Jökull


Jökull - 01.01.2001, Side 102

Jökull - 01.01.2001, Side 102
Leó Kristjánsson inu árlegt afgjald, en áhyggjur vöknuðu um að nám- an gæti spillst og verð kristalla lækkað, ef of mikið væri unnið af þeim þar í einu. Danski jarðfræðing- urinn Fr. Johnstrup var fenginn til að skoða námuna 1871, og taldi hann í skýrslum sínum til landsstjórnar að draga ætti verulega úr vinnslunni. Henni var síðan hætt eftir sumarið 1872, og á árinu 1879 keypti ríkið þá 3/4 sem sr. Þórarinn hafði átt. Eftirspurninni eftir silfurbergskristöllunum var annað fram yfir 1880, væntanlega að mestu af birgð- um sem Tulinius hafði komið sér upp síðustu rekstrar- árin. Minniháttar vinnsla var á vegum ríkisins 1882 og 1885, en fyrir 1885 fór að bera á kvörtunum notenda silfurbergsins um ónógt framboð. Jaðraði ástandið brátt við „hungursneyð“ að sumra mati. Meðal ann- ars skrifaði G. G. Stokes, sem fyrr var nefndur, bréf til ráðherra Íslands 1886, þar sem hann kvað vera hrein vandræði af silfurbergsleysi hjá vísindamönnum og tækjasmiðum í Bretlandi, og bað þess lengstra orða að náman verði opnuð á ný. Stokes var þá forseti Kon- unglega Vísindafélagsins. Sumir tækjasmiðir virðast þó hafa haft góðan aðgang að silfurbergi fram yfir aldamótin, og kom það ef til vill að hluta úr eldri söfn- um einstaklinga eða stofnana. RANNSÓKNIR Á SILFURBERGI OG FRÆÐILEGUR ÁRANGUR RANN– SÓKNA MEÐ NICOL–PRISMUM, 1850–1910 Fjölmargir eðlisfræðingar héldu áfram að rannsaka íslenska silfurbergið og voru ljóseiginleikarnir einna mest áberandi. Tókst meðal annars að staðfesta kenn- ingar Huyghens og Fresnels (en útiloka aðrar) um útbreiðslu „sérkennilega“ ljósgeislans í silfurbergi með sívaxandi nákvæmni, síðast 1:500000 (Hastings, 1888). Má ekki síst þakka fullkomleika kristallanna það, að þessi nákvæmni fékkst. Silfurbergið átti þátt í að skera úr langvarandi deilu um fræðilegan grunn fjaður–eiginleika efna. Silfurberg var einnig fyrsta kristallaða efnið sem tókst að aflaga varanlega undir þrýstingi: juku þær til- raunir mjög skilning manna á aflögun kristalla al- mennt, og á eðli hreyfinga innan jarðskorpunnar. At- huganir á ætingu silfurbergs o.fl. kristalla með sýrum skýrðu óleyst vandamál í samhverfu þeirra. Nákvæm- ar ákvarðanir á atómþunga kalsíums, sem er efnafræð- ingum nauðsynlegur við efnagreiningar sínar, nýttu ís- lenska silfurbergið sem hráefni. Strutt (1871, þekkt- ari sem Rayleigh lávarður) notaði nýlegar rannsókn- ir J. Tyndalls á lit og skautun ljóss sem dreifðist frá smáögnum í lofti og vatni, til þess að útskýra hvers- vegna himininninn væri blár. Fræðilegar framfarir innan efnafræðinnar eiga rannsóknum með polarimetrum (sjá 5. mynd) sitthvað að þakka, og voru sumar þeirra meiriháttar. Þannig leiddi uppgötvun Pasteurs, sem nefnd var hér að ofan, til alveg nýs skilnings á lífrænni efnafræði 1874, með kenningum J. H. van’t Hoff í Hollandi og J. A. le Bel í Frakklandi um þrívíð efnatengi kolefnis. Hið svo- nefnda massavirknilögmál efnafræðinnar, sem skýr- ir gang efnahvarfa, var (skv. einni heimilda minna) uppgötvað eða staðfest við úrvinnslu Norðmannanna C. M. Guldberg og P. Waage á niðurstöðum tiltekinna polarimeter–mælinga um 1865. 5. mynd. Einfaldur polarimeter frá 19. öld. Ljós úr loganum til vinstri fer gegnum Nicol–prisma, síð- an glerrör af staðlaðri gerð og annað Nicol–prisma. Mæling á snúningi sveiflustefnu ljóssins gefur styrk efnis (t.d. sykurs) í vatnslausn í rörinu. – A 19th century polarimeter for research on organic liquids and solutions. Mynd/photo: HMSO–Science Muse- um, London. 102 JÖKULL No. 50
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.