Orð og tunga - 01.06.2010, Page 81

Orð og tunga - 01.06.2010, Page 81
Torfi Hjartarson: Kennarinn og kennileitin 71 og miklu varðar að þá skorti ekki hug eða traust á eigin getu til að að standa á eigin fótum og taka áhættu í starfi (sjá Fuglsang, Esben 2003:450-451). Þeir hafa mikinn stuðning af skýrri námskrá og mark- vissu námsefni en verða líka að leita leiða til að brjóta upp, vinna gegn stagli og vanahugsun, ögra nemendum með verðugum og áhugaverð- um verkefnum sem vísa til margra átta og opna augu fyrir ótal mögu- leikum á hverju efnissviði. Samstarf kennara innbyrðis, skólanámskrá eða stefna skóla ásamt styrkri leiðsögn skólastjórnenda og annarra sem móta menntastefnu skipta miklu um árangur af slíkri viðleitni (sjá Fullan, Michael 2007). 3 Hver er helstu kennileitin? Flest hljótum við, hvað sem líður kröfum um frumkvæði, innsæi eða skapandi hugsun, að fallast á að í skólastarfi með börnum og ungling- um sé miðað að einhverjum grunni þekkingar og færni. Aftur á móti kann að reynast þrautin þyngri að tiltaka af einhverri nákvæmni hver sá grunnur eigi að vera. Ef horft er til örnefna hlýtur svarið hverju sinni að ráðast af aldri nemenda, greinasviðum eða samhengi og á- herslum í námsefni, framvindu í samfélagi á hverjum tíma, tíðaranda og heimahögum svo að eitthvað sé nefnt. Umhverfi sem máli skipt- ir ræðst af viðfangsefnum og þeim sem við þau fást. Flvaða örnefni skipta máli þegar rætt er um landnám eða fornar söguhetjur við nem- endur á barnsaldri? Hvaða kennileiti ættu nemendur að kannast við þegar unglingar kljást við mannkynssögu eða bókmenntir? Myndlist og matreiðslu, heimabyggð eða fjarlægar álfur? Einstök framkvæmd getur beint kastljósi að nýjum kennileitum, byggðir og fyrirtæki rísa og hníga og umhverfi teygir sig út á víðáttur ljósvaka og netheima. Hver eru kennileiti og heimahagar dagsins? Gætu það verið Ríkisút- varpið og Moggavefurinn rnbl.is; vefleitarvélin Google og myndavef- urinn YouTube; sjónvarpsþættir á borð við Kastljós og Idol; verslanir á borð við Hagkaup og Ikea? Þegar horft er til nýrra möguleika eins og þeirra sem bjóðast á loftmyndavefsetrinu Google Earth (sjá http://earth.google.com) má spyrja að hvaða marki þeir nýtast án staðgóðrar þekkingar á kennileitum. Um leið og heimurinn skreppur saman verður mikilvægara en áður að nemendur átti sig í grófum dráttum á staðfræði framandi slóða og geti sett örnefni í notadrjúgt samhengi. Þeir þurfa að henda reiður á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.