Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Page 80

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Page 80
Jónas Gíslason gæzlumenn rómverskrar kirkju á íslandi kærðu sig um? Spyr sá, sem ekki veit. Auk þess er ýmislegt við þessa frásögn að athuga. Ari segir, að papar hafi farið burt af landinu, af því að þeir vildu ekki vera hér við heiðna menn. Hvert gátu þeir farið, þegar öll nálæg lönd, nema þá Grænland, voru á valdi þessara sömu víkinga? Og hvaða hluti skildu þeir eftir sig? Bækur, bjöllur og bagla. Allt vom þetta hlutir, sem írskir munkar ógjama skildu við sig; það gæti bent til skyndilegs flótta við óvænta komu víkinga af hafi; vart hefði þá gefizt tóm til þess að búa skip til undankomu. Hitt er miklu sennilegra, að þeir hafi flúið landveg til afskekktari staða á landinu eða þá til héraða, þar sem kristnir menn fóm með yfirráð. Ýmislegt bendir til þess, að kristin byggðahverfi hafi haldizt á fáeinum stöðum á landinu; þess er beinlínis getið um Kirkjubæ á Síðu. Margt bendir til hins sama á Akranesi, Kjalamesi og í Kjós, svo að nokkur dæmi séu nefnd; a.m.k. vekur athygli, að á þessum stöðum hafa fáar eða engar heiðnar grafir fundizt, þótt fjölmargar hafi fundizt í öðmm landshlutum. Þá má minna á, að írsk-skozka kirkjan hlýtur að vera fróðlegt rannsóknarefni fyrir okkur íslendinga; einkenni hennar vom klaustrin, sem störfuðu algjörlega sjálfstætt. Klaustur var miðstöð hvers hérað; byggðin myndaðist í kringum það. írskir munkar vom ekki eingöngu einsetumenn, sem leituðu einvem til guðsdýrkunar, heldur einnig einhverjir mestu kristniboðar síns tíma; oft fóm þeir einmitt til heiðinna þjóða til þess að boða trúna. Þess vegna hefðu þessir norrænu víkingar átt að geta verið trúboðsakur fyrir þá. Hvenær komu papar fyrst til íslands? Sennilega einhvem tíma á tímabilinu milli 600 og 800, eftir byggingu Færeyja og fyrir norrænt landnám. Ritaðar heimildir em fáorðar um þetta; ef til vill mundi skipuleg fomminjaleit á þeim stöðum, þar sem papar helzt virðast hafa dvalið á íslandi, geta veitt einhverjar frekari upplýsingar. Virðist alls ekki vanzalaust tómlæti það, sem ríkir í frekari könnun á þessum kafla íslenzkrar sögu; hér em síður en svo öll kurl komin til grafar. Hér er auðvitað hvorki tími né tækifæri til þess að fara náið út í mörg atriði þess, sem telja verður vafasamt í hinni hefðbundnu skoðun á fyrstu öldum íslenzkrar sögu; sem dæmi má þó víkja að einum meginatburði íslandssögunnar, sem er norrænt kristniboð á Islandi og kristnitakan árið 1000. Kristniboðssaga íslands er að ýmsu leyti einstök í allri sögu kristniboðsins. Almenna krismiboðssagan er rík af frásögnum um krisma píslarvotta, sem guldu lífið fyrir trú sína. Kristniboðssaga íslands geymir engar slíkar frásagnir um krisma píslarvotta; þó skortir ekki frásagnir af mönnum, sem létu lífið fyrir trú sína í átökum vegna kristniboðsins, en þeir píslarvottar vora allir heiðnir menn, sem vegnir vora af kristniboðunum. Það mun nánast einsdæmi í krismiboðssögunni, þar sem kristniboðið var þá annað og meira en aðeins ómerkilegt yfirvarp óprúttinna og valdagráðugra manna, sem í skjóli þess reyndu að brjóta 78
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.