Jökull


Jökull - 01.01.2001, Side 141

Jökull - 01.01.2001, Side 141
Jöklarannsóknafélag Íslands 6 m langt mastur með skráningarbúnaði vegna vatns- hæðar. 5. Breytingar á jökulyfirborði í Grímsvötnum og Gjálp voru mældar með DGPS og kannaðar breytingar vegna aukins jarðhita í Grímsfjalli eftir gosið. 6. Útbreiðsla öskulagsins úr Grímsvatnagosinu í des- ember var könnuð með borun á 3ja tugs kjarnaholna víðsvegar á vestanverðum jöklinum. 7. Unnið var við þyngdarmælingar á jöklinum við Kverkfjöll, Esjufjöll, Þórðarhyrnu og á Síðu- og Tungnaárjöklum. 8. Settir voru upp 22 sjálfvirkir jarðskjálftamælar til að kanna skjálftavirkni við Grímsvötn. 9. Til ísskriðsmælinga voru settar upp stikur á jökul- inn umhverfis Gjálp, í Grímsvötnum umhverfis gíginn og við útfallið frá Grímsvötnum. 10. Borað var með hitavatnsbor gegnum íshelluna á nýjum borstað (64 25.2’ N, 17 19.0’ V). Þar var sett- ur niður þrýstiskynjari og skráningarbúnaður vegna vatnshæðar. Vonast menn til að þessi nýi staður henti betur en sá gamli. Íshellan reyndist 290-295 m þykk og dýpi niður á botn var 310 m. 11. Hópur jarðfræðinga vann að margháttuðum at- hugunum á gosstöðvunum í Grímsvötnum. Gosstöðv- arnar voru mældar upp, útbreiðsla jarðhita könnuð, gjóskusnið tekin og sýnum safnað. 12. GPS-landmælingar voru gerðar á punktum á Salt- aranum, Hamrinum og í Jökulheimum. Tilgangur þeirra var að kanna uppsöfnun kviku í Grímsvötn- um eftir gosið. Benda fyrstu niðurstöður til að hún sé skammt á veg komin. 13. Íssjármælingar með punktíssjá fóru fram norðar- lega í Grímsvötnum og umhverfis gosstöðvarnar til að kanna hugsanlegar breytingar á botni samfara eld- virkninni. 14. Unnið var að uppsetningu nýs stafræns jarð- skjálftamælis í gamla skálanum. Samfara því var nú komið upp nýjum hitarafstöðvum til rafmagnsfram- leiðslu fyrir nýja mælinn. Sjálfvirk veðurstöð var einnig sett upp við skálann. Haustferð Haustferð í Grímsvötn var farin 20.-25. september. Farið var á nokkrum jeppum og vélsleðum, upp Köldukvíslarjökul. Þátttakendur voru 10. Veður var gott allan tímann og færi einnig. Tókst því að vinna öll áætluð verkefni, en ekki tókst þó að komast fyrir barnasjúkdóma í nýju rafstöðvunum í gamla skálan- um. Unnið var að eftirtöldum verkefnum: 1. Vitjað var um stikur við Grímsvötn og Gjálp og skrið þeirra mælt. Einnig var lögun Grímsvatna og Gjálpar mæld með DGPS mælingum, eins og hægt var að komast vegna ösku og sprungna. 2. Gígsvæðið var mælt upp og skoðað og borið saman við stöðuna í júní. 3. Unnið var að endurbótum á rafstöðvum og loftnets- sambandi fyrir nýjan jarðskjálftamæli Veðurstofunn- ar. 4. Hæð jökulsins í Skaftárkötlum og umhverfis þá var mæld með DGPS. Þessi ferð er fyrsta skipulagða haustferð JÖRFI á Grímsfjall í mjög langan tíma. Er ætlunin að halda þeim áfram enda reynslan góð. Sporðamælingar Mæld var lega jökulsporða á um 43 stöðum síðast- liðið haust. Af þeim hopuðu 35, 3 gengu fram en 3 stóðu í stað. Á undanförunum árum hefur jöklum sem fylgst er með heldur fjölgað. Allir þeir jöklar sem fram gengu, voru í framhlaupi, og staðfestir þetta almennt hop jöklanna vegna hlýnandi veðurfars. Jarðskjálftamælingar á Vatnajökli Síðastliðið sumar var haldið áfram hinu stóra verkefni sem var unnið síðastliðið sumar til að kanna innviði eldstöðva í vestanverðum Vatnajökli, einkum til að kortleggja kvikuhólf sem þar er að finna. Að verkefn- inu standa Raunvísindastofnun Háskólans, Háskólinn í Cambridge og Columbia Háskóli í New York. Félag- ið tók þátt í verkefninu bæði í vorferðinni og í ferð í júlí þegar mælar voru teknir niður. Gengu mælingarn- ar vel þetta árið. Afkomumælingar Unnar voru afkomumælingar víðsvegar um Vatnajök- ul og á Langjökli á vegum Landsvirkjunar og Raun- vísindastofnunar Háskólans. Hluti mælinganna á vest- anverðum Vatnajökli var unnin í vorferð félagsins. Orkustofnun fylgdist sem fyrr með afkomu á Hofs- jökli og Þrándarjökli. Veturinn var fremur snjóléttur og ákoma því minni en í meðalári. Leysing var hins- vegar nærri meðallagi en minni en undanfarin tvö ár. Því varð lítilsháttar rýrnun jöklanna eitt árið einn. JÖKULL No. 50 141
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.