Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1998, Side 26

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1998, Side 26
Páll Skúlason tilgátur og aðferðir til að brjóta boðskap hans til mergjar í þeirri von að öðlast skilning og rök sem færa okkur nær hinu sanna og rétta. Á þann hátt hefur orðið til - og verður til - kristin guðfræði sem rís undir nafni sem eiginleg fræðigrein. En hver eru rök fyrir því að telja hana réttmæt fræði, ef það er rétt að hún hvíli á trúarlegri forsendu - þeim möguleika að Kristur sé einstakur sonur guðs? Hvern- ig er hægt að réttlæta slíka forsendu? Einhver kynni einfaldlega að segja: „Þessi forsenda er ekki marktæk, vegna þess að guðfræðingar hafa ekki getað og munu ekki geta sannað forsendu sína. Hún er trúarleg, en ekki fræðileg.“ Eg felst á að forsendan sé trúarleg, en hafna því að þar með sé hún ekki marktæk. Við getum ekki sannað fræðilegt gildi hinn- ar trúarlegu forsendu, en það leiðir ekki af sér að hún sé marklaus og eigi engan rétt á sér í heimi fræðanna. Kenning mín eru í fæstum orðum sú að trúarvitund liggi öllum eiginlegum fræðum til grundvallar og það sé rangt að vísa henni frá heimi vísindanna. Verkefni mitt í því sem hér fer á eftir felst í að útlista þessa kenningu og rök- styðja. Kjarni vandans snýst um trúarvitundina sjálfa og tengsl hennar við vís- indalega hugsun. Áður en ég sný mér að henni skulum við staldra við nokkur hugtök sem eru hjálpleg til að skoða eina hlið málsins. Eg styðst hér við einfalda greiningu úr fórum Immanúel Kants. Hann greinir á milli sannfæringar, skoðun- ar og þekkingar. Sannfœring er huglæg vissa; ég er viss um að eitthvað sé satt, en ég veit það ekki og mig brestur rök til að sannfæra aðra, þótt sjálfur þykist ég alveg viss. Skoðun er hlutlægt álit eða viðhorf, sem ég tel mig hafa einhver rök fyrir, en er ekki endilega sannfærður um að sé rétt og vil gjarnan rökræða við aðra. Þekking er svo vitneskja sem ég er bæði huglægt sannfærður um og tel mig jafnframt hafa fullgild rök fyrir að sé sönn og óumdeilanleg. Ein leið til að greina á milli vísinda og trúar felst í því að flokka trúna með sannfæringunni, en vísindin með þekkingunni. Fjöldi skoðana okkar lendir svo þar á milli; sumar eru þess eðlis að við fáum aldrei rökstutt þær á fullnægjandi hátt og þær tilheyra þá fremur sviði trúarinnar; aðrar eru þess eðlis að unnt er rannsaka þær og finna gild rök fyrir þeim og þær flytjast þá yfir á svið vísind- anna. Þessi einfalda greining gefur, að mínu viti, skýra mynd af því hvernig svið trúar og vísinda blasa við okkur. Á hinn bóginn veitir hún ekki skilning á því hvemig sannfæring, skoðun og þekking tvinnast saman í vitund okkar og nærast hver á annarri, ef svo má taka til orða. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að drifkraft- ur allrar þekkingar- og sannleiksleitar sé huglæg vissa um að hið sanna sé til og muni að endingu koma í ljós, þótt öll rök bresti til að geta sýnt fram á það. I þessum skilningi lifum við í trú, en ekki í vísindum. Eg vil jafnvel ganga svo langt að segja að vísindin séu ekki annað en tiltekin leið til að lifa í trú - þeirri 24 1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.