Morgunblaðið - 14.12.2017, Qupperneq 86
86
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Jólamatur
Eva Björk Sveinsdóttir er manna
fróðust um áfengi enda er hún vöru-
merkjastjóri hjá Haugen Gruppen
og hefur þar umsjón með sölu létt-
víns og sterks áfengis.
Eva segir kokkteilamenninguna á
Íslandi á uppleið og að margir geri
tilraunir með að blanda drykki
heimafyrir. „Lengi vel miklaði fólk
kokkteilagerðina fyrir sér og hélt að
hún væri svo flókin. En raunin er að
það þarf ekki mikið meira en þrjú
innihaldsefni og góðan hristara til að
gera fínan kokkteil. Verslanir hér og
þar leggja sig líka fram við að bjóða
upp á vandaðar barvörur jafnt fyrir
byrjendur og þá sem vilja sýna
meiri kúnstir við drykkjablönd-
unina.“
Aðspurð hvað landsmönnum þyki
svona skemmtilegt við að blanda
kokkteila segir Eva að því fylgi viss
hátíðleiki að gera góðan kokkteil.
Hvort sem um er að ræða ljúffengan
drykk til að njóta kvöldsins eftir
krefjandi vinnudag, eða hressilegan
sopa til að gleðja gesti eftir mat-
arboð, þá lífgar kokkteill upp á
hversdagslífið.
Kokkteill í eftirrétt
Meðal vinsælustu kokkteilanna í
dag nefnir Eva Esspresso martini.
„Þessi drykkur er hálfgerður eft-
irréttur og hentar vel eftir mat. Í
hann fer vodki, espresso-kaffi, síróp
og Galliano-vanillulíkjör og allt hrist
saman með klökum. Blöndunni er
hellt í martini-glös, og skreytt með
rjóma og dökku súkkulaði. Bragðið
minnir á Baileys en hefur meiri
kaffikeim og vodkinn gefur kokkt-
eilnum meiri styrkleika.“
Þeir sem vilja eitthvað smærra í
sniðum gætu prófað Galliano Hot-
shot, sem er kokkteill sem bland-
aður er í skotglasi. „Í þann drykk á
að nota Galliano-vanillulíkjör,
espresso-kaffi og þeyttan rjóma og
er þetta borið fram í skotglasi með
skeið.“
Langi fólk að fá meiri léttleika í
jólakokkteilinn segir Eva einfalt að
laga drykk úr Contreau-appelsínu-
líkjör og sódavatni. „Drykkurinn er
skreyttur með sneið af rauðu epli og
rósmaríngrein og er þá kominn
flottur kokkteill með jólalegu epla-
og appelsínubragði,“ segir hún.
„Freyðivín með Contreau, skreytt
með appelsínuberki er síðan flottur
kokkteill fyrir áramótin.“
Hvítt með hamborgarhrygg
Sumum finnst gott að hafa vín í
glasi á meðan nartað er í jólasmá-
kökurnar eða saxað á konfektkass-
ana. Eva segir púrtvín geta passað
við súkkulaðið og ekki amalegt að
útbúa kaffi á írska vísu með hálf-
mánunum og gyðingakökunum.
Að velja rétta vínið með jólamatn-
um getur verið snúið. Íslendingar
borða mjög saltan, reyktan og sykr-
aðan mat í desember og ekki öll vín
sem ráða við það að vera borin fram
með t.d. rjúpu eða hambrogarhrygg.
„Með hamborgarhryggnum getur
farið vel á því að bera fram höfugt
og þykkt hvítvín eins og pinot grigio
frá Alsace í Frakklandi. Það er sætt
vín með möndlutónum og keim af
hitabeltisávöxtum sem passar ágæt-
lega við tónana í reykta svínakjöt-
inu. Létt hvítvín, eins og pinoit noir
frá nýja heiminum, er síðan flott
með kalkúnakjöti.“
Rauðvínið passar hins vegar bet-
ur með nautalundum og bragðmikilli
villibráð eins og hreindýri og rjúpu.
Hangikjötið á aftur á móti hvorki
góða samleið með rauðu víni né
hvítu. „Í staðinn myndi ég velja
dökkan porter eða doppelbock-bjór.
Það gæti jafnvel gengið að blanda
appelsíni saman við bjórinn og sakar
a.m.k. ekki að prófa.“ ai@mbl.is
Kokkteilar sem koma
fólki í jólaskapið
Það getur gert jól og áramót gleðilegri að blanda sér hátíðlegan kokkteil. Eva
hjá Haugen Gruppen lumar á nokkrum góðum jólalegum kokkteiluppskriftum
og deilir hagnýtum ráðum fyrir þá sem vilja para vín með jólaréttunum.
Morgunblaðið/Eggert
Handbragð Kokkteilagerð er ekki flókin, að sögn Evu. „Það þarf ekki mikið
meira en þrjú innihaldsefni og góðan hristara til að gera fínan kokkteil.“
6 cl Cointreau
3 cl ferskur limesafi
12 cl sódavatn
3 þunnar eplasneiðar
1 rósmaríngrein
Aðferð:
Hellið Cointreau og limesafa út í
glasið ásamt klaka og hrærið.
Skreytið með eplum og rósmaríni.
Cointreau Fizz með
eplum og rósmaríni
50 ml af vodka
25 ml Galliano Vanilla
1 espressoskot
25 ml sykursíróp (hægt
að búa það til ef þið eig-
ið það ekki, leysa 1 dl af
sykri upp í heitu vatni
og kæla í ísskáp)
Aðferð:
Kælið kokteilglasið með klökum á meðan
drykkurinn er blandaður.
Setjið öll hráefnin í hristara og hristið vel.
Takið klakana úr glasinu áður en þið hellið
drykknum í glösin.
Skreytið með þeyttum rjóma og dökku
súkkulaði.
Espresso Martini
Hráefni fyrir tvö glös:
100 ml þeyttur rjómi
3 msk sykur
3 tsk vanillusykur
1 tsk Stroh 60-romm
4 msk kakó
400 ml af mjólk
40 g af súkkulaði (dökku)
2 til 4 cl Stroh 60-romm
Aðferð:
Rjómablandan:
Þeytið rjóma með 1 msk sykri og
1 tsk vanillusykri. Rétt áður en
rjóminn er orðinn stífþeyttur bætið
þá við 1 tsk af Stroh-rommi.
Stroh-kakó:
Blandið kakódufti, dökku súkku-
laði, mjólk og 2 msk sykri og 2 tsk
vanillusykri í pott og hrærið saman
við vægan hita.
Takið pottinn af hitanum og bæt-
ið 2-4 cl af Stroh-rommi út í pottinn
og hrærið.
Hellið kakóblöndinni í bolla eða
glas og bætið svo rjómanum ofan á.
Fallegt að skreyta með smá púð-
ursykri eða súkkulaðispæni.
Heitt súkkulaði með Stroh