Orð og tunga - 01.06.2010, Síða 58
48
Orð og tunga
lifir í breyttri mynd, Skalli hefur flust milli hverfa, Fjalakötturinn hefur
annað hlutverk. Ný uppnefni koma í staðinn fyrir þau gömlu en ekki
er víst að þau séu komin á bækur ennþá.
5. Barnanöfn. Nöfn í þessum flokki verða til í heimi barnanna, oft
í tengslum við leiki. Löggubrekka var sleðabrekka krakkanna á Klepps-
holti, ekki langt frá þar sem nú er Gunnarshús á Dyngjuvegi. Nafnið
mun þannig tilkomið að hús Agnars Kofoed Hansens þáverandi lög-
reglustjóra stóð efst í brekkunni. Kókakólaróló heitir leikvöllur barna
fyrir aftan Haga á Hofsvallagötu. Þar var Coca Cola-verksmiðjan Víf-
ilfell til húsa á árum áður en nafnið lifir enn meðal barna í hverf-
inu. Hólavöllur og Krummavöllur hétu fótboltavellirnir í Hólahverfi í
Breiðholti á árunum fyrir 1980. Sá fyrrnefndi kom fyrst og var kennd-
ur við hverfið sjálft en Krummavöllur síðar, kenndur við Krumma-
hóla. Skógurinn sem stendur á árhólmum Elliðaár neðan Árbæjar-
stíflu var kallaður Indjánaskógur eða Dimmiskógur meðal barna í Breið-
holti, a.m.k. á 8. og 9. áratug 20. aldar.
Barnanöfnum er sérstaklega hætt við að glatast og ná ekki á prent.
Það er ekki síst vegna þess að þau ná kannski aldrei að flytjast úr mál-
heimi barna í málheim fullorðinna. Þó benda dæmin hér að ofan til
þess að þau geti lifað meðal barna í margar kynslóðir.
6. Styttingar. Á ákveðnum tíma var algengt að stýfa nöfn og skeyta
viðskeytinu -ó aftan við, sbr. 2. kafla hér að framan. Gömul dæmi um
þetta eru t.d. Giíttó, Iðnó og Hressó. Fyrsta nafnið varðveitir einnig
gamla framburðarmynd en hin nöfnin eru hreinar stýfingar. Þessi nöfn
eru enn algeng, ekki síst í óformlegum útgáfum af nöfnum skóla.
Óformlega örnefnið Borgó fyrir Borgarholtsskóli (sem er tiltölulega ný-
legur skóli) sýnir að þetta er enn virk aðferð. Nöfn í þessum flokki eru
oftast fyrirsjáanleg og segja ekki mikla sögu.11
7. Önnur nöfn. Eins og oftast þegar reynt er að skipta efniviði í
huglæga flokka inniheldur sá síðasti fyrirbæri sem falla ekki með góðu
móti í neinn hinna flokkana. Rúnturinn er gamalt örnefni í borgarlíf-
inu. Upphaflegu rúntarnir voru spásseraðir en ekki eknir eins og síð-
ar varð. Þeir voru tveir, kallaðir Litli- og Stóri-Rúntur, fyrrnefndi náði
kringum Austurvöll en sá stærri afmarkaðist af Austurstræti, Aðal-
stræti, Kirkjustræti og Pósthússtræti. Bílarúntar seinni tíma voru líka
uSvavar Sigmundsson (2003:19) minnist á styttingar fomra hreppanafna sem eru
með öðmm hætti en hér, t.d. Skálmarnesmúlahreppur sem verður síðar Múlahreppur.
Bæði nöfnin eru eftir sem áður formleg.