Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Page 88

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Page 88
Kristján Búason Gamla testamentisins. Auk bókstaflegrar merkingar fundu þeir merkingu, sem tjáði siðferði, ennfremur von og loks trú. Dæmi um þetta er t.d. útlegging nafnsins Jerúsalem í textum Gamla testamentisins, nánar tiltekið hjá Cassianusi (d. 435). Siðferðileg merking er sál einstaklingsins, vonin er um hina himnesku borg, og trúarlega merkingin er hin kristna kirkja. Þessi útleggingaraðferð varð ríkjandi í kirkjunni á miðöldum og gekk undir nafninu quadrigia. Eftirfarandi minnisvers á latínu frá miðöldum lýsir henni: Littera gesta docet, quid credas allegoria, moralis quid agas, quo tendas anagogia. Hún gerði ráð fyrir því, að Guð hefði ætlað orðum höfunda merkingu, sem þeim var ekki meðvituð. Þannig lásu menn kenningarhefð kirkjunnar inn í textana. Tómas Aquinas (d. 1274) hélt því þó fram, að ekki mætti byggja kenningar á óeiginlegri merkingu eingöngu. Ritskýring siðbótarmannanna Með siðbót Lúthers, sem tengdist persónulegri uppgötvun hans og reynslu af náðarboðskap Nýja testamentisins við rannsókn þess, hefst andóf hans gegn óeiginlegri túlkun ritningarinnar. Lúther lagði áherzlu á bókstaflega merkingu textans í sögulegu samhengi hans og taldi hina andlegu merkingu felast í henni. Með því átti hann við, að í hinni bókstaflegu merkingu talaði Guð, faðir Jesú Krists, til lesandans og þó miklu fremur heyrandans, þar sem vitnisburðurinn um Krist var að hans skilningi tiltal, ávarp til syndugs manns. Samtímis því, að Lúther haínaði allegoriskri eða óeiginlegri útleggingu, sá hann í atferli persóna, sem lýst er í ritningunum, fyrirmyndir að lífi og trúarreynslu kristins manns. Þar með var þó ekki hafin markviss sagnfræðileg ritskýring ritninganna í nútíma merkingu, en það voru mörkuð tímamót í sögu túlkunar fomra texta og lagður gmndvöllur að þróun túlkunarfræðinnar, sem allt fram á síðustu öld var borin uppi af guðfræðingum. Framlag Lúthers fólst í því, að hann aðgreindi orðið annars vegar og útleggingu þess hins vegar. Jafnframt setti hann sem og Calvin ritninguna yfir kenningarhefð kirkjunnar og kennivald páfans. Það er því engin tilviljun, að þróun fræðilegrar ritskýringar er borin uppi af guðfræðingum mótmælenda og þá einkum í Þýzkalandi allt fram á okkar daga. Gagnsiðbót rómversku kirkjunnar tók upp áherzluna á bókstaflega merkingu textans, en þessi áherzla varaði ekki lengi. Óeiginleg eða allegorisk útlegging varð þar aftur algeng. í kirkjum siðbótarmanna lifði áfram áherzlan á innihald texta sem fyrirmynd þess, sem koma skyldi, og fyrirmynd krismilífsins, en jafnframt var allegorisk útlegging tekin aftur upp í nokkrum mæli. Fommenntastefnan með áherzlu sinni á fomöldinni, grískunni og upprunalegu heimildunum, var ein af mikilvægum forsendum siðbótarinnar. Einn merkasti fylgjandi fommenntastefnunnar var Erasmus frá Rotterdam, sem 1516 gaf út gríska texta Nýja testamentisins með þýðingu á latínu og lagði þar með grandvöll að þýðingar- og útleggingarstarfi siðbótarmanna. Siðbótarmennimir eins og Lúther lærðu 86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.