aðeins að hluta til.
8 Wackemagel, Bibliographie Nr. 155.
9 Jellinghaus, Aus Kopenhagener Handschriften í Jahrbuch des Vereins fúr
niederdeutsche Sprachforschung 1881, bls. 1.
13